Tónamínútur fyrir flautu og píanó 12. maí 2007 14:15 Atli Heimir Sveinsson tónskáld
Verk Atla Heimis Sveinssonar, Tónamínútur, verður flutt á tónleikum í Þjóðleikhúsinu á morgun í tilefni af Listahátíð í Reykjavík. Tónamínútur er verk fyrir einleiksflautu og flautu og píanó en flytjendur verða Áshildur Haraldsdóttir flautuleikari, Anna Guðný Guðmundsdóttir píanóleikari og tónskáldið sjálft. Atli Heimir hefur verið leiðandi tónskáld í íslensku listalífi í áratugi og samið fjölda tónverka. Verk fyrir flautu eru áberandi á verkaskrá hans enda gjörþekkir hann hljóðfærið, möguleika þess og takmarkanir. Hann dregur fram eðli eða karakter flautunnar og skrifar tónlist þar sem syngjandi flaututónninn jafnt sem lipurð hljóðfærisins fær að njóta sín á tónsviðinu öllu. Í því samhengi má nefna að árið 1976 hlaut Atli tónskáldaverðlaun Norðurlandaráðs fyrir flautukonsert sinn. Áshildur Haraldsdóttirflautuleikari Í fyrra kom út diskur sem inniheldur öll verk hans fyrir einleiksflautu og flautu og píanó í flutningi Áshildar Haraldsdóttur, tónskáldsins sjálfs og Önnu Guðnýjar Guðmundsdóttur og hlaut sá diskur tilnefningu til Íslensku tónlistarverðlaunanna sem besti diskur ársins 2006. Á tónleikum Listahátíðar verða flutt nokkur þeirra verka sem sá diskur hefur að geyma: Xantis, fyrir flautu og píanó, frá árinu 1975, Lethe fyrir altflautu frá 1987, 21 tónamínúta fyrir einleiksflautu frá 1981 og Sónata fyrir flautu og píanó frá 2005. Tónleikarnir hefjast kl. 15. á morgun.
Mest lesið Sjö dýrustu eignirnar sem seldust árið 2025 Lífið Tæplega 28 þúsund í mat á mánuði: „Hvar voru þið að svindla?“ Lífið Gummi Emil á leið í fæðubótarefnin Lífið „Ég er að heiðra litla Aron“ Tónlist Drengurinn sem dó Lífið Karlmennskan rís úr öskunni Lífið „Ungir drengir eru búnir að láta segja sér að þeir séu eitraðir“ Lífið Viðar Örn hefur störf á Sólheimum Lífið Alaska og Birnir sigursæl Menning Alan Carr á Íslandi Lífið Fleiri fréttir „Ég er að heiðra litla Aron“ „Hún er komin til að vera“ Byrjaði allt í blokkinni í Breiðholti Stjórinn mótmælir ICE með lagi um Minneapolis Íslenskur tónlistarmaður í lykilhlutverki Högni hjálpar fólki að slaka á Kristinn Svavarsson er látinn Hætta óvænt við tónleikaferðalög sín „Þetta er ekki uppgjör á mínu uppeldi“ Skilur meðvirkni eftir í fortíðinni Rugluðust á Laufeyju og „Megan“ „Ég mun aldrei stíga á svið í Bandaríkjunum aftur“ Nýtt lag frá Halla Reynis sex árum eftir andlát hans Vinsælustu lögin á Bylgjunni 2025 Sjá meira