Tilfinningarík tónlist 3. janúar 2007 16:15 Hjörleifur Valsson fiðluleikari Leikur ásamt Antoníu Hevesi í Hafnarborg. MYND/E.ól
Hjörleifur Valsson fiðluleikari og Antonía Hevesi píanóleikari koma fram á hádegistónleikum í Hafnarborg á morgun. Yfirskrift tónleikanna er „Ljúflingslög“ en að sögn Antoníu verður leitast við að hafa andrúmsloftið rólegt og afslappandi og munu þau flytja íslensk sönglög í útsetningu Atla Heimis Sveinssonar tónskálds ásamt lögum eftir Vivaldi og Mozart. Hjörleifur Valsson er mjög virkur í íslensku tónlistarlífi og kemur víða við sem fiðluleikari auk þess að kenna fiðluleik við Tónlistarskóla Hafnarfjarðar. Hann leikur á hljóðfæri smíðuð af Antonio Stradivari, Christophe Landon og Hans Jóhannssyni. Hafnarborg, menningar- og listastofnun Hafnarfjarðar, hefur staðið fyrir tónleikum í hádegi einu sinni í mánuði og fer vel á því að hefja árið á ljúfu nótunum. Tónleikarnir standa yfir í um hálfa klukkustund og eru sérstaklega hugsaðir sem tækifæri fyrir fólk sem starfar í miðbæ Hafnarfjarðar til að njóta góðrar tónlistar í hádegishléi. Listrænn stjórnandi þeirra er Antonía Hevesi. Tónleikarnir eru í boði Hafnarborgar og öllum opnir meðan húsrúm leyfir og hefjast þeir kl. 12.
Mest lesið Vill 700 milljónir fyrir höllina Lífið Drengurinn sem dó Lífið Prinsinn og prinsessan ætla að flytja heim á næsta ári Lífið Geoff og Ásta Margrét nýtt par Lífið Nakinn á kóræfingu Lífið „Þetta er bara fjárhagslegt ofbeldi“ Lífið Laufey fékk sæta kveðju frá yngsta Grammy-verðlaunahafa sögunnar Lífið Ólöf og Magnús ástfangin á frumsýningu Menning Hestastelpa úr sveit og sjóðheitur hönnuður Menning Vetrarhátíðin sjaldan verið stærri Menning Fleiri fréttir „Hún er komin til að vera“ Byrjaði allt í blokkinni í Breiðholti Stjórinn mótmælir ICE með lagi um Minneapolis Íslenskur tónlistarmaður í lykilhlutverki Högni hjálpar fólki að slaka á Kristinn Svavarsson er látinn Hætta óvænt við tónleikaferðalög sín „Þetta er ekki uppgjör á mínu uppeldi“ Skilur meðvirkni eftir í fortíðinni Rugluðust á Laufeyju og „Megan“ „Ég mun aldrei stíga á svið í Bandaríkjunum aftur“ Nýtt lag frá Halla Reynis sex árum eftir andlát hans Vinsælustu lögin á Bylgjunni 2025 Sjá meira