Skoraði 27 stig með vinstri 8. desember 2006 17:45 Larry Bird er hér í baráttu við vin sinn og helsta keppnaut á ferlinum, Magic Johnson hjá LA Lakers NordicPhotos/GettyImages
Körfuboltagoðsögnin Larry Bird sem lék með Boston Celtics á árum áður varð fimmtugur í gær og í tilefni af því var heill dagur helgaður ferli þessa frábæra íþróttamanns á NBA TV sjónvarpsstöðinni. Þar sögðu margir af félögum hans og keppinautum skemmtilegar sögur af honum. Bird var frægur fyrir að gefa út stórar yfirlýsingar fyrir leiki og þótti með afbrigðum hrokafullur, en þessi hroki var í raun aðeins sálfræðihernaður sem hann beitti mótherja sína með góðum árangri. Bird hefur verið minnst sem eins mesta sigurvegara sem stigið hefur inn á körfuboltavöllinn. Miðherjinn Bill Walton var sjálfur vel liðtækur á körfuboltavellinum, en hann spilaði til skamms tíma með Bird hjá Boston. Í þætti um Bird á NBA TV í gær sagði Walton sögur af félaga sínum og hvernig hann hefði spáð því fyrir útileikjaferðalög að hann ætti eftir að verða með ákveðið mörg stig og fráköst að meðaltali - og stóðust þessar spár hans yfirleitt eins og stafur á bók. Walton sagði að í eitt skiptið hefðu sér þó gjörsamlega fallið hendur þegar Bird lýsti því yfir fyrir lokaleik á erfiðu keppnisferðalagi að hann ætlaði að spila að minnsta kosti þrjá leikhluta þar sem hann notaði aðeins vinstri hendina til að skjóta. Félagar hans hlógu að honum, en hættu að hlæja þegar Bird hafði skorað 27 stig eftir þrjá leikhluta - bara með vinstri hendinni - og sigurinn var auðveldlega í höfn. Vart þarf að taka fram að Boston vann alla leikina á ferðalaginu.
Erlendar Íþróttir Körfubolti NBA Mest lesið Svakaleg slagsmál í æfingarleik á Spáni Fótbolti Dagný kveður West Ham með tárin í augunum Enski boltinn „Ekki sáttir við að Íslendingur kæmi að kenna þeim“ Fótbolti Stúkan: Getur KR fallið úr deildinni? Íslenski boltinn Framari týndi boltanum í miðjum leik og Rikki G var alveg gáttaður Íslenski boltinn Blikarnir hoppuðu út í á Fótbolti Reyndu að ráða Solskjær áður en þeir réðu svo Heimi Hallgríms Fótbolti Trump réði sjálfan sig í stórt starf á Ólympíuleikunum Sport Markvörður íslenska liðsins með fimm mörk Handbolti Sjáðu Hákon leggja upp mark fyrir Giroud Fótbolti Fleiri fréttir Öruggar með besta árangur Íslands á EM frá upphafi Ákærður fyrir að hnupla treyju LeBron sem seldist seinna á nær hálfan milljarð Ísland í átta liða úrslit eftir ótrúlega endurkomu Dildó-faraldurinn heldur áfram í WNBA Sigtryggur Arnar í mjög fámennan hóp í sögu landsliðsins „Hættiði að henda dildóum inn á völlinn“ Stórskotasýning Sigtryggs dugði ekki til sigurs Trúðurinn Arenas í vondum málum eftir handtöku Grindavík fær leikstjórnanda frá Grikklandi Stórt tap á Ítalíu Ísland mátti þola stórt tap Luka framlengir til þriggja ára í Los Angeles Fékk vægt áfall: „Með fullt af missed calls“ Stjórnendur NBA reyna að sannfæra Real Madrid og fleiri forrík félög KR sækir ungan bakvörð „Sýna að maður eigi það skilið“ Segir að þeim besta í heimi sé skítsama Álftanes bætir Bandaríkjamanni við hópinn „Númer eitt, tvö og þrjú að knúsa þau sem mest“ Callum Lawson aftur til Valsmanna Þrír verða heima meðan landsliðið fer til Ítalíu Skora á KKÍ að sniðganga Ísrael: „Íþróttahreyfingin ekki undanskilin ábyrgð“ Semple til Grindavíkur NBA stjarna sökuð um að stela tugum milljóna frá spilavítum Gamall Stjörnumaður kemur aftur til Íslands og semur við Álftanes Kynlífsleikfangi hent inn á völlinn í miðjum leik „Erum að einblína á það sem er að gerast á vellinum“ Í þrjátíu mánaða fangelsi fyrir að hrella Caitlin Clark Bað hennar í íþróttahúsinu þar sem allt byrjaði Mario fer ekki á EM – fimm dottnir úr hópi Íslands Sjá meira