Milli Árósa og Kaupmannahafnar með háhraðalest á hálftíma 22. mars 2007 07:44 Ferðin tekur í dag rúma þrjá klukkutíma Mynd/DSB
Árósar gætu orðið úthverfi Kaupmannahafnar og þessar tvær stærstu borgir Danmerkur á einu og sama atvinnusvæðinu verði hugmyndir samgöngumógúls að veruleika. Þetta yrði veruleikinn ef byggð yrði brú yfir Kattegat-sundið á milli Sjálands og Jótlands og segulhraðlest mundi flytja farþega á milli borganna tveggja á minna en hálftíma. Frá því er sagt í Jótlandspóstinum að borgarstjóra Árósa, Nicolai Wammen lítist mjög vel á tillöguna. Hann segir að ef hún yrði að veruleika væri það til mikilla hagsbóta fyrir borgirnar báðar og eins sér hann fyrir sér að framtíðarþéttbýlisuppbygging Danmerkur yrði meðfram seguljárnbrautinni á austurhluta Jótlands. Hann sér þá fyrir sér aukna ásókn alþjóðlegra stórfyrirtækja í að byggja upp höfuðstöðvar í Árósum. Margir þeir sem hafa tjáð sig um tillöguna, sem var fyrst birt í Jótlandspóstinum í gær, segja hana í besta falli framtíðarmúsík. Þar á meðal er prófessor í landafræði og skipulagi sem situr í þingnefnd um samgöngumál. Nokkrar aðrar tillögur um bættar samgöngur milli Sjálands og Jótlands voru kynntar í Jótlandspóstinum í gær, flestar einfaldari en þessi. Ein gerir ráð fyrir segulhraðlest yfir brýrnar sem þegar tengja Sjáland, Fjón og Jótland, önnur tillaga er að byggðir verði nýir innanlandsflugvellir og hraðbrautir breikkaðar. Ferðin milli Árósa og Kaupmannahafnar tekur nú rétt rúmlega þrjá klukkutíma með lest. Greinin um málið á JP.dk
Tækni Mest lesið „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Viðskipti innlent Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Viðskipti innlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Viðskipti erlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Viðskipti erlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira