Kaka: Mikilvægasti leikurinn á ferlinum 19. maí 2007 18:00 Kaka undirbýr sig af kostgæfni fyrir úrslitaleikinn gegn Liverpool á miðvikudag. MYND/Getty
Brasilíski miðjumaðurinn Kaka hjá AC Milan segir að leikurinn gegn Liverpool í Meistaradeildinni á miðvikudaginn sé sá mikilvægasti hingað til á sínum ferli. Kaka var í liðinu sem beið lægri hlut gegn Liverpool í úrslitum Meistaradeildarinnar fyrir tveimur árum og vill með engu móti endurupplifa þá tilfinningu. Kaka hefur leikið frábærlega í Meistaradeildinni í vetur, ekki síst í leikjunum tveimur gegn Man. Utd. í undanúrslitunum, þar sem hann skoraði meðal annars þrjú mörk. Hinn 25 ára gamli sóknarþenkjandi miðjumaður er mjög sigurviss fyrir leikinn. "Ég hef mikla trú á mínu liði og samherjum mínum. Í okkar huga kemur ekkert annað en sigur til greina," segir Kaka. "Það er ánægjulegt að vera talinn mikilvægur leikmaður en það vinnur enginn einn leikmaður titla. Við erum með mjög gott lið og saman munum við spila til sigurs," bætti hann við. "Liverpool er gríðarlega öflugt lið, vel skipulagt og líkamlega sterkt. Það er mikil hefð hjá Liverpool fyrir Evrópukeppni og lið sem slær út Barcelona og Chelsea hlýtur að eiga skilið að vera í úrslitunum." "Það var gott að vinna Man. Utd. því í mínum huga er það sterkasta liðið í Evrópu um þessar mundir. Það yrði hrikalegt ef sá sigur væri til einskins ef við töpum úrslitaleiknum. Þess vegna er úrslitaleikurinn á miðvikudaginn sá mikilvægasti á mínum ferli," sagði Kaka.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Arnar pirraður: „Hræddir að sækja úrslit“ Fótbolti „Ég var rosalega veik þegar sá leikur átti sér stað“ Fótbolti Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Fótbolti Pérez endurkjörinn sem forseti Real Madrid Fótbolti Áfall fyrir Kanada skömmu fyrir HM Fótbolti Tuchel næstum tekinn við Íslendingaliði Fótbolti Ollie Kane kynntur til leiks Fótbolti „Hann breytti kúlturnum“ Handbolti Búist við því að Messi spili gegn Íslandi Fótbolti Landsliðsþjálfarinn á leið á spítalann: „Þetta er sjokk“ Fótbolti Fleiri fréttir Segir Eriksen ekki spila aftur sem atvinnumaður Tuchel næstum tekinn við Íslendingaliði Arnar pirraður: „Hræddir að sækja úrslit“ Áfall fyrir Kanada skömmu fyrir HM Pérez endurkjörinn sem forseti Real Madrid „Ég var rosalega veik þegar sá leikur átti sér stað“ Ödegaard skoraði í síðasta leiknum fyrir HM Búist við því að Messi spili gegn Íslandi Landsliðsþjálfarinn á leið á spítalann: „Þetta er sjokk“ Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Verðandi leikmaður United kallaður inn í hópinn fyrir HM Forritaði HM getraunaleik og býður hundrað þúsund í verðlaun Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Skotar hættu við æfingaleik gegn Norðmönnum Ollie Kane kynntur til leiks Messi á bekknum í sigri Argentínu HM-minning: Átti draumamark Maradona líka að vera dæmt af? „Ég verð að spila“ Landsliðið sendi kveðju á Ingvar Býst við skömmum frá KSÍ Standa á krossgötum og eigendaskipti líkleg Englendingar ósannfærandi í sigri Havertz aðalmaðurinn í sigri á Bandaríkjunum Slagsmál og tvö rauð spjöld hjá Portúgölum Brighton slær félagsskiptamet í Svíþjóð Vestri valtaði yfir Völsung Vonar að völlurinn verði ekki til vandræða Sigurður Egill með tvennu í sigri Þróttar Rauði djöfullinn Doku gerir varnarmenn gráhærða Slot hefur engan áhuga á starfinu hjá Fulham Sjá meira