Ungir spreyta sig 26. febrúar 2007 06:30 Tónskáldið Giacomo Puccini Nemendur í Óperustúdíói Íslensku óperunnar æfa tvo einþáttunga.
Ekki verður sýningum fyrr lokið á Flagara í framsókn í Íslensku óiperunni í Ingólfsstræti en það koma nýjar sviðsetningar upp. Það er tveir ástsælir einþáttungar eftir meistarann Giacomo Pucchini sem Óperustúdíó Íslensku óperunnar stendur fyrir: Systur Angelicu og Gianni Schicchi. Er frumsýning fyrirhuguð 21. mars. Æfingar eru komnar vel á veg og taka yfir þrjátíu söngnemendur og fjörtíu nemendur í hljóðfæraleik þátt í verkefninu. Þetta er fjórða árið í röð sem Íslenska óperan stendur fyrir sýningarhaldi á vegum Óperustúdíós og og reynsla síðustu þriggja ára hefur sýnt að það er mikill áhugi fyrir verkefninu bæði meðal þátttakenda sem og áhorfenda. Það er Glitnir sem leggur sviðsetningunni lið með fjárstyrk. Hljómsveitarstjóri er Daníel Bjarnason og leikstjóri Ingólfur Níels Árnason. Leikmynda – og búningahönnuður Óperustúdíósins er Hlín Gunnarsdóttir og ljósahönnuður Jóhann Bjarni Pálmason. Ingólfur Níels segir það mikilvægt fyrir söngnemendur að fá tækifæri til að taka þátt í verkefni sem þessu; „í Óperustúdíóinu fá nemendur tækifæri til að taka þátt í verkefni sem unnið er að öllu leyti eins og önnur verkefni Íslensku óperunnar og í óperuhúsum almennt. Það er hægt að líta á þátttökuna sem viðbót við námið, hér fá nemendurnir tækifæri til að spreyta sig í leiklist og sviðshreyfingum samhliða söngnum á meðan skólarnir leggja meiri áherslu á söng og raddþjálfun.” Óperustúdíóið er starfrækt í samvinnu við tónlistarskóla á höfuðborgarsvæðinu. Einþáttungarnir tveir er löngu þekktir og hafa verið fluttir hér áður: þá samdi tónskáldið sem hluta af Þríleik og ætlaðist til að þeir væru fluttir saman, Il tabarro, Suor Angelica, og Gianni Schicchi. Verkið var frumflutt 1918 í Metropolitan Óperunni í New York. Il Tabarro er samið í ætt verismo, Systir Angelica er kirkjulegt verk meðan Gianni er kómedía. Verkefni Óperustudíósins geyma tvær víðkunnar og frægar aríur: O mio babbino caro og Senza mamma.
Mest lesið Sjö dýrustu eignirnar sem seldust árið 2025 Lífið „Ungir drengir eru búnir að láta segja sér að þeir séu eitraðir“ Lífið „Ég er að heiðra litla Aron“ Tónlist Gummi Emil á leið í fæðubótarefnin Lífið Karlmennskan rís úr öskunni Lífið Alan Carr á Íslandi Lífið Tæplega 28 þúsund í mat á mánuði: „Hvar voru þið að svindla?“ Lífið Fannar og Vala keyptu fyrir 170 milljónir í Kjalarlandi Lífið Vill 700 milljónir fyrir höllina Lífið Viðar Örn hefur störf á Sólheimum Lífið Fleiri fréttir „Ég er að heiðra litla Aron“ „Hún er komin til að vera“ Byrjaði allt í blokkinni í Breiðholti Stjórinn mótmælir ICE með lagi um Minneapolis Íslenskur tónlistarmaður í lykilhlutverki Högni hjálpar fólki að slaka á Kristinn Svavarsson er látinn Hætta óvænt við tónleikaferðalög sín „Þetta er ekki uppgjör á mínu uppeldi“ Skilur meðvirkni eftir í fortíðinni Rugluðust á Laufeyju og „Megan“ „Ég mun aldrei stíga á svið í Bandaríkjunum aftur“ Nýtt lag frá Halla Reynis sex árum eftir andlát hans Vinsælustu lögin á Bylgjunni 2025 Sjá meira