Spáir tveimur undankeppnum að ári 12. maí 2007 13:00 Jónatan Garðarsson spáði fyrir um yfirtöku austur-evrópskra landa á Eurovision fyrir þremur árum. „
Þetta er nákvæmlega það sem ég spáði fyrir um fyrir þremur árum,“ sagði Jónatan Garðarsson, þaulreyndur Eurovision-spekingur, um úrslitin í undankeppni Eurovision. Mikillar óánægju hefur orðið vart bæði á Íslandi og í löndum á borð við Noreg, Danmörku og Holland, þar sem enginn keppandi frá vesturhluta Evrópu komst áfram. „Ég var á fundi fyrir þremur árum þar sem farið var yfir fyrirhugaða forkeppni. Ég benti á að það væru allar líkur á því að þær þjóðir sem hafa mestan áhuga á keppninni, Austur-Evrópuþjóðirnar sem eru að koma nýjar inn í hana, myndu yfirtaka hana,“ sagði Jónatan. „Fólk hélt að þetta myndi jafna sig, og mér sýndist í fyrra að það væri reyndin. Skiptingin var eðlilegri þá, en núna er þetta að koma í ljós,“ sagði hann. Að sögn Jónatans verður keppnisfyrirkomulagi breytt á næsta ári. „Ég veit ekki betur en að það verði tvær forkepnir. Þá færu stóru löndin fjögur og sigurþjóðin í úrslitakeppnina, ásamt tíu lögum úr hvorri undankeppni. En þeir eru að vandræðast með hvernig skiptingin eigi að vera, svo sanngirni sé gætt,“ sagði hann. Einhverjir hafa mælt með því að skipt væri eftir tímabeltum, en Jónatan telur þó líklegra og jafnframt betra að dregið verði í forkeppnirnar. „Það verður að vera einhvers konar jafnvægi á milli menningarheima, eins og er núna, þó að okkur finnist það ekki atkvæðalega séð,“ sagði hann og hló við.
Mest lesið „Ég er að heiðra litla Aron“ Tónlist Gummi Emil á leið í fæðubótarefnin Lífið „Ungir drengir eru búnir að láta segja sér að þeir séu eitraðir“ Lífið Fannar og Vala keyptu fyrir 170 milljónir í Kjalarlandi Lífið Alan Carr á Íslandi Lífið Viðar Örn hefur störf á Sólheimum Lífið Vill 700 milljónir fyrir höllina Lífið Drengurinn sem dó Lífið Geoff og Ásta Margrét nýtt par Lífið Hefur verið 73 kíló í 55 ár en bætti aðeins á sig þegar bjórinn var leyfður Lífið Fleiri fréttir „Ég er að heiðra litla Aron“ „Hún er komin til að vera“ Byrjaði allt í blokkinni í Breiðholti Stjórinn mótmælir ICE með lagi um Minneapolis Íslenskur tónlistarmaður í lykilhlutverki Högni hjálpar fólki að slaka á Kristinn Svavarsson er látinn Hætta óvænt við tónleikaferðalög sín „Þetta er ekki uppgjör á mínu uppeldi“ Skilur meðvirkni eftir í fortíðinni Rugluðust á Laufeyju og „Megan“ „Ég mun aldrei stíga á svið í Bandaríkjunum aftur“ Nýtt lag frá Halla Reynis sex árum eftir andlát hans Vinsælustu lögin á Bylgjunni 2025 Sjá meira