Með upptökustjóra Strokes 18. desember 2008 06:00 Óli Dóri, Hreinn Elíasson og Sigurmon H. Sigurðsson, hafa gefið út sína fyrstu plötu sem nefnist A Ditch in Time.
Skagasveitin Weapons hefur gefið út sína fyrstu plötu sem nefnist A Ditch in Time, þar sem fyrrverandi upptökustjóri The Strokes kemur við sögu. Strákarnir tóku plötuna upp sjálfir á síðasta ári en um hljóðblöndun sá Gordon Raphael, sem tók upp fyrstu tvær plötur The Strokes og fyrstu plötu Reginu Spektor. „Hann fann okkur á netinu og sendi okkur skilaboð um að honum líkaði við þetta," segir bassaleikarinn Óli Dóri um samstarfið við Raphael. „Eftir það spurðum við hvort hann vildi ekki vinna með okkur. Hann var til í það og kom til Íslands og mixaði plötuna. Við vorum í viku í Stúdíó Sýrlandi og hann hafði rosagaman af því að vera þarna," segir Óli og bætir við að báðir aðilar hafi áhuga á frekara samstarfi. „Ég veit ekki hvort við tökum næstu plötu upp sjálfir eða förum til hans, alla vega er sameiginlegur áhugi á að vinna eitthvað saman." Weapons svipar einmitt nokkuð til The Strokes á upphafsárum þeirra þar sem ungæðislegur krafturinn og spilagleðin var allsráðandi. Gæti sveitin því gert margt vitlausara en að starfa á nýjan leik með Raphael. Weapons var stofnuð fyrir fjórum árum og hefur á þeim tíma þrívegis spilað á Airwaves-hátíðinni við góðar undirtektir. Stefnan hefur verið sett á spilamennsku erlendis og vonast þeir félagar til að komast í bandaríska háskólaútvarpið og í framhaldinu fara í tónleikaferð um austurströnd Bandaríkjanna næsta vor. Einnig ætla strákarnir að gefa út þrjú endurhljóðblönduð lög á næsta ári sem þeir unnu í samstarfi við Remix Artist Collective, RAC, sem er þekkt teymi sem hefur endurunnið lög fyrir Radiohead, Bloc Party, Justice og Kaiser Chiefs. Næstu tónleikar Weapons verða á kreppukvöldi á Bar 11 í kvöld þar sem önnur Skagasveit, Pet Semetery, treður einnig upp. Á föstudagskvöld spila báðar sveitirnar síðan í Þorpinu í heimabæ sínum, Akranesi. freyr@frettabladid.is
Mest lesið Bók skilað eftir 56 ára útlán Lífið „Þetta eru þýðingarmestu skilaboð Davids Attenborough til þessa“ Lífið Fréttatía vikunnar: Páfakjör, poppstjarna og nýr kanslari Lífið Bakaríið í beinni útsendingu Lífið Hugmyndir fyrir mæðradaginn Lífið Frumsýning hjá Auðuni: Langaði til að gera fallegt náttúruklám Lífið Stjörnufans í sumarselskap Lífið Molly-Mae og Tommy Fury saman á ný Lífið Typpi í einu gati, tæki í öðru Lífið Söngvakeppnin og stríðsrekstur Ísraels: „Ég er stolt af landinu mínu“ Lífið Fleiri fréttir „Maður er í elífu straffi sem tónlistarmaður, getur ekki gert neitt annað“ Óhræddir við raunverulegar tilfinningar Kaleo með tónleika á Íslandi í fyrsta sinn í áratug Davíð í Kaleo bjó til flöskutrommusett Fimmtán ára og gefur út frumsamda plötu Elti ástina til Íslands „Þetta er allt partur af plani hjá guði“ Eyddi unglingsárunum inni í þvottahúsi Gefa út sína fyrsta plötu síðan 2001 Þrumustuð þegar lag Barnamenningarhátíðar var frumflutt Sækir innblásturinn í rússnesku ræturnar Sjá meira