Aðförin að ÓIafi 28. janúar 2008 10:55 Sterk viðbrögð við þætti mínum með nýjum borgarstjóra í gærkvöld. Flestum sýnist sem Ólafur hafi komist nokkuð sterkur frá borði; altént að hann hafi aflað sér samúðar - sem hann þarf kannski á að halda. Hann talaði hispurslaust um veikindi sín en þó einkum um aðförina að sér; dylgjurnar, óhróðurinn, hatrið. Það er hægt að sjá viðtalið í heild sinni inn á vefhluta visir.is. Ekki vandaði hann Spaugstofunni kveðjurnar - og ljóst að honum sveið illilega undan þeirri mynd sem Ríkissjónvarpið dró upp af honum; sem vitfirrtum geðsjúklingi. Líklega var þar farið yfir strikið ... Vakti athygli mína að Ólafur tók upp hanskann fyrir Dag B. Eggertsson - og sagði, þvert á það sem Mogginn hefur hamrað á í hverjum leiðaranum á fæturn öðrum, að róginn megi og eigi ekki rekja til fyrrverandi borgarstjóra. Mogginn er annars sér kapituli í pólitíkinni þessa dagana. Ofsahatur hans á Samfylkingunni er dæmalaust - og á eiginlega ekkert skylt við blaðamennsku lengur. Að öðru leyti er Mogginn afskaplega vandað blað -og það er fyrst og fremst af þeim sökum sem þessi geðklofi blaðsins fer í taugarnar á mér. Og æ fleirum ... Það var að heyra á Ólafi í þættinum að endurkoma hans í stjórnmálin hafi ekki síst verið óþolandi í huga þeirra sem fyrir sátu á fleti. Auðvitað átti hann þar við Margréti Sverrisdóttur. Trúnaðarbresturinn á milli þeirra var og er augljós. Ólafur vildi - eftir umtalað veikindaleyfi - rétta við sinn pólitíska hlut í borgarstjórn sem Margréti hafði, að hans mati, gloprað niður. Þeirra pólitíska sýn er gerólík. Þar liggur hundurinn grafinn. Þessvegna varð til nýr meirirhluti. Ég býst við að nú sé tímabært að veita Ólafi vinnufrið. Eða er það kannski ekki lengur til siðs ... -SER. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mannamál Sigmundar Ernis Mest lesið Leikjanámskeið fyrir fullorðna við Austurvöll Þórður Snær Júlíusson Skoðun Kaldar kveðjur frá Íslandi - á meðan Hörmungarnar halda áfram Hjálmtýr Heiðdal,Yousef Ingi Tamimi,Magnús Magnússon Skoðun Að mása sig hása til að tefja Ása Berglind Hjálmarsdóttir Skoðun Skýr og lausnamiðuð afstaða Framsóknar til veiðigjalda Ingibjörg Isaksen Skoðun Sparnaðarráð fyrir ferðalagið Svandís Edda Jónudóttir Skoðun Sál hvers samfélags birtist skýrast í því hvernig það annast börnin sín Diljá Ámundadóttir Zoëga Skoðun Samráðsdagar á Kjalarnesi Ævar Harðarson Skoðun Að mása eða fara í golf Jón Pétur Zimsen Skoðun Um styttingu vinnuvikunnar í leikskólum Reykjavíkurborgar, ákall um leiðréttingu Anna Margrét Ólafsdóttir,Hafdís Svansdóttir,Jónína Einarsdóttir Skoðun Leiðréttum kerfisbundið misrétti Jónína Brynjólfsdóttir Skoðun
Kaldar kveðjur frá Íslandi - á meðan Hörmungarnar halda áfram Hjálmtýr Heiðdal,Yousef Ingi Tamimi,Magnús Magnússon Skoðun
Sál hvers samfélags birtist skýrast í því hvernig það annast börnin sín Diljá Ámundadóttir Zoëga Skoðun
Um styttingu vinnuvikunnar í leikskólum Reykjavíkurborgar, ákall um leiðréttingu Anna Margrét Ólafsdóttir,Hafdís Svansdóttir,Jónína Einarsdóttir Skoðun
Kaldar kveðjur frá Íslandi - á meðan Hörmungarnar halda áfram Hjálmtýr Heiðdal,Yousef Ingi Tamimi,Magnús Magnússon Skoðun
Sál hvers samfélags birtist skýrast í því hvernig það annast börnin sín Diljá Ámundadóttir Zoëga Skoðun
Um styttingu vinnuvikunnar í leikskólum Reykjavíkurborgar, ákall um leiðréttingu Anna Margrét Ólafsdóttir,Hafdís Svansdóttir,Jónína Einarsdóttir Skoðun