Gummi - Stafrænn Hákon - Þrjár stjörnur Steinþór Helgi Arnsteinsson skrifar 18. ágúst 2007 08:00 Þótt Gummi skrefi troðnar slóðnir er platan samt sem áður gæfuríkt skref.
Nýjum heimi ljóstrað uppÉg sá fyrst Stafrænan Hákon (eins manns verkefni Breiðhyltingsins Ólafs Josephssonar) þegar sveitin hitaði upp fyrir Godspeed You! Black Emperor. Fannst sveitin óttalegt mald í móinn og hún hitti ekki alveg í mark. Síðan þá hefur SH sent frá sér ágætis slatta af efni og alltaf hefur mér þótt það nokkuð stefnulaust, sæmilegt en ekki meira. Það er ekki fyrr en með útkomu Gumma að manni finnst SH hafa eitthvað fram að færa, að minnsta kosti þannig að vel þyki. Platan er gefin út af Resonant eins og flestar fyrri útgáfur SH en Resonant er afar smátt breskt plötufyrirtæki. Resonant státar af um 25 útgáfum og er mikill hluti þeirra af íslensku bergi brotinn, meðal annars plötur frá Ölvis, Borko og Sk/um. Einnig gaf fyrirtækið út einmenningsskífu Birgis úr Ampop, Blindfold, en Birgir setur einmitt afar sterkan svip á þessa nýju plötu SH.Gummi er fyrsta sungna plata SH og sú breyting hefur óneitanlega haft áhrif til hins betra. Lagið Hausi varar mann samt við því að söngur er ekki bara söngur og getur lent ofan garðs og neðan. Hið gullfalega og magnaða Kvef sannar samt hve mikið söngur getur gert fyrir lag. Ósungnu lögin eru reyndar nokkur ekkert síðri og hið Mogwai-lega Glussi sýnir að SH kann sitthvað fyrir sér í þeim efnum.Gummi er ekki frumlegasta plata sem maður hefur heyrt. Hér er troðin slóð fetuð en metnaðurinn, gaumgæfilegar útsetningar og nærgætni tónlistarmannsins opna manni nýjan heim á kunnuglegum stað. Helsti kostur Gumma er hversu samheldin platan er frá upphafi til enda, nær allan klukkutímann sem hann tekur í flutningi. Það er helst langdreginn endir margra laga og óþarflega löng bið á milli laga sem truflar mann. Pirringnum er samt aldrei ofaukið enda Gummi frekar andstæðan við pirring.
Mest lesið Frumsýning hjá Auðuni: Langaði til að gera fallegt náttúruklám Lífið Molly-Mae og Tommy Fury saman á ný Lífið Leikstjórinn James Foley er látinn Lífið Hönnunarunnendur skáluðu í Kópavogi Lífið Drengurinn Fengurinn hlaut styrk úr Minningarsjóði Svavars Péturs Lífið Kristín Péturs orðin tveggja drengja móðir Lífið Stefán Einar keypti 145 milljón króna þakíbúð Lífið Heklaði sér fyrir útborgun í húsi í Þingholtunum Lífið Glæsileg íbúð handboltakempu í Sigvaldahúsi Lífið Typpi í einu gati, tæki í öðru Lífið Fleiri fréttir „Maður er í elífu straffi sem tónlistarmaður, getur ekki gert neitt annað“ Óhræddir við raunverulegar tilfinningar Kaleo með tónleika á Íslandi í fyrsta sinn í áratug Davíð í Kaleo bjó til flöskutrommusett Fimmtán ára og gefur út frumsamda plötu Elti ástina til Íslands „Þetta er allt partur af plani hjá guði“ Eyddi unglingsárunum inni í þvottahúsi Gefa út sína fyrsta plötu síðan 2001 Þrumustuð þegar lag Barnamenningarhátíðar var frumflutt Sækir innblásturinn í rússnesku ræturnar Sjá meira