Platan Vorvindar komin verslanir 31. maí 2006 10:45
Tríó Björns Thoroddsen og Andrea Gylfadóttir hafa sent frá sér þrettán laga plötu sem ber heitið Vorvindar. Á henni syngur Andrea dáðustu alþýðusöngva þjóðarinnar frá síðustu öld. Af þeim má til dæmis nefna lagið Vorvindar glaðir, en það má nú þegar heyra á öldum ljósvakans. Önnur lög eru meðal annars Draumur hjarðsveinsins, Hlíðin mín fríða, Sveitin milli sanda, Blátt lítið blóm eitt er og Ömmubæn. Vorvindar ber keim af vor- og sumarrómantík sem á nú vel við. Hér þekkir tónlistin engin landamæri því á plötunni má finna jafnt íslensk dægurlög, barnasöngva, söngljóð, þjóðleg lög sem erlenda flökkusöngva. Hér eru öll lögin sungin á íslensku og fylgir textabók með. Meðlimi tríósins þarf vart að kynna; Björn Thoroddsen gítarleikari hefur verið fremstur meðal jafningja í íslenskum jazzi í meira en 20 ár og Andrea Gylfadóttir hefur verið ein af okkar fremstu söngkonum til margra ára. Jón Rafnsson bassaleikari hefur verið atkvæðamikill í íslensku tónlistarlífi síðastliðin ár, og er hann með Birni í tríóinu Guitar Islancio. Jóhann Hjörleifsson hefur verið einn af okkar eftirsóttustu trommuleikurum til fjölda ára. Hann leikur með hinni vinsælu hljómsveit Sálinni hans Jóns míns, en er einnig fastur trommari Stórsveitar Reykjavíkur. Á plötunni leggur Kjartan Valdemarsson tríóinu lið á harmonikku í nokkrum lögum. Vorvindar er gefin út hjá Senu og er platan komin í verslanir.
Lífið Menning Mest lesið Hryllingur og hiti á klúbbnum Lífið „Götustelpan“ glöð Lífið Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Lífið Stjörnurnar fögnuðu flúruðum Maroni Tónlist Ekki gálgadans heldur hæ dúddelí dæ Gagnrýni „Ég fæddist nefnilega á endalausu breytingarskeiði“ Lífið samstarf Fundu ástina á Domino's Lífið Hinsegin ást í loftinu Lífið „Ég er enn að venjast andlitinu á mér“ Bíó og sjónvarp Arnór Sig kominn á fast Lífið Fleiri fréttir „Götustelpan“ glöð Hryllingur og hiti á klúbbnum Hvernig fílarðu böndin á Airwaves? Fundu ástina á Domino's Klöppuðu fyrir ofan höfuð á Frikka Dór Ellý er röddin sem þúsundir manna heyra á hverjum degi Hinsegin ást í loftinu Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Tæplega þriggja áratuga löng gönguferð á enda Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Íslensk listakona sló í gegn í Miami Safna í minningu Johns Snorra fyrir munaðarlaus börn Ólafía Þórunn orðin þriggja barna móðir „Erum bara vinir“ Áhrifavaldur lést í mótorhjólaslysi Útúrkókaður lögreglumaður stökk á mann sem var að slá garðinn um nótt Arnór Sig kominn á fast Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Mistök að hafa klætt sig upp sem heimilislausa Robert Irwin nýtti fríið og ferðaðist um Ísland Vonlaust að gagnrýna vini sína Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Krakkatía vikunnar: Hrekkjavaka, þjóðtrú og goðafræði Hnýta í Trump í nýrri herferð: „Velkomin til skítalands“ Níutíu og einn meistari útskrifaðist Andri Snær keppir við Elizabeth Holmes Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Hrekkjavökukort sem sé drifið áfram af samfélaginu Nýjar upplýsingar um morðið á Hrafnhildi Lilju átján árum síðar Fréttatía vikunnar: Brasilía, Ofurskálin og Pútín Sjá meira
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“