Slátur í Fríkirkjunni 2. janúar 2007 08:00
Miðvikudaginn 3. janúar mun tónsmíðafélagið S.L.Á.T.U.R. halda lúðratónleika í Fríkirkjunni klukkan 20. Saman er kominn hópur frumkvöðla í ný-sensjúalískum tónsmíðum. Um er að ræða 6 manna hóp flytjenda er leika á lúðra en tveir af þeim eiga einnig verk á tónleikunum. Flutt verður ný tónlist eftir Áka Ásgeirsson, Benedikt Hermann Hermannsson, Guðmund Stein Gunnarsson, Inga Garðar Erlendsson, Maríu Huld Markan Sigfúsdóttur og Pál Ivan Pálsson. Tónlistin er bæði framsækin og ómfögur, ágeng en vinaleg. Flytjendur eru Áki Ásgeirsson, Eiríkur Orri Ólafsson, Helgi Hrafn Jónsson, Ingi Garðar Erlendsson, Sigurður Már Valsson og Sturlaugur Björnsson. Öll verkin eru einungis fyrir málmblásturshljóðfæri svo sem trompeta, básúnur, horn og túbu. S.L.Á.T.U.R. stendur fyrir Samtök listrænt ágengra tónsmiða umhverfis Reykjavík og eru samtökin eldri en marga grunar. Um er að ræða hóp ungra og ágengra tónskálda sem staðið hafa fyrir ýmsum uppákomum, árlegri sumarsólstöðuhátíð auk ýmissa uppákoma í húsnæði félagsins að Hverfisgötu 32. Löng hefð hefur skapast hér á landi og víðar fyrir lúðratónleikum í kringum nýár. Þátttakendur hafa sína persónulegu sýn á viðfangsefnið sem kann að koma nýstárlega fyrir sjónir oft á tíðum.
Mest lesið Hvetur fólk til að taka sjálfu með „þessu glæsiklofi“ Lífið Skoðanabræður hætta göngu sinni: „Takk fyrir okkur“ Lífið Myndaveisla: Ærandi pollagallastemming í Eyjum Lífið Rod Stewart sýnir Ozzy taka sjálfur í himnaríki Lífið Hermína sem missti folald og móðurlaus Tígull fundu hvort annað Lífið Fann ástina á Balí en nýtur hennar í Kóreu Lífið Menningarperlan aftur komin í sitt gamla horf Lífið „Stundum finnst mér hún vera farin þó hún sé enn á lífi“ Lífið „Þarna fylltist hjartað af hamingju“ Lífið Sweeney sökuð um kynþáttahyggju Lífið Fleiri fréttir „Öll dýrin í skóginum voru vinir“ Úr kjallaranum hjá mömmu yfir á stóra sviðið Opnar sig um stormasamt hjónaband á nýju plötunni Borgin býður í tívolíveislu Dylan leggur blátt símabann á tónleikagesti „Gerum allt fyrir konurnar í okkar lífi“ Quarashi á Lopapeysunni: „Við erum synir Akraness“ „Svo leiðinlegt að pæla hvað öðru fólki finnst“ Forsala á Kaleo seldist upp á innan við mínútu Sjá meira