Industria verðlaunað fyrir sjónvarp um net 10. október 2007 04:15 Guðjón er framkvæmdastjóri íslenska tæknifyrirtækisins Industria sem auk þess að búa til hugbúnað fyrir miðlun stafræns efnis byggir upp ljósleiðaranet. „
Freewire“ er besta nýjungin á sviði sjónvarps sem dreift er með internettækni (Internet Protocol Television – IPTV) að mati dómnefndar Global Telecoms Business magazine Innovation Awards. Industria, ásamt breskum samstarfsaðila að nafni Inuk Networks, vann til verðlaunanna nýverið. Stefán Baxter, þróunarstjóri Industria, og Marcus Liassides, framkvæmdastjóri Inuk Networks, veittu verðlaununum viðtöku á verðlaunahátíð í Whitehall í Lundúnum að viðstöddum um 180 stjórnendum fjarskiptafyrirtækja víðs vegar að úr heiminum. Inuk hefur leitt innleiðingu Freewire-þjónustunnar, en henni er til að byrja með ætlað að veita öllum breskum háskólastúdentum aðgang að stafrænu sjónvarpi um internetið, að því er fram kemur í tilkynningu félaganna. „Gríðarlega góðar viðtökur Freewire gefa vísbendingar um að innan árs verður þetta stærsta IPTV-dreifingarnet Bretlands og muni jafnvel ná til sex milljóna notenda. Jafnframt stefnir Inuk á að bjóða sömu þjónustu til háskólastúdenta í Kanada fyrir lok þessa árs,“ segir þar, en Inuk valdi Zignal, alhliða hugbúnaðarlausn fyrir dreifingu á gagnvirku margmiðlunar- og sjónvarpsefni um internetið, sem Industria hefur þróað. „Meðal nýjunga sem ekki hafa sést áður í hugbúnaði af þessu tagi er möguleikinn á að taka við gagnvirkum sjónvarpsútsendingum beint í hemilistölvu, án þess að vera með sérstakan afruglara. Þá getur Zignal einnig dreift sjónvarpsefni í farsíma af þriðjukynslóð.“
Markaðir Mest lesið Matorka í Grindavík gjaldþrota Viðskipti innlent Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Viðskipti innlent Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Viðskipti innlent Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Allir Bónus vanilludropar innkallaðir Neytendur Fleiri fréttir Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Matorka í Grindavík gjaldþrota Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Sjá meira