Spila með Lúðrasveit verkalýðsins á afmæli sínu 27. febrúar 2008 06:00 Villi naglbítur hafði samband við Lúðrasveit verkalýðsins sem var til í stuðið. Fréttablaðið/Rósa
200.000 naglbítar fagna tíu ára útgáfuafmæli sínu í haust. Áfanganum verður fagnað með eftirminnilegum hætti. „Ég er búinn að vera með þetta í maganum í nokkur ár. Það eru allir búnir að vera að vinna með Sinfó, Gospelkórnum eða einhverjum big böndum, og mér fannst geðveikt töff að Naglbítar og Lúðrasveit verkalýðsins myndu slá saman í púkk. Nöfnin passa líka svo vel saman - 200.000 naglbítar og Lúðrasveit verkalýðsins - rosalega karlmannlegt eitthvað." Hér talar Villi Naglbítur um samstarf hljómveitanna tveggja, rokktríósins og 40 manna lúðrasveitarinnar. Í tilefni af tíu ára afmæli fyrstu plötu Naglbítanna - og 15 ára hljómsveitarafmæli - verða tíu Naglbítalög af plötunum þeirra þremur útsett upp á nýtt fyrir lúðrasveit og rokktríó. Útkoman verður svo gefin út á plötu í haust og tónleikar haldnir í kjölfarið. Þá ætlar Heimir Freyr Hlöðversson að gera heimildarmynd um allt ferlið. „Ég er búinn að heyra fyrstu lögin og sat bara með gæsahúð, þetta var svo þungt, kraftmikið og æðislegt," segir Villi. „Ég spurði sjálfan mig hvort þessi tónlist væri í alvörunni eftir mig." Það er annars að frétta að Villi segist vera að læra að vera pabbi um þessar mundir því honum fæddist sonur fyrir þremur mánuðum. Og svo eru það dómgæslustörf í Bandinu hans Bubba. „Það er rosalega skemmtilegt. Vinur minn benti mér á að einhverjar kerlingar hafi verið að hneyklast á mér á blogginu fyrir að muna ekki nöfnin á keppendunum. Hvers vegna ætti ég að hlusta á fólk sem hefur ekki afrekað annað en að kaupa sér tölvur til að geta skrifað um það sem aðrir eru að gera? En jæja, ég hlýt að geta munað nöfnin á söngvurunum fyrir næsta þátt, allavega nöfnin á þeim sem geta eitthvað. Það er gaman að vinna með Birni Jörundi og Bubba. Hann er fínn húsbóndi, skemmtilegur og almennilegur og alltaf segjandi sögur. Það eru margir flottir söngvarar að keppa svo ég hlakka mikið til að vera í þættinum næstu vikurnar." gunnarh@frettabladid.is
Mest lesið Walking Dead-leikkona látin Lífið Stjörnulífið: „Þessi ætlar að ríða þessa Verslunarmannahelgina“ Lífið Húsgögn úr afgöngum og fiskar í gosbrunninum Lífið Tók sterkan kjúklingabita í stað þess að styggja Íslendinga Lífið Kveður föður sinn með tilvitnun í Hunter S. Thompson Lífið Ástralskur hommasirkus skemmtir börnum og fullorðnum í Tjarnarbíói Lífið Egill, Valgeir og Sigurður Bjóla saman á sviði í fyrsta sinn síðan 1976 Lífið samstarf Brjánn hefur göngu sína í haust: „Erum við að falla úr efstu deild í Norður-Kóreu?“ Lífið Rekur sögu sósunnar sem allir elska: „Pítusósan fæddist í Asparfellinu“ Lífið „Mig langar ekki lengur að deyja“ Lífið Fleiri fréttir „Öll dýrin í skóginum voru vinir“ Úr kjallaranum hjá mömmu yfir á stóra sviðið Opnar sig um stormasamt hjónaband á nýju plötunni Borgin býður í tívolíveislu Dylan leggur blátt símabann á tónleikagesti „Gerum allt fyrir konurnar í okkar lífi“ Quarashi á Lopapeysunni: „Við erum synir Akraness“ „Svo leiðinlegt að pæla hvað öðru fólki finnst“ Forsala á Kaleo seldist upp á innan við mínútu Sjá meira