Stærsti dreifingaraðili fylgihluta farsíma í Evrópu 7. maí 2007 10:00 Kjartan og félagar í Strax dreifa vörum frá öllum helstu símaframleiðendunum til símafyrirtækja um allan heim. MYND/hörður
Strax Holdings rekur meðal annars Farsímalagerinn og nýlega festi fyrirtækið kaup á Hans Petersen. Færri vita hins vegar að fyrirtækið er einnig stærsti dreifingaraðili farsímafylgihluta í Evrópu. „Við stofnuðum fyrirtækið árið 1994 með það að markmiði að verða stærsti dreifingaraðilinn í Suður-Ameríku," segir Kjartan Örn Sigurðsson, framkvæmdastjóri HP Farsímalagersins og einn af stofnendum Strax. „Við opnuðum skrifstofur í Miami og í Hong Kong en eftir að við opnuðum í London 1999 tókum við stefnuna á að verða stærstir í Evrópu." Kjartan segir lykilinn að baki velgengni Strax felast í pan-evrópsku formi fyrirtækisins. Þegar farsímafyrirtækin stækkuðu, og fóru að bjóða þjónustu sína í mörgum löndum, sáu eigendur Strax sér leik á borði og fylgdu þeirri þróun eftir með starfsemi sinni. „Í dag dreifum við vörum frá öllum helstu farsímaframleiðendunum til margra alþjóðlegra símafyrirtækja og verslunarkeðja um alla Evrópu og allan heim," segir Kjartan. Gegnum Farsímalagerinn og Hans Petersen ætla eigendur Strax að kanna áður óþekktan markað. „Stærsti söluaðili myndavéla í heiminum var Nokia með myndavélasíma sína. Þetta er stafræna byltingin í hnotskurn. Tækifærin sem við sjáum eru að verða bæði stærstir í sölu stafræns búnaðar og einnig í myndvinnslu fyrir þennan nýja markaðshóp," segir Kjartan.
Tækni Mest lesið Gistinóttum á hótelum fækkaði milli ára Viðskipti innlent Bílastæðafyrirtækin sektuð um hundruð þúsunda Neytendur Opna þriðju verslunina í Kaupmannahöfn Viðskipti innlent Fyrrverandi forstjóri Play í landeldið Viðskipti innlent Oculis tekur kipp í örviðskiptum eftir tilkynningu Viðskipti innlent Starfsfólk lagt inn á spítala með AI-geðrof Atvinnulíf eBay greiðir hjónum sex milljarða eftir hrottalega áreitni Viðskipti erlent Framkvæmdastjórinn heldur frídag verslunarmanna heilagan Viðskipti innlent Bú Straums var fremur lítið Viðskipti innlent Opnun Costco á Íslandi frestast Viðskipti innlent Fleiri fréttir eBay greiðir hjónum sex milljarða eftir hrottalega áreitni Lögðu til frjálsar greiðslur fyrir siglingar um Hormússund Apple aftur verðmætasta fyrirtæki heims Birtu tíu tillögur að nýjum seðlum Olíuverð fellur í kjölfar sprengjuhlés TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Olíutunnan nálgast aftur hundrað dali Dómari ýtir á pásu í yfirtökuferlinu Óttast kínverska gervigreind Vill leggja fimmtíu prósenta toll á kanadískar vörur Olíuverð hækkar um rúm fimm prósent í kjölfar ummæla Trumps Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Sky ætlar að festa kaup á ITV Sjá meira