Versló, SUS og Andri Snær 21. nóvember 2008 04:45 Rithöfundurinn, og handhafi frelsisverðlauna SUS, Andri Snær Magnason, lýsti því yfir í þættinum Silfri Egils fyrir rúmri viku að efnahagsvandinn á Íslandi væri gjaldþrot Heimdallar, SUS, Verslunarskóla Íslands og viðskiptaháskólanna. Líklega hefur hann þar fyrst og fremst verið að vísa til einhvers konar staðalmyndar af fólki sem tilheyrir þessum félagsskap. Nú þegar hefur forseti Nemendafélags Verslunarskólans lýst óánægju sinni með þennan málflutning rithöfundarins, enda hljóta það að teljast kaldar kveðjur frá Andra Snæ til ungs fólks á aldrinum 16 til 20 ára í tilteknum skóla að við því blasi einhvers konar gjaldþrot. Og hvorki getur það talist uppbyggilegt né málefnalegt framlag af hans hálfu, þótt vafalaust hafi hvorki búið illgirni né Þórðargleði í orðunum. En það er mikill sannleikur í því að þel geti snúist við atorð eitt - og nú þegar óöryggi og óvissa ríkir meðal fólks er líklegt að meinleysislegar yfirlýsingar á borð við þetta geti hreyft óþægilega við fólki sem tekur orðin til sín en hefur ekkert til þeirra unnið. Heimdallur og SUS eru reyndar allt annar handleggur í þessum efnum. Það er ekkert við það að athuga þótt hugmyndafræði þessara ágætu félaga skuli tekin til skoðunar og gagnrýnd. Einkum er þó við þá staðalmynd að etja sem hugmyndafræðilegir andstæðingar þessara félaga ungra Sjálfstæðismanna vilja ólmir halda á lofti. Þau stefnumál og grundvallarafstaða sem í raun og sann einkenna starf ungra sjálfstæðismanna hafa ekki átt birtingarmynd í alþjóðlega fjármálakerfinu á síðustu misserum. Í raun er öðru nær. Hugmyndafræði ungra Sjálfstæðismanna byggist á frjálslyndi og einstaklingshyggju. Sú frjálshyggja felur í sér að fólk eigi að hafa gott svigrúm til að skapa og framleiða og geti notið ávaxtanna af því þegar vel gengur. Hún felur einnig í sér þá trú að eðlilegt sé að tryggja að fjármagn geti leitað í þann farveg sem mestu skilar fyrir hag fólksins þannig að fjárhagslegur ábati sé mestur fyrir þá sem geta sinnt þörfum meðborgara sinna á sem snjallastan hátt. Það er þó einnig nauðsynleg forsenda að markaðurinn skeri úr um það hvort hugmyndir séu góðar eða slæmar og því er nauðsynlegt að áhættufé tapist ef það er lagt í fyrirtæki eða verkefni sem ekki ganga upp. Á þessum grundvelli er markaðskerfið bæði réttlátt og hagkvæmt. Vandinn í efnahagslífi heimsins, sem nú bitnar hvað harðast á Íslandi, er einmitt einna helst fólginn í því að stórfyrirtæki hafa haft tækifæri til að ganga fram í fölsku skjóli og taka áhættu á kostnað almennings. Eigendur og starfsmenn fyrirtækjanna hafa hins vegar notið ávaxtanna þegar vel gekk. Ótrúlegur gróði hefur hlaðist upp í fjármálafyrirtækjum um heim allan og mikill fjöldi hæfileikafólks hefur sogast inn í fjármálageirann þar sem gáfur þeirra hafa verið nýttar til að gera einfalda hluti flókna. Þessi gróði og þetta starfsfólk hefði eflaust nýst betur ef markaðurinn hefði stýrt þeim í átt að fjölbreyttari rekstri og iðju. En þegar ein tegund atvinnurekstrar - í þessu tilviki fjármálageirinn - telur sig starfa í þægilegu skjóli ríkisins frá því að tapa á slæmum ákvörðunum, verður til skekkja. Ruðningsáhrif fjármálageirans eru því sambærileg við aðra ríkistryggða stóriðju og beina kröftum samfélagsins í ranga átt. Það er auðvelt að vinna knattspyrnuleik ef allir í hinu liðinu þurfa að leika með blý í skónum. En það er vitleysisgangur að hlaupa um fagnandi eftir slíkan sigur, það er dramb að sannfæra sjálfan sig um að sigurinn sýni fram á snilli og heimskulegur hroki að reyna að sannfæra aðra um það. En verst af öllu er þó þegar allt samfélagið fer að trúa á náðargáfu leikmanna sigurliðsins. En nákvæmlega þannig hefur fjármálageiri Vesturlanda getað starfað á síðustu árum en allur annar iðnaður þurft að heyja við hann ósanngjarna keppni um starfsfólk og fjármagn. Andstæðingar ungra sjálfstæðismanna vilja á stundum láta eins og hugmyndafræði okkar snúist um að verja hagsmuni stórfyrirtækja eða valdhafa. Þetta er alrangt. Réttlæti markaðshagkerfisins felst einmitt í því að þar geta sviptingar orðið miklar. Sá sem er ríkur einn daginn getur tapað öllu og sá sem er fátækur getur snúið gæfunni sér í vil. Hið mikilvægasta er að allir keppi á jafnréttisgrunni og enginn þurfi að hafa blý í skónum þegar hann hleypur út á völlinn. Að okkar dómi er ekki grundvallarágreiningur um það milli ungra sjálfstæðismanna og Andra Snæs Magnasonar, nema hann hafi skipt mjög um skoðun frá því hann gaf út bók sína Draumalandið. Sú bók féll í góðan farveg meðal frjálslynds ungs fólks því forsenda hennar var að einstaklingarnir sjálfir væru betur til þess fallnir að nýta sköpunarkraft sinn og dugnað til góðra verka heldur en miðstýring ríkisvaldsins. Það kom því mörgum ungum sjálfstæðismönnum á óvart að heyra Andra Snæ afflytja málstað okkar með þeim hætti sem hann gerði í Silfri Egils. Vonandi getum við flest látið okkur nægja að rífast um það sem við erum ósammála um, en látum ekki flokkadrætti reka okkur í deilur þegar við erum sammála. Höfundur er formaður SUS. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Þórlindur Kjartansson Mest lesið Eineltið byrjar kannski við eldhúsborðið! Birta Róbertsdóttir Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson Skoðun Þegar veikindaleyfi verður að fríi Gunnar Ármannsson Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson Skoðun Hvaða skilaboð erum við að senda framtíðarkennurum? Eyrún Ósk Hjartardóttir Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason Skoðun Draumsýn menntamála Álfhildur Leifsdóttir ,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Íslenska Z-kynslóðin hefur hægt um sig Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin kjósa – en hver hefur eftirlit með forsetanum? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason skrifar Sjá meira
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar