Ríkisstjórnin bakkar ekki segir samgönguráðherra 4. júlí 2006 17:45 MYND/Vísir
Ríkisstjórnin ætlar ekki að bakka með frestun vegaframkvæmda ef það verður til þess að verðbólgan fari af stað. Þetta segir Sturla Böðvarsson samgönguráðherra. Ríkisstjórnin tilkynnti í síðustu viku að gripið yrði til víðtækra aðgerða til að draga úr þenslu. Í því felst meðal annars að fresta tímabundið útboðum og upphafi nýrra framkvæmda á vegum ríkisins. Sturla Böðvarsson samgönguráðherra var gestur í hádegisviðtalinu á NFS í dag þar sem hann var spurður hvers vegna ekki hafi verið gripið fyrr til þessara aðgerða. Hann svaraði því til að alltaf sé hægt að segja sem svo að það hefði þurft að gera. Ríkisstjórnin hafi m.a. verið að vonast eftir því að menn áttuðu sig á því, t.d. í stjórnum sveitarfélaga höfuðborgarsvæðisins, að það sé ekki skynsamlegt að fara fram með þeim hætti sem gert hafi verið í byggingamálum þar. Meðal þeirra framkvæmda sem frestað er með þessari ákvörðun ríkisstjórnarinnar eru vegaframkvæmdir á Norðausturlandi og á Vestfjörðum. Samgönguráðherra segir það alveg liggja fyrir af hálfu ríkisstjórnarinnar að aðeins sé um frestun að ræða - ekki sé verið að hætta við umræddar framkvæmdir. Spurningin sé bara hversu hratt tekst að ná niður verðbólgunni. Það takist hins vegar ekki nema sveitarfélög höfuðborgarsvæðisins, bankarnir og atvinnulífið komi þar að málum.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Konan í Bríetartúni komin á götuna Innlent „Hún gat ekki gefið neinar skýringar á þessu, hvorki mér né lögreglunni“ Innlent Hasar við Bríetartún 20: Verið að bera konuna út Innlent Óboðlegt að vera „friðardúfur“ í kosningabaráttu og horfa síðan þögul á „hryllingsmynd í beinni“ Innlent Borin út úr Bríetartúni: „Það er búið að ræna mig öllu“ Innlent „Því miður er þetta þrautalending“ Innlent Ekki talin yfirvofandi hætta en maðurinn geti orðið hættulegur Innlent „Þetta er salami-leiðin“ Innlent „Ástandið er að versna“ Erlent Lítur það grafalvarlegum augum ef ráðherra fari ekki að lögum Innlent Fleiri fréttir Fékk rætin skilaboð vegna veðmála eftir að hafa klikkað á vítum Borin út úr Bríetartúni: „Það er búið að ræna mig öllu“ Álfurinn í landsliðsbúningi í ár Líflátshótanir í kjölfar veðmála og óttaslegin eftir útburð Þrír fluttir á sjúkrahús eftir umferðarslys við Smáralind Ekki talin yfirvofandi hætta en maðurinn geti orðið hættulegur Núverandi fyrirkomulag „virðist hylma yfir ábyrgð og gagnsæi“ Ítarleg skýrsla á borði ráðherra Inga skipar konu í stað karls í stjórn HMS Óboðlegt að vera „friðardúfur“ í kosningabaráttu og horfa síðan þögul á „hryllingsmynd í beinni“ Líkur á nýju gosi munu aukast þegar líða fer á haustið „Því miður er þetta þrautalending“ Reikningum Flokks fólksins lokað um stund „Hún gat ekki gefið neinar skýringar á þessu, hvorki mér né lögreglunni“ Konan í Bríetartúni komin á götuna Hækkandi matarverð hringir bjöllum hjá ráðherra Viðvörunarbjöllur óma vegna verðhækkana Lítur það grafalvarlegum augum ef ráðherra fari ekki að lögum Treystir Ingu til að leggja mat á hæfi stjórnarmanna og að lögum sé fylgt Konungshjónin tóku á móti Höllu og Birni Hasar við Bríetartún 20: Verið að bera konuna út „Þetta er salami-leiðin“ Gunnlaugur Claessen er látinn Bætir í vind og úrkomu í kvöld Byssum stolið úr bílskúr í Kópavogi Ekki standi til að sækja strandveiðiheimildir í aflamarkskerfið Ný stjórn Ungra umhverfissinna kjörin Skjálfti 4,8 að stærð í Bárðarbungu Konan „terroríseri“ alla í hryllingshúsinu Mannréttindastofnun Íslands tekin til starfa Sjá meira
Óboðlegt að vera „friðardúfur“ í kosningabaráttu og horfa síðan þögul á „hryllingsmynd í beinni“ Innlent
Óboðlegt að vera „friðardúfur“ í kosningabaráttu og horfa síðan þögul á „hryllingsmynd í beinni“ Innlent