Fönkið endurvakið 10. júlí 2008 06:00 Ungu drengirnir í Ermum Ætla að halda uppi fönk-stemningu í kvöld.
Hljómsveitin Ermar - Featuring Horny Horns mun spila fönktónlist á Glaumbar í kvöld. Tónleikarnir eru hluti af tónleikaröðinni Bít Box sem verður á Glaumbar alla fimmtudaga í sumar. Bít Box er samstarf Samma í Jagúar og Steinars sem rekur Glaumbar og vildu þeir með framtakinu skapa vettvang fyrir rytmíska tónlist hér í Reykjavík og hefur Tómas R. Einarsson meðal annars spilað á slíku kvöldi. Drengirnir í Ermar - Featuring Horny Horns hafa komið víða og meðal annars spilað með Stórsveit Samma og stúlknasveitinni Amiinu og spiluðu reglulega á gamla Kaffi List fyrir nokkrum árum síðan og hyggjast endurvekja þá stemningu sem þar myndaðist. „Nokkrir hljómsveitarmeðlimanna hafa verið búsettir erlendis síðustu ár en við erum allir á landinu í sumar og ákváðum að nýta tækifærið og spila saman. Við munum spila þekkta slagara eftir gamla meistara en spinnum samt sem áður mikið í kringum hvert lag," segir Jóhannes Þorleiksson trompetleikari um fyrirhugaða tónleika. Tónleikarnir hefjast klukkan 22.00 og er aðgangur ókeypis. - sm
Mest lesið Gerði leigusamning við krabbameinið Lífið Sjö dýrustu eignirnar sem seldust árið 2025 Lífið Fréttatía vikunnar: Framsókn, Epstein-skjölin og Dagur Sig Lífið Tæplega 28 þúsund í mat á mánuði: „Hvar voru þið að svindla?“ Lífið Gummi Emil á leið í fæðubótarefnin Lífið Drengurinn sem dó Lífið „Ég er að heiðra litla Aron“ Tónlist „Ungir drengir eru búnir að láta segja sér að þeir séu eitraðir“ Lífið Karlmennskan rís úr öskunni Lífið Alan Carr á Íslandi Lífið Fleiri fréttir „Ég er að heiðra litla Aron“ „Hún er komin til að vera“ Byrjaði allt í blokkinni í Breiðholti Stjórinn mótmælir ICE með lagi um Minneapolis Íslenskur tónlistarmaður í lykilhlutverki Högni hjálpar fólki að slaka á Kristinn Svavarsson er látinn Hætta óvænt við tónleikaferðalög sín „Þetta er ekki uppgjör á mínu uppeldi“ Skilur meðvirkni eftir í fortíðinni Rugluðust á Laufeyju og „Megan“ „Ég mun aldrei stíga á svið í Bandaríkjunum aftur“ Nýtt lag frá Halla Reynis sex árum eftir andlát hans Vinsælustu lögin á Bylgjunni 2025 Sjá meira