Uppselt á styrktartónleikana í kvöld 28. desember 2006 16:30 Bubbi Morthens er einn þeirra listamanna sem gefa vinnu sína til styrktar krabbameinssjúkum börnum á styrktartónleikunum í Háskólabíói í kvöld. MYND/PB
Uppselt er á tónleikana til styrktar krabbameinssjúkum börnum sem fram fara í Háskólabíói í kvöld. Tónleikarnir eru árlegur viðburður og eru nú haldnir í áttunda skipti. Síðustu miðarnir seldust um hádegið í gær, en aldrei áður mun hafa orðið uppselt á tónleikana svo snemma. Einar Bárðarson, einn skipuleggjenda tónleikanna, kveðst ákaflega ánægður með þetta og afar þakklátur, en hann hefur komið að tónleikunum frá því að þeir hófu göngu sína. Einar Bárðarson hefur komið að skipulagningu viðburðarins frá upphafi og er að vonum ánægður með að uppselt sé á tónleikana. Rjómi íslenskra tónlistarmanna kemur fram í Háskólabíói í kvöld, en þar á meðal eru Bubbi Morth-ens, Páll Óskar, Garðar Thór Cortes, Nylon og Á móti sól. Allir sem koma fram á tónleikunum, eða koma að undirbúningi þeirra, gefa vinnu sína eins og undanfarin ár. Tónleikarnir hefjast klukkan sex.
Mest lesið Hvetur fólk til að taka sjálfu með „þessu glæsiklofi“ Lífið Skoðanabræður hætta göngu sinni: „Takk fyrir okkur“ Lífið Myndaveisla: Ærandi pollagallastemming í Eyjum Lífið Rod Stewart sýnir Ozzy taka sjálfur í himnaríki Lífið Hermína sem missti folald og móðurlaus Tígull fundu hvort annað Lífið Fann ástina á Balí en nýtur hennar í Kóreu Lífið Menningarperlan aftur komin í sitt gamla horf Lífið „Stundum finnst mér hún vera farin þó hún sé enn á lífi“ Lífið „Þarna fylltist hjartað af hamingju“ Lífið Sweeney sökuð um kynþáttahyggju Lífið Fleiri fréttir „Öll dýrin í skóginum voru vinir“ Úr kjallaranum hjá mömmu yfir á stóra sviðið Opnar sig um stormasamt hjónaband á nýju plötunni Borgin býður í tívolíveislu Dylan leggur blátt símabann á tónleikagesti „Gerum allt fyrir konurnar í okkar lífi“ Quarashi á Lopapeysunni: „Við erum synir Akraness“ „Svo leiðinlegt að pæla hvað öðru fólki finnst“ Forsala á Kaleo seldist upp á innan við mínútu Sjá meira