West Ham lá heima fyrir Wigan 6. desember 2006 22:14 Eggert og Björgólfur veifa hér til áhorfenda á Upton Park, en segja má að Björgólfur hafi farið fýluferð á sinn fyrsta leik með West Ham NordicPhotos/GettyImages
Tveir leikir fóru fram í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Björgólfur Guðmundsson sat við hlið Eggerts Magnússonar í heiðursstúku West Ham í kvöld en þurfti að horfa upp á sína menn tapa 2-0 fyrir Wigan. Þá vann Newcastle afar mikilvægan sigur á Reading 3-2 í æsilegum leik. Leikmenn West Ham fengu fjölda færa til að skora gegn Wigan og var Argentínumaðurinn Carlos Tevez sérstaklega óheppinn að opna ekki markareikning sinn hjá liðinu. Sjálfsmark frá Jonathan Spector og þrumuskot frá David Cotterill tryggðu hinsvegar Wigan góðan sigur. Mikið fjör var í leik Newcastle og Reading á St. James´Park. Sibierski kom heimamönnum yfir í leiknum, en James Harper skoraði tvö mörk með skömmu millibili fyrir lok fyrri hálfleiks. Obafemi Martins jafnaði fyrir Newcastle úr vafasamri vítaspyrnu á 57. mínútu þar sem hinn einstaki Rob Styles dómari var í aðalhlutverki. Það var svo hinn magnaði Emre sem tryggði Newcastle afar mikilvæg þrjú stig með þrumufleyg sínum skömmu fyrir leikslok. Reading er í 6. sæti ensku úrvalsdeildarinnar og Wigan lyfti sér í 11. sætið með sigrinum í kvöld og á leik til góða. Newcastle er komið í 15. sæti deildarinnar eftir sigur kvöldsins og West Ham er í 18. og þriðja neðsta sæti deildarinnar.
Enski boltinn Erlendar Fótbolti Íþróttir Mest lesið Risa sigur fyrir Leeds United Enski boltinn Búast við yfir tuttugu og sex milljón meldingum um veikindi Sport Dagskráin í dag: Risa dagur í enska boltanum Enski boltinn Arnór fékk allt greitt frá Rússunum og saknar landsliðsins Fótbolti Lengjubikarinn: Fylkir vann Breiðablik og FH skoraði sjö Íslenski boltinn Skoða stækkun typpa í skíðastökki Sport Arteta með lykilmenn meidda og svaraði ásökunum Enski boltinn Brunaði niður brekkuna viku eftir að hafa slitið krossband Sport Með móral eftir djammið og sendu þýfið á ÓL Sport Guðmundur gerði sínu gamla liði grikk með marki á elleftu stundu Handbolti Fleiri fréttir Dagskráin í dag: Risa dagur í enska boltanum Risa sigur fyrir Leeds United Arteta með lykilmenn meidda og svaraði ásökunum Segir fótboltasérfræðinga bera ábyrgð Úlfar í sauðagæru? „Myndi segja að þetta sé framsækin nálgun“ Sakar Arsenal um virðingarleysi Leicester missir sex stig og er í mikilli hættu á að falla annað árið í röð Arne Slot: Jérémy Jacquet er gríðarlegt efni Casemiro í viðtali við Sýn Sport: „Hann veit hvernig stuðningsmenn vilja spila“ Skilur ekki af hverju Guéhi má ekki spila úrslitaleikinn Liverpool seinkaði komu Jeremy Jacquet af ásettu ráði Manchester City mætir Arsenal í úrslitaleik Mikil óvissa uppi varðandi Guardiola Enginn Ásgeir í öflugri einkadeild Seðlabankans Á Man. City séns? „Þetta rokkar allt of mikið hjá þeim“ Chelsea reyndi nýstárlega aðferð til að stoppa hornin hjá Arsenal Guardiola segir að pressan sé á eyðsluseggjunum í deildinni Chelsea fann aldrei glufu og Arsenal fer á Wembley Andri aftur með og loksins vannst sigur Enginn vill efnilega Liverpool-manninn Afar rólegur lokadagur félagaskiptagluggans Vilja banna krökkum að skalla boltann í fótbolta Chelsea tók fyrirliða Strasbourg til baka Tottenham vann Arsenal í baráttu um skoskan táning Sláin inn í þægilegum sigri Sunderland Mateta fer ekki til Mílanó Kvennalið Arsenal vann sér inn meira en 280 milljónir króna Szoboszlai segir að framtíð hans hjá Liverpool sé „ekki í hans höndum“ Liverpool keypti varnarmann fyrir tíu milljarða en fær hann ekki fyrr en í sumar Sjáðu sturlað mark Solanke og ótrúlegar lokamínútur á Old Trafford Sjá meira