Vilja hafa opið á sunnudögum 29. júní 2006 06:15 Á Champs Elysées Skotar í eyðsluham á Parísarbreiðgötunni frægu. Frakkar deila nú um sunnudagsopnun verslana við hana.
Á flestum stöðum í Frakklandi má ekki hafa verslarnir opnar á sunnudögum, en á verslunargötunni Champs-Elysées eru þó leyfðar undantekningar. Flókin reglugerð ræður ferð og tvær lögsóknir munu brátt skera úr um hvað má og hvað má ekki. Franskir verslunarmenn og verkalýðsfélögin hafa eldað grátt silfur um hvort hafa megi búðir opnar á hvíldardeginum eða ekki. Kaupmenn vona að sunnudagsopnun geti dregið eitthvað úr atvinnuleysinu sem þjakar Frakkland, en það mælist nú 9,3 prósent. Nú er svo komið að tveir hópar hafa lagt fram kæru vegna nýrrar tveggja ferkílómetra verslunarmiðstöðvar á Champs-Elysées sem mun verða opin á sunnudögum. Ákærendurnir, Félag fataiðnaðarins og Kristilega verkalýðsfélagið, segja að búðir muni ekkert græða á þessum opnunartíma og vera stórlega undirmannaðar á álagstímum. Í Evrópu eru reglur um opnunartíma verslana mismunandi eftir löndum. Í Póllandi og Króatíu mega búðir hafa opið á sunnudögum, en kaþólska kirkjan hefur barist hatrammlega gegn því. Í Þýskalandi hefur kaupmönnum verið leyft að breyta afgreiðslutíma í verslunum sínum meðan á heimsmeistarakeppninni í knattspyrnu stendur, þó að stjórnarskráin frá 1949 leggi blátt bann við öðru en hvíld og trúariðkun á hvíldardeginum.
Erlent Mest lesið „Evrópusambandið er ekki konfektkassi“ Innlent Sigurjón Sighvatsson hlýtur heiðursverðlaun Innlent Slökktu eld á Kársnesi Innlent Viðarplata eina útsýnið og hávaði frá morgni til kvölds Innlent Þjófar herja á fyrirtæki borgarinnar Innlent Þekktur rabbíni sakar Íslending um gyðingahatur Innlent Tíu sakborningar og minnst þrír brotaþolar í fjárkúgunarmáli Innlent Metsumar hjá Landhelgisgæslunni: Þörf á að tvöfalda flotann Innlent Orð Jóns Sigurðssonar eigi við um baráttuna í dag Innlent Komin með skýra mynd á fjölskylduharmleik í Kópavogi Innlent Fleiri fréttir Biður fjársterka stuðningsmenn um að styðja Vance 2028 Íranir segja viðræður á lokametrunum Vísa máli Fauci til dómstóla Sakar lekamenn um landráð vegna „rangra“ frétta „Fagmenn“ smíðuðu og flugu sjálfsprengidrónanum í Leipzig Áhrifavaldur myrtur í beinni Ebóla að stinga viðbragðsaðila í verkfalli af Tómar hillur í vopnabúrum Bandaríkjanna Rússneskur drónasmiður á gjörgæslu vegna bílsprengju Kona stakk fjóra í Lundúnum Rauðar veðurviðvaranir í tugum ítalskra borga Sjálfsprengidróni fannst á flugvelli í Þýskalandi Algjörlega varnarlausir gegn skotflaugum Rússa Fjögurra tonna eldflaugabútur skall á tunglið á ógnarhraða Handtekinn á golfvelli Trump með hlaðna byssu Ein mannskæðasta árásin á Kænugarð á þessu ári Verja fúlgum fjár í að hafa upp á þeim sem gagnrýna ICE á netinu „Hverjir eru á bak við það?“ Greiða leið fyrir Blanche að embætti dómsmálaráðherra „Veiddu“ grænmetissala með dróna Lýsti mikilli örvæntingu áður en hún myrti börnin sín „Hún féll saman eins og regnhlíf“ Drengir í haldi grunaðir um undirbúning hryðjuverkaárásar í skóla Von der Leyen kallar eftir átaki um öruggari landamæri Lýsa yfir neyðarástandi í Washington vegna gróðurelda Niðurgangspestin hefur dregið tvo til dauða Þrjú börn látin eftir drónaárás á baðströnd Á þriðja tug enn saknað eftir að kviknaði í ferju Viðræður við Íran hefjist á morgun Játaði að hafa flutt líkið í ferðatösku Sjá meira