Tvennir tónleikar 27. júní 2007 03:30 Hljómsveitin Ljótu hálfvitarnir heldur tvenna útgáfutónleika á næstunni.
Þingeyska gleðisveitin Ljótu hálfvitarnir, sem nýlega gaf út sína fyrstu plötu, heldur tvenna útgáfutónleika á næstunni. Fyrri tónleikarnir verða í Borgarleikhúsinu á laugardag en hinir síðari í Ýdölum í Aðaldal viku síðar. Ljótu hálfvitarnir hafa vakið athygli fyrir grípandi lagasmíðar, hnyttna texta og afar líflega framkomu á tónleikum. Hefur lagið Sonur hafsins hljómað talsvert í útvarpinu að undanförnu. Alls eru þrettán lög á plötunni og sömdu meðlimir sveitarinnar þau í sameiningu. Um upptökur sáu þeir Guðmundur Kristinn Jónsson og Sigurður Guðmundsson, oft kenndir við Baggalút og Hjálma. Miðaverð á tónleikana í Borgarleikhúsinu er 1.800 krónur en 1.500 á tónleikana í Ýdölum.
Mest lesið Tók sterkan kjúklingabita í stað þess að styggja Íslendinga Lífið Brjánn hefur göngu sína í haust: „Erum við að falla úr efstu deild í Norður-Kóreu?“ Lífið Egill, Valgeir og Sigurður Bjóla saman á sviði í fyrsta sinn síðan 1976 Lífið samstarf Rekur sögu sósunnar sem allir elska: „Pítusósan fæddist í Asparfellinu“ Lífið Marín Manda og Hannes Frímann trúlofuð Lífið „Mig langar ekki lengur að deyja“ Lífið „Ég mun lifa á þessum degi út ævina“ Lífið Terry Reid látinn Lífið Opnar femínískt myndlistagallerí í Vesturbænum Menning Áferðarfallegir en óeftirminnilegir fjórmenningar Gagnrýni Fleiri fréttir „Öll dýrin í skóginum voru vinir“ Úr kjallaranum hjá mömmu yfir á stóra sviðið Opnar sig um stormasamt hjónaband á nýju plötunni Borgin býður í tívolíveislu Dylan leggur blátt símabann á tónleikagesti „Gerum allt fyrir konurnar í okkar lífi“ Quarashi á Lopapeysunni: „Við erum synir Akraness“ „Svo leiðinlegt að pæla hvað öðru fólki finnst“ Forsala á Kaleo seldist upp á innan við mínútu Sjá meira