Barist gegn nauðgunum 30. nóvember 2006 12:00 Pétur Ben spilar á styrktartónleikum Jafningjafræðslunnar. MYND/Hrönn
KK, Pétur Ben, Reykjavík! og Orig-inal Melody koma fram á tónleikum í kvöld sem er lokahnykkur átaksins „Nóvember gegn nauðgunum" sem Jafningjafræðsla Hins hússins hefur staðið fyrir. Ösp Árnadóttir hjá Jafningjafræðslunni segir að átakið hafi gengið vonum framar. Sjö skólar hafa verið heimsóttir og hefur fræðslan ýmsist verið á sal eða inni í lífsleikni- eða félagsfræðitímum. „Fólk hefur svolítið skekkta mynd af því hvernig þetta er. Það heldur að flestar nauðganir séu þannig að það sé setið fyrir stelpum og ráðist á þær. Það er bara í 10% tilfella." Hún bætir því við að staðreyndin sé sú að í 70% tilfella þekkja fórnarlömb nauðgunarinnar þann sem fremur glæpinn. Að sögn Aspar skellir fólk oft skuldinni á stelpurnar sjálfar sem lenda í nauðguninni og kenna m.a. klæðaburði um hvernig fór fyrir þeim, að þær hafi kallað nauðgunina yfir sig. „Það voru líka margir að segja reynslusögur af einhverjum frænda eða vinum sem stelpa hefði sagt að hefði nauðgað sér. Það er eins og það sé algengt en samt er það bara í 1,5% tilfella þannig. Það er eins oft og fólk sem lýgur um að hafa lent í bílslysi til að fá út úr tryggingunum. Samt er það aldrei dregið í efa." Styrktartónleikarnir fara fram í Ráðhúsi Reykjavíkur og standa þeir yfir frá 20 til 22. Aðgangseyrir er enginn en fólk getur lagt frjáls framlög í kassa til styrktar Stígamótum. Ösp segir að fólk hafi svolítið skekkta mynd af fórnarlömbum nauðgana.MYND/Hrönn .
Menning Mest lesið Drengurinn sem dó Lífið Nakinn á kóræfingu Lífið Vill 700 milljónir fyrir höllina Lífið „Þetta er bara fjárhagslegt ofbeldi“ Lífið Ólöf og Magnús ástfangin á frumsýningu Menning Laufey fékk sæta kveðju frá yngsta Grammy-verðlaunahafa sögunnar Lífið Hestastelpa úr sveit og sjóðheitur hönnuður Menning Ungir hjartaknúsarar mæta á hvíta tjaldið Bíó og sjónvarp „Skýið er bleikt og við erum sannarlega enn þá á því skýi og í sjokki“ Lífið Síðasti leynigesturinn opinberaður Lífið Fleiri fréttir „Hún er komin til að vera“ Byrjaði allt í blokkinni í Breiðholti Stjórinn mótmælir ICE með lagi um Minneapolis Íslenskur tónlistarmaður í lykilhlutverki Högni hjálpar fólki að slaka á Kristinn Svavarsson er látinn Hætta óvænt við tónleikaferðalög sín „Þetta er ekki uppgjör á mínu uppeldi“ Skilur meðvirkni eftir í fortíðinni Rugluðust á Laufeyju og „Megan“ „Ég mun aldrei stíga á svið í Bandaríkjunum aftur“ Nýtt lag frá Halla Reynis sex árum eftir andlát hans Vinsælustu lögin á Bylgjunni 2025 Sjá meira