Neytandinn sem auðlind 19. mars 2007 05:30 Botnlaus viðskiptahalli þjóðarinnar bendir til þess að verðmætasta auðlind hennar, neytendastofninn, sé gróflega ofnýttur, enda hefur hvaða sótraftur sem er ótakmarkað veiðileyfi á hinn íslenska neytanda. Því væri skynsamlegt að koma hér á kerfi til að vernda neytandann og tryggja að ekki verði svo nærri honum gengið að hann og þjóðin öll verði gjaldþrota. Langbesta aðferðin sem fundin hefur verið upp til að vernda auðlindir er hið eitursnjalla kvótakerfi. Síðan það var tekið upp við fiskveiðistjórnun hafa bæði þorskurinn og útgerðarmenn svifið um með sælubros á vör. KVÓTAKERFI í verslun yrði þannig að verslunarkvóta væri úthlutað til þeirra sem nú eru að berjast við að stunda þessa áhættusömu atvinnugrein. Kvótaeignin yrði í hlutfalli við veltu hverrar verslunar undanfarin þrjú ár. Kvótalausu fólki væri að sjálfsögðu óheimilt að stunda verslun og viðskipti þótt hugsanlega mætti heimila söfnurum að skiptast á frímerkjum innbyrðis. KVÓTAKERFI í verslun mundi gera verslun í landinu hagkvæmari og skilvirkari. Öflugir aðilar gætu keypt verslunarkvótann af eigendum gamalla og úreltra smáverslana, þannig að þeir sem nú reka óarðbærar búðarholur í fámennum krummaskuðum gætu selt verslunarkvóta sinn og sest í helgan stein í Reykjavík. Einnig gætu verslunarkvótaeigendur leigt út verslunarkvóta sinn og stundað þannig arðbær viðskipti án þess að þurfa framar að standa í að vigta ketfars. KVÓTAKERFI í verslun mundi stuðla að skynsamlegri versunarrekstri. Ein verslun í hverjum landsfjórðungi og tvær í Reykjavík gætu hæglega afkastað öllum viðskiptum sem íslenski neytendastofninn getur staðið undir. Til að ná þjóðarsátt um kvótakerfi í verslun mætti slaka inn í stjórnarskrána málamyndaákvæði um að neytandinn sem auðlind yrði áfram hluti af þjóðinni og eign þjóðarinnar ... bla ... bla ... bla ... þótt leyfið til að nýta auðlindina og braska með hana væri að sjálfsögðu í höndum kaupmanna og afkomenda þeirra. Þetta þolir enga bið. Verndun íslenska neytandastofnsins er stærsta hagsmunamál samtímans. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Þráinn Bertelsson Mest lesið Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason Skoðun
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun