Hoddle tippar á Milan og Liverpool í úrslitum 24. apríl 2007 16:39 NordicPhotos/GettyImages
Glenn Hoddle, fyrrum landsliðsþjálfari Englendinga í knattspyrnu, segist tippa á að það verði Liverpool og AC Milan sem mætast í úrslitaleik Meistaradeildarinnar í Aþenu í vor og endurtaki þar með leikinn frá í Istanbul árið 2005. Hoddle fór fögrum orðum um Jose Mourinho knattspyrnustjóra Chelsea í viðtali við Daily Express, en tippar samt á að það verði Liverpool sem fer í úrslitaleik Meistaradeildarinnar. "Ég hef það á tilfinningunni að það verði Liverpool sem fer í úrslitaleikinn. Ég held að liðinu falli vel að spila við Chelsea og því virðist mögulegt að ná hagstæðum úrslitum á móti Chelsea. Ég held að stemmingin á Anfield í síðari leiknum muni fleyta þeim í gegn og stemmingin á pöllunum í þeim leik verður líkt og á áttunda áratugnum," sagði Hoddle. Hann hefur áhyggjur af meiðslum hjá Manchester United fyrir leikina gegn AC Milan. "Ég óttast Milan-leikina fyrir hönd United vegna þeirra miklu meiðsla sem eru í herbúðum liðsins. Stundum fær maður léleg spil á hendi og ég held að meiðsli munu kosta United núna. Ég hefði tippað á sigur þeirra fyrir stuttu síðan. Það breytir því ekki að United þyrfti að taka á öllu sínu gegn Milan hvort sem þeir væru með fullan hóp eða ekki. Heimaleikurinn skiptir öllu fyrir United í þessu sambandi, þeir geta ekki farið áfram ef þeir þurfa að skora mörk í opnum leik í síðari viðureigninni," sagði Hoddle.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Pálmi í ótímabundið leyfi Íslenski boltinn Sá húsið sitt brenna til kaldra kola Körfubolti Erfitt að heyra hvað Orri hefur þjáðst Fótbolti Eigandi Nott.Forest ákærður fyrir tengsl við glæpagengi Sport Stelpurnar okkar fá ekki leiki vegna sparnaðar Fótbolti Shakhtar - Breiðablik | Tekst Blikum að stríða stórliði? Fótbolti Donald Trump að fá friðarverðlaun frá FIFA? Fótbolti Fylgist spenntur með Viktori: „Þetta er með ólíkindum“ Fótbolti Endurkoma ársins: Á Norðurlandamót aðeins ellefu mánuðum eftir hálsbrot Sport Hlýnun jarðar á að hafa mikil áhrif á maraþonhlaup í heimnum Sport Fleiri fréttir Shakhtar - Breiðablik | Tekst Blikum að stríða stórliði? Ronaldo og félagar spila landsleik í sérstökum Eusébio-búningi Ólöf og Írena báðar í úrvalsliði Ivy-deildarinnar Suárez dæmdur í bann fyrir hælspark í mótherja og missir af risaleik Pálmi í ótímabundið leyfi Góður í að þekkja stórstjörnur sem börn Erfitt að heyra hvað Orri hefur þjáðst „Ég og Nik erum ágætis vinir“ „Vel gert að geta haldið áfram í svona ástandi“ Fylgist spenntur með Viktori: „Þetta er með ólíkindum“ Stelpurnar okkar fá ekki leiki vegna sparnaðar Lamine Yamal sakaði menn um lygar eftir leik Mörk úr Meistaradeildinni: Sjáðu Osimhen hoppa upp fyrir Mbappé og Haaland Segir að Man United sé ekki að búa til Harlem Globetrotters-lið Donald Trump að fá friðarverðlaun frá FIFA? „Rokk og ról“ hjá Frey í villta vestrinu Sjáðu atvikið: Hágrátandi Hakimi frá í nokkrar vikur Óstöðvandi Osimhen, magurt hjá Mourinho og Bilbao brenndir Böl Börsunga í Belgíu Foden í stuði gegn Dortmund Spilaði meira en síðustu tvo mánuði til samans Nik fær Lindu Líf til Kristianstad Sandra María skoraði í svekkjandi leik Emelía með þrennu gegn FCK Óvænt úrslit í Meistaradeildinni „Mér finnst þetta ekki leiðinlegur fótbolti“ Davíð Smári tekur við Njarðvík Jeffs tekur við Breiðabliki Dældi fyrri afrekum inn á Instagram eftir vonbrigðin Valdi Isak en ekki Gyökeres í fyrsta landsliðshópinn sinn Sjá meira