Íslensk list aldrei meira metin 7. nóvember 2007 00:01 Jóhann Ágúst Hansen listaverkasali.
Íslenski listaverkamarkaðurinn hefur velt hærri upphæðum það sem af er ári en allt árið í fyrra. Nemur veltan á uppboðum fram að þessu rúmum 146 milljónum íslenskra króna, samanborið við 112 milljónir allt árið í fyrra. Þetta sýnir íslenska listaverkavísitalan sem fyrirtækið Hansen og synir ehf. heldur utan um. Tímabilið sem notað er til útreikninga vísitölunnar er frá 1985, þegar vísitalan var sett á gildið 100. Gildi hennar í dag er 333 og hefur hún því hækkað um 233 prósent frá þeim tíma. Hækkun hennar það sem af er ári nemur 93 prósentum. Tvö uppboð til viðbótar eru á döfinni fyrir jól; hjá Gallerí Fold og Arnason & Andonov. Því mun enn bætast við veltuna. Hansen og synir er í eigu Jóhanns Ágústs Hansen, listaverkasala í Gallerí Fold. Vísitalan er unnin upp úr gagnagrunni sem settur var saman á Bifröst sumarið 2006. Var það misserisverkefni fimm viðskiptafræðinemenda, þeirra á meðal Jóhanns, að skrá öll verk sem hafa verið boðin upp á almennum uppboðum á Íslandi frá 1956 til nútímans. Þetta voru rúmlega fimmtán þúsund listaverk eftir yfir þúsund íslenska höfunda. Síðan hefur Jóhann haldið utan um vísitöluna og uppfært gagnagrunninn. Verk sem seljast manna á milli, í galleríum og erlendis eru ekki tekin inn í vísitöluna.Talsverðar sveiflur í verðiLítil fylgni hefur verið milli listaverkavísitölunnar og neysluverðsvísitölunnar sem Hagstofan heldur utan um og mælir breytingar á almennu verðlagi. „Mun meiri sveiflur hafa verið í listaverkavísitölunni,“ segir Jóhann en bætir við að vísbendingar séu þó um að listaverkasalan fylgi almennum efnahag að einhverju leyti. „Þegar árar betur kaupir fólk listaverk og dregur úr því þegar harðnar í ári. En það er ekki beint samhengi milli vísitalnanna tveggja.“Frá árinu 2005 hefur meðalverð seldra listaverka á uppboðum rokið upp. Í fyrra var meðalverð verka seldra á uppboðum 178.911 krónur. Það sem af er þessu ári er meðalverðið 345.361 krónur. Verkum í sölu fjölgaði líka töluvert í fyrra. „Með hækkandi verði koma fleiri verk í sölu, það helst dálítið í hendur. Umfangið á listaverkamarkaðnum hefur því aukist bæði í fjölda verka og krónutölu.“Mikill gangur erlendisVerð á íslenskum verkum seldum á uppboðum erlendis hefur einnig hækkað verulega á þessu ári. Verk hafa selst fyrir upphæðir sem aldrei hafa sést áður. Olíuverkið Hvítasunnudagur eftir Kjarval var slegið á rúmar fimmtán milljónir króna á uppboði hjá Bruun Rasmussen í Danmörku í upphafi þessa árs. Kaupandi þess verks var íslenskur fjárfestir. Til Íslands komið, eftir greiðslu allra gjalda í Danmörku og virðisaukaskatts, kostar verkið kaupandann nær 25 milljónir króna. Langdýrasta íslenska verkið sem selst hefur eftir íslenskan listamann frá upphafi er hins vegar Fivefold Eye Ólafs Elíassonar. Verkið, sem er skúlptúr úr stáli, fór á sem nemur áttatíu milljónum íslenskra króna fyrr í þessum mánuði.Jóhann segir langalgengast að þau íslensku verk sem best seljast á erlendum uppboðum fari til Íslendinga. Undantekningin sé verk þeirra Ólafs Elíassonar og Errós. „Lítið hefur selst eftir Ólaf sem hefur verið flutt hingað. Einhverjir Íslendingar hafa þó verið að kaupa ljósmyndaseríur hans og ódýrari myndir. Aftur á móti kemur afskaplega lítið af verkum eftir Erró hingað til lands. Þau sem hingað hafa komið í gegnum galleríin hafa heldur ekki selst á mjög háu verði. Það virðist vera tregða með hans verk hér. Á sama tíma hafa þau verið seld á mjög háu verði erlendis.“Ísland eltir erlenda verðþróunEllefu verk sem selst hafa á íslenskum uppboðum í ár komast á topp tuttugu listann yfir dýrustu verkin frá upphafi. Þar eru verk eftir Ásgrím Jónsson, Þorvald Skúlason, Þórarin B. Þorláksson, Jón Stefánsson, Kjarval, Kristján Davíðsson, Gunnlaug Blöndal og Nínu Tryggvadóttur. Lítið framboð hefur verið erlendis á verkum eftir þá listamenn sem selst hafa hvað dýrustu verði hér á landi. Verk eftir þá Svavar Guðnason og Kjarval eru þó undantekning á þeirri reglu. Á þessu ári hefur á sjöunda tug verka eftir Svavar selst á erlendri grundu. „Ein ástæðan fyrir þessari miklu hreyfingu á verkum eftir Svavar nú er að stór safnari í Danmörku, sem átti mikið af verkum eftir hann, hefur verið að losa um safnið sitt. Þá hefur Svavar verið vinsæll hjá ákveðnum efnameiri einstaklingum hérna heima, sem hefur ýtt undir framboðið.“Verðþróun á mörkuðum erlendis virðist að mörgu leyti stjórna verðmyndun hér á landi. „Verkin hér togast upp þegar þau hækka erlendis. Strax í kjölfarið á því að íslensk verk hafa selst dýru verði í útlöndum hefur verð verka rokið upp hérna. Og ekki endilega bara verk eftir sama listamann heldur einnig aðra. Strax eftir söluna á Hvítasunnudegi Kjarvals seldist til að mynda verk eftir Ásgrím á 8,9 milljónir hér heima. Það er hæsta verð sem fengist hefur fyrir íslenskt verk á uppboði hér.“
Fréttaskýringar Undir smásjánni Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Fleiri fréttir Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Sjá meira