Frosti og Þröstur hættir í Mínus 16. júní 2007 00:15 Rokksveitin Mínus hefur misst tvo máttarstólpa úr sínum herbúðum, þá Frosta Logason og Þröst Jónsson.
Gítarleikarinn Frosti Logason og bassaleikarinn Þröstur Jónsson eru hættir í rokksveitinni Mínus. Í stað Þrastar hefur verið ráðinn Sigurður Oddsson, söngvari Future Future, en enginn gítarleikari verður ráðinn í stað Frosta. „Samstarfið hjá okkur er orðið dautt einhvern veginn og það er langt síðan það varð þannig,“ segir Frosti Logason, sem er einn af stofnendum Mínuss. „Ég var sjálfur með þær hugmyndir að sigla þessu fleyi í höfn og segja þetta gott. Þröstur var sammála því en hinir ekki. Ég ber virðingu fyrir því ef þeir vilja halda áfram en ég vil ekki hjakkast í þessu lengur. Það er mjög jákvætt að það sé gerð breyting fyrir alla sem að málinu komu en að halda áfram með ástandið óbreytt hefði bara verið áframhaldandi moð.“Ekki vinir í mörg árAðeins eru nokkrar vikur liðnar síðan fjórða hljóðversplata Mínuss, The Great Northern Whalekill, kom út og því koma tíðindin mjög á óvart. „Það var búið að taka langan tíma að gera plötuna og koma henni í framkvæmd og það hefði verið leiðinlegt að hætta án þess að klára hana með allt þetta ókláraða efni sem við áttum. Meiningin var að fylgja þessu eftir en við erum búnir að ræða þetta mál og eftir þær samræður langaði þá að halda áfram. Við skiljum í mesta bróðerni en við höfum ekki verið vinir í mörg, mörg ár. Við höngum ekkert saman og erum búnir að láta þetta ganga mikið lengur en eðlilegt er.“ Kominn yfir söknuðinnAðspurður segist Frosti ekki sakna Mínuss eftir öll þessi ár. „Við áttum mjög góðan tíma fyrir nokkrum árum en þetta er bara svo löngu búið. Maður er fyrir löngu kominn yfir þann söknuð.“ Vítamínsprauta í rassinnSöngvarinn Krummi segir að það sé bæði erfitt og skrítið að kveðja þá Frosta og Þröst en telur að spennandi hlutir séu framundan. „Það hefði verið hálfgerð synd að leggja niður bandið. Við erum nýbúnir að gefa út plötu og allt það og okkur fannst eðlilegast að halda áfram. Það var mjög mikill metnaður fyrir því,“ segir Krummi, sem býst við breytingum á stefnu sveitarinnar. „Þetta er eins og ein góð og feit vítamínsprauta í rassgatið að fá nýjan meðlim og leyfa bandinu að þróast í nýja átt.“ Útgáfa erlendis í haustNæst á dagskrá hjá Mínus er upphitun fyrir bandarísku dauðarokksveitina Cannibal Corpse á Nasa hinn 30. júní. Í haust er síðan stefnan sett á að gefa nýju plötuna út erlendis og fylgja henni þar eftir.freyr@frettabladid.is
Mest lesið Frumsýning hjá Auðuni: Langaði til að gera fallegt náttúruklám Lífið Molly-Mae og Tommy Fury saman á ný Lífið Leikstjórinn James Foley er látinn Lífið Hönnunarunnendur skáluðu í Kópavogi Lífið Drengurinn Fengurinn hlaut styrk úr Minningarsjóði Svavars Péturs Lífið Heklaði sér fyrir útborgun í húsi í Þingholtunum Lífið Kristín Péturs orðin tveggja drengja móðir Lífið Typpi í einu gati, tæki í öðru Lífið Stefán Einar keypti 145 milljón króna þakíbúð Lífið Stjörnufans í sumarselskap Lífið Fleiri fréttir „Maður er í elífu straffi sem tónlistarmaður, getur ekki gert neitt annað“ Óhræddir við raunverulegar tilfinningar Kaleo með tónleika á Íslandi í fyrsta sinn í áratug Davíð í Kaleo bjó til flöskutrommusett Fimmtán ára og gefur út frumsamda plötu Elti ástina til Íslands „Þetta er allt partur af plani hjá guði“ Eyddi unglingsárunum inni í þvottahúsi Gefa út sína fyrsta plötu síðan 2001 Þrumustuð þegar lag Barnamenningarhátíðar var frumflutt Sækir innblásturinn í rússnesku ræturnar Sjá meira