ESPN: Allen Iverson á leið til Detroit 3. nóvember 2008 17:19 Allen Iverson NordicPhotos/GettyImages
ESPN sjónvarpsstöðin í Bandaríkjunum greinir frá því nú síðdegis að Denver Nuggets og Detroit Pistons hafi samþykkt að gera með sér áhugaverð leikmannaskipti. Þannig mun Denver senda skorarann Allen Iverson til Detroit í skiptum fyrir leikstjórnandann Chauncey Billups og framherjann Antonio McDyess og minni spámann að nafni Cheikh Samb. Skiptin eru ekki formlega gengin í gegn, en vera má að Allen Iverson sé hér að skipta um lið á yfirstandandi tímabili í annað sinn á tveimur árum. Samningur hans rennur út eftir þessa leiktíð. Iverson hefur verið einn stigahæsti leikmaður NBA deildarinnar á síðasta áratug og var með 26 stig að meðaltali í leik á síðustu leiktíð. Chauncey Billups hefur verið einn besti leikstjórnandi NBA deildarinnar undanfarin ár og var kjörinn verðmætasti leikmaður lokaúrslitanna árið 2004 þegar Detroit vann NBA meistaratitilinn með sigri á LA Lakers í úrslitum. Hann spilaði reyndar 58 leiki fyrir Denver fyrir 10 árum þegar hann var á sínu öðru ári í deildinni. Billups skoraði 17 stig og gaf 6,8 stoðsendingar að meðaltali í leik á síðustu leiktíð. Antonio McDyess er heldur ekki ókunnugur Denver því hann spilaði þar í sex af fyrstu sjö árum sínum í deildinni. Ekki er talið víst að hann eigi framtíð fyrir sér hjá Denver að þessu sinni.
NBA Mest lesið Farinn að leita að rakara og vill fá tíma 10. febrúar Enski boltinn Keppandi Suður-Kóreu á Ólympíuleikunum fæddist á Íslandi Sport Orri aftur með draumainnkomu Fótbolti Trump um baulið á Vance á setningu ÓL: „Er það satt? Það kemur á óvart“ Sport Albert meiddist og Fiorentina missti frá sér sigurinn Fótbolti Fótboltalið Vals semur við son Alexanders Petersson Íslenski boltinn Martin missir af landsleikjunum Körfubolti Palmer með þrennu í fyrri hálfleik gegn Úlfunum Enski boltinn „Þriðji leikhlutinn fór með þetta“ Sport „Við ætlum að skemmta okkur í kvöld“ Körfubolti Fleiri fréttir Tryggvi var framlagshæstur þegar sigurgangan hélt áfram Martin missir af landsleikjunum Elvar var stiga- og stoðsendingahæstur í sigri Jakob: Geggjað að fá þennan stuðning frá okkar fólki Stjörnumenn svekktir eftir leik: „Enginn í okkar liði átti A-klassa frammistöðu“ „Við ætlum að skemmta okkur í kvöld“ Leik lokið: Keflavík - Grindavík 92-83 | Keflavík bikarmeistari eftir sigur á Grindavík KR-ingar bikarmeistarar eftir stjörnuhrap í Smáranum „Við erum ekkert að einbeita okkur að því og ætlum bara að taka leikinn“ Segir íslensk félög búin að eyða meira en milljarði í erlenda leikmenn í vetur Segir Grikkjanum haldið í gíslingu Fórnuðu Luka Doncic fyrir hann en Davis náði aðeins að spila 31 leik „Spiluðum virkilega vel í tuttugu mínútur“ „Þá er þetta munurinn á liðunum“ Uppgjörið: Tindastóll - Grindavík 74-99 | Grindavík eltir Keflavík í úrslit Martin með ellefu stig í magnaðri endurkomu Alba Berlin Uppgjörið: Keflavík - Hamar/Þór 82-77 | Keflvíkingar í bikarúrslit Fær að mæta KR í úrslitum þrátt fyrir hnefahöggið „Við þekkjum umhverfið allavega betur“ James Harden skipt til Cleveland og titillíkur Cavaliers aukast „Vitum hvernig Stjarnan spilar“ Uppgjörið: Keflavík - Stjarnan 107-110 | Stjarnan í úrslit eftir háspennu í framlengdum leik KR - Tindastóll 85-87 | KR-ingar í úrslit eftir háspennu „Byrjunin verður gríðarlega mikilvæg“ „Þeir setja pressu á alla og gera allt óþægilegt“ KR-ingur að fara á kostum með einu besta körfuboltaliði Bandaríkjanna Stólarnir fóru bara allir í fýlu saman og það er óafsakanlegt Körfuboltaþjálfari leiddur af velli í handjárnum Kveður Skagafjörðinn og flytur á Skagann Martin fagnaði mikilvægum sigri eftir mistök toppliðsins Sjá meira