Ofurleiðni er næsta skrefið 5. mars 2007 22:02 Doktor Gergory J. Yurek forstjóri American Superconductor Corporation MYND/American Superconductor Corporation
Hraðlestir sem snerta ekki jörðina, ofurrafgeymar og enn öflugri og kröftugri tölvur eru skammt undan. Efni sem nefnast háhita ofurleiðarar munu gera allt þetta að veruleika í framtíðinni. Árið 1987 lýsti Ronald Regan, þá forseti Bandaríkjanna, því yfir að nýir tímar væru að renna upp í sögu Bandaríkjamanna. „Áfanginn sem við höfum náð í ofurleiðni hefur fært okkur á þröskuld nýrrar aldar," sagði forsetinn. En 20 árum seinna hefur almenningur lítið séð af hinni nýju tækni - enn sem komið er. Þetta kemur fram í grein sem Jonathan Fildes skrifar á vef BBC í dag. Þar segir einnig að furleiðarar hafi fyrst verið fundnir upp 1911 af rannsakendum í Háskólanum í Leiden. Ofurleiðararnir hafa enga andstöðu gegn rafmagni sem flæðir í gegnum þá án þess að eitthvað fari til spillis. Til að byrja með sást þessu virkni aðeins í kældum efnum sem voru kæld niður í alkul. Síðar komust menn upp í -250 gráður. Stóri áfanginn náðist árið 1986. Tveir rannsakendur hjá IBM þeir Georg Bednorz og Alex Mueller uppgötvuðu keramik ofurleiðara sem hægt var að nota við -238 gráður. Paul Chu úr Houston Háskóla komst enn ofar eða í -182 gráður. Nú voru efnin kominn á svipað hitastig og fljótandi köfnunarefni. Vísindamenn héldu stærðarinnar ráðstefnu til að ræða áfangann en sú ráðstefna hefur oft verið nefnd Woodstock vísindanna. Málið var ekki eins einfalt og menn héldu í fyrstu og ómögulegt reyndist að koma tækninni í umferð. Þrátt fyrir tveggja áratuga rannsóknir er virkni keramik ofurleiðaranna enn rökrædd. „Ég held að væntingarnar hafi verið full óraunhæfar, Það tekur vanalega um tuttugu ár að koma uppfinningu sem er nýtt hugtak í gangið. Það sama á við um ofurleiðara," segir Dennis Newns hjá IBM. Fyrirtæki í Japan, Evrópu, Kína, Suður Kóreu og Bandaríkjunum eru að vinna og hanna ofurleiðara. Í Bandaríkjunum hefur fyrirtækinu „American Superconductor" tekist að búa til háhita ofurleiðarakapal sem tekur 150 sinnum meira rafmagn en kopar bræður hans. Áður fyrr reyndu menn að búa til þræði úr keramikinu en þeir brotnuðu bara. „Í dag notum við notum sömu tækni og notuð er í ljósleiðara. Glerstöng brotnar, en ef gerðir eru fínir glerþræðir þá virkar það," segir Greg Yurek forstjóri fyrirtækisins. Þegar er búið að leggja slíka kapla á stuttum köflum í Columbus, Ohio og fyrir liggur að leggja hálfrar mílu langan kapal á Long Island í New York. Lengri leiðir eru eru erfiðar, því það þarf að kæla kapalinn með fljótandi köfnunarefni. Það eru fleiri sem nota kapla frá „American Superconductor" Japanar nota nota þá í tilraunaverkefni sem er segulmögnuð hraðlest sem snertir ekki jörðina þegar hún þýtur áfram. Einnig eru hannaðir rafmótorar í freigátur bandaríska sjóhersins.
Fréttir Tækni Mest lesið Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Viðskipti innlent Fyrirkomulag flugrekstrarins stærsta deiluefnið Viðskipti innlent „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Viðskipti innlent „Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum“ Viðskipti innlent Kröfum Musks gegn OpenAI hafnað Viðskipti erlent Hefur „nær engar áhyggjur“ af eldsneytisskorti Viðskipti erlent Engar hópuppsagnir í apríl Viðskipti innlent Þórir og Ómar ganga til liðs við Vettvang Viðskipti innlent Eðlilegt að fólk vinni minna mánudag eftir kosningar Atvinnulíf Farangursvagni ekið utan í flugvél og flugferð aflýst Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Fyrirkomulag flugrekstrarins stærsta deiluefnið Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Engar hópuppsagnir í apríl „Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum“ Þórir og Ómar ganga til liðs við Vettvang Farangursvagni ekið utan í flugvél og flugferð aflýst María nýr stjórnarformaður SVEIT Ný Lindex verslun opnuð í Kringlunni Ráðinn forstjóri Nathan Ekkert verður af sameiningu lífeyrissjóðanna Daníel ráðinn forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Spá 0,25 prósentustiga hækkun stýrivaxta Fyrsti ársfjórðungur hafi verið góður í rekstri Kviku banka Úr Símanum í rörin Spá 4,9 prósenta verðbólgu í maí Telur forstjórann reyna að fara fram hjá stéttarfélaginu „Ekki einhverjir krúttlegir krakkar að leika sér í tölvum“ Yfirlýsing Icelandair kom flatt upp á flugmenn Icelandair grunar flugmenn um græsku Hæstiréttur tekur mál Kvikutoppanna ekki fyrir Bakkavararbróðir kaupir í Kviku fyrir milljarða Gengi Alvotech tekur kipp Alvotech stóðst úttekt FDA Sláandi hve mikið skattarnir hafi hækkað Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Sjá meira