Allir í stuði á Evróputúr 8. mars 2007 09:30 Benedikt Hermann Hermannsson og félagar eru á tónleikaferð um Evrópu.
Hljómsveitin Benni Hemm Hemm er á tónleikaferðalagi um Evrópu sem stendur yfir til 15. mars. Sveitin hélt á dögunum tvenna tónleika í París og tvenna í Köln og Frankfurt við góðar undirtektir. Í fyrrakvöld spilaði hún síðan í St. Gallen í Sviss og í Vín í gærkvöldi. „Þetta hefur gengið rosavel og er búið að vera mjög gaman,“ segir Benedikt Hermann Hermannsson, forsprakki sveitarinnar. Alls eru níu meðlimir Benna Hemm Hemm á ferðalaginu um Evrópu og ferðast þau um í sendiferðabíl. Hefur að vonum lítill tími gefist í skoðunarferðir. „Hingað til hefur dagskráin verið ansi þétt og hún er ekkert að fara að grisjast neitt. Það er rétt að það náist að keyra á milli og spila. Við þurfum að vakna kl. sex til sjö á morgnana og keyra og þá rétt náum við „sándtékki“,“ segir Benni. Hann segir að stemningin í sendiferðabílnum sé mjög góð. „Við erum með Bruce Lee í videotækinu, Toto í græjunum og allir eru í stuði.“
Mest lesið Fannar og Vala keyptu fyrir 170 milljónir í Kjalarlandi Lífið Viðar Örn hefur störf á Sólheimum Lífið Vill 700 milljónir fyrir höllina Lífið Drengurinn sem dó Lífið Geoff og Ásta Margrét nýtt par Lífið Prinsinn og prinsessan ætla að flytja heim á næsta ári Lífið Hefur verið 73 kíló í 55 ár en bætti aðeins á sig þegar bjórinn var leyfður Lífið „Þetta er bara fjárhagslegt ofbeldi“ Lífið Laufey fékk sæta kveðju frá yngsta Grammy-verðlaunahafa sögunnar Lífið Nakinn á kóræfingu Lífið Fleiri fréttir „Hún er komin til að vera“ Byrjaði allt í blokkinni í Breiðholti Stjórinn mótmælir ICE með lagi um Minneapolis Íslenskur tónlistarmaður í lykilhlutverki Högni hjálpar fólki að slaka á Kristinn Svavarsson er látinn Hætta óvænt við tónleikaferðalög sín „Þetta er ekki uppgjör á mínu uppeldi“ Skilur meðvirkni eftir í fortíðinni Rugluðust á Laufeyju og „Megan“ „Ég mun aldrei stíga á svið í Bandaríkjunum aftur“ Nýtt lag frá Halla Reynis sex árum eftir andlát hans Vinsælustu lögin á Bylgjunni 2025 Sjá meira