Sjarmi við sænskan framburð 7. október 2008 05:00 arrival Abba-hljómsveitin Arrival heldur tónleika í Vodafone-höllinni 8. nóvember.
Yfir eitt hundrað hljómsveitir víðs vegar að úr heiminum hafa lifibrauð sitt af því að spila lög til heiðurs Abba, þar á meðal hin heimsþekkta Björn Again og svo Arrival, sem spilar í Vodafone-höllinni 8. nóvember. Þetta verður í fyrsta sinn sem Arrival kemur hingað til lands og hlakkar söngkonan Vicky mikið til. „Ég hef heyrt marga góða hluti um Ísland og mér hefur verið sagt að ég yrði að koma þangað og núna er loksins komið að því,“ segir Vicky. Arrival, sem hefur haldið Abba-sýningar víða um heim í tæp fjórtán ár, fór í tónleikaferð um Bandaríkin í sumar og spilaði fyrir framan tuttugu til þrjátíu þúsund manns á hverju kvöldi. „Þeim finnst mjög merkilegt að við séum frá Svíþjóð og spyrja okkur alls konar spurninga, hvort það sé ekki mikill snjór í Svíþjóð og hvort Kaupmannahöfn sé höfuðborgin. Þeir vita ekki mikið um Skandinavíu en þeir eru frábært fólk og enn betri áhorfendur,“ segir hún. Arrival hefur að undanförnu verið í hljóðveri að ljúka við upptökur á óútgefnu Abba-lagi sem nefnist Just a Notion. Fékk sveitin lánað gamalt Abba-hljómborð við upptökurnar. „Ég sendi Björn og Benny lög sem við höfðum tekið upp og spurði hann um þetta lag og hann sagði já. Ég veit að þeir eru mjög strangir varðandi svona lagað og þess vegna varð ég undrandi þegar þeir sögðu já.“ Vicky segist aldrei verða þreytt á því að spila sömu lögin kvöld eftir kvöld. „Tónlistin er frábær og síðan er alltaf jafngaman að sjá fólkið í salnum brosa og gleðjast yfir lögunum. Við skemmtun okkur alltaf vel á sviðinu.“ Til að vera góð Abba-hljómsveit segir Vicky nauðsynlegt að hafa góða tónlistarmenn innanborðs auk þess sem sænskur uppruni sé mikilvægur. „Það er sjarminn við þetta. Við berum orðin ekki rétt fram og útlendingarnir elska það,“ segir hún. freyr@frettabladid.is
Mest lesið Walking Dead-leikkona látin Lífið Stjörnulífið: „Þessi ætlar að ríða þessa Verslunarmannahelgina“ Lífið Húsgögn úr afgöngum og fiskar í gosbrunninum Lífið Tók sterkan kjúklingabita í stað þess að styggja Íslendinga Lífið Kveður föður sinn með tilvitnun í Hunter S. Thompson Lífið Ástralskur hommasirkus skemmtir börnum og fullorðnum í Tjarnarbíói Lífið Egill, Valgeir og Sigurður Bjóla saman á sviði í fyrsta sinn síðan 1976 Lífið samstarf Brjánn hefur göngu sína í haust: „Erum við að falla úr efstu deild í Norður-Kóreu?“ Lífið Rekur sögu sósunnar sem allir elska: „Pítusósan fæddist í Asparfellinu“ Lífið „Mig langar ekki lengur að deyja“ Lífið Fleiri fréttir „Öll dýrin í skóginum voru vinir“ Úr kjallaranum hjá mömmu yfir á stóra sviðið Opnar sig um stormasamt hjónaband á nýju plötunni Borgin býður í tívolíveislu Dylan leggur blátt símabann á tónleikagesti „Gerum allt fyrir konurnar í okkar lífi“ Quarashi á Lopapeysunni: „Við erum synir Akraness“ „Svo leiðinlegt að pæla hvað öðru fólki finnst“ Forsala á Kaleo seldist upp á innan við mínútu Sjá meira