Höggdeyfir fyrir hverja? Jóhann Páll Jóhannsson skrifar 9. ágúst 2026 09:32 Algeng rök fyrir því að halda í íslensku krónuna eru þau að hún virki sem mikilvægur höggdeyfir: að fljótandi gengi auðveldi hagkerfinu að laga sig að efnahagsáföllum; án sjálfstæðrar myntar þyrfti aðlögunin að fara fram með sársaukafyllri hætti gegnum ríkisfjármál og vinnumarkað. Höggdeyfisrökin heyrast töluvert í umræðunni um Evrópusambandið, bæði af hægri- og vinstrivæng stjórnmála. Samkvæmt þessari nálgun er eftirsóknarvert að raunlaun og kaupmáttur launafólks lækki mjög rækilega með sjálfvirkum hætti eins og gerðist í bankahruninu, enda hjálpi slík kjararýrnun til við að koma jafnvægi á þjóðarbúið. Rökin kunna að hljóma kaldranalega, en þau eiga engu að síður fullan rétt á sér og eru í takti við gagnrýni sem er gjarnan sett fram á evrusamstarfið og umgjörð þess. Í íslensku samhengi eru rökin hins vegar veikari en ætla mætti í fyrstu. Gengisrýrnun fjölgar ekki fiskum í sjónum Höggdeyfisnálgunin gerir ráð fyrir orsakasambandi sem er einhvern veginn svona: Gengið veikist, íslenskar vörur verða ódýrari erlendis, útflutningur eykst, störfum í útflutningsgreinum fjölgar og samdrátturinn verður minni fyrir vikið. Vandinn er að stærstu útflutningsgreinar Íslands geta ekki brugðist hratt við lægra verði með aukinni framleiðslu. Þetta er dregið vel fram í nýlegri skýrslu erlendra sérfræðinga um valkosti Íslands í gjaldmiðlamálum. Álframleiðsla ræðst af afkastagetu verksmiðja, orkuframboði og langtímasamningum. Framleiðsla í sjávarútvegi takmarkast af fiskveiðikvótum sem eru ákvarðaðir samkvæmt vísindalegri ráðgjöf. Ferðaþjónusta er vissulega sveigjanlegri, en þó háð takmörkunum eins og framboði á flugsætum og gistirýmum. Veikari króna býr ekki til meiri fisk eða nýtt álver, og hún töfrar ekki fram fleiri hótelrými á einni nóttu. Hún veldur því hins vegar að útflutningstekjur í krónum hækka. Fyrirtækin fá fleiri krónur fyrir sömu evrur eða dollara á sama tíma og innlendur kostnaður er áfram í krónum. Gengisrýrnun eykur þannig tekjur og arðsemi útflutningsfyrirtækja frekar en að styðja með markvissum hætti við fjölgun starfa og aukin umsvif í hagkerfinu. Ójafnaðaráhrif og tilviljunarkennd tilfærsla gæða Af ofangreindu leiðir að fyrir stóran hluta útflutnings þýðir bætt samkeppnisstaða vegna gengisveikingar fyrst og fremst meiri hagnaður og hærri arðgreiðslur til eigenda. Indriði H. Þorláksson fyrrverandi ríkisskattstjóribendir á þessi ójafnaðaráhrif af gengisveikingum: „Þær bjarga ekki þjóðarbúinu frá orðnum skaða en ákveða hver ber hann. Þær leysa hvorki undirliggjandi ójafnvægi í utanríkisviðskiptum né bæta fyrir ytri áföll, þær flytja kostnaðinn af hvoru tveggja yfir á almenning með skertum kaupmætti og varanlegri eignatilfærslu frá launafólki til eigenda fjármagns.“ Arnór Sighvatsson, fyrrverandi aðstoðarseðlabankastjórilýsir þessu sem „óhagkvæmum, ósanngjörnum og tilviljunarkenndum tilfærslum á milli hópa“. Áhrifin hafa meðal annars birst í stórauknum uppkaupum eigenda útgerðarfyrirtækja á fyrirtækjum í óskyldum rekstri eftir hrun. Almennt eru áhrif gengisveikingar þau að eigendur útflutningsfyrirtækja auka hagnað sinn en launafólk sem fær greitt í krónum verður fyrir kaupmáttarrýrnun. Fjármagnið vinnur, launafólk tapar. Þeir sem eiga erlendar eignir eða tekjur í erlendri mynt eru í skjóli. Þeir sem eiga miklar peningalegar eignir geta hoppað út úr krónunni þegar gengið er hátt og komið aftur inn þegar það er lágt. Þeir sem skulda eru hins vegar fastir í krónuhagkerfinu sama hvernig viðrar. Verðtrygging og vaxtahækkanir magna kjararýrnunina Ísland er lítið hagkerfi og gríðarlega háð vöruinnflutningi. Möguleikar okkar á að skipta innfluttum vörum út fyrir innlenda framleiðslu eru takmarkaðir. Gengislækkun verður þannig fyrst og fremst til þess fallin að hækka verð og viðhalda háu verði á vörum á borð við matvæli, eldsneyti, lyf, fatnað og byggingarefni. Verðtryggingin – sem er alltumlykjandi í íslensku hagkerfi einmitt sem vörn gegn sveiflum krónunnar – fleytir síðan þessari verðbólgu út í lán, leigu, gjöld og samninga af ýmsu tagi og Seðlabankinn svarar með hærri vöxtum sem leggja enn frekari byrðar á skuldug heimili og fyrirtæki. Hvað kostar höggdeyfingin? Gengishrun krónunnar við bankahrunið 2008 var ekki sársaukalaust. Verðbólga rauk upp í 18 prósent og stýrivextir voru hækkaðir upp í sömu tölu. Kaupmáttur launafólks hrundi og fjöldi fólks missti húsnæði sitt. Fáir horfa með söknuði til þessarar aðlögunar, en viðskiptahalli Íslands hvarf vissulega og samkeppnisstaða útflutnings styrktist sem hjálpaði til við að leggja grunn að efnahagsbata. Hvort gengisrýrnunin hafi verið sérstakur orsakaþáttur í ferðaþjónusprengingunni sem fylgdi í kjölfarið er erfitt að fullyrða nokkuð um. Eftir stendur kannski spurningin: Vegur ábatinn af þessari höggdeyfingu við sérstakar aðstæður þyngra heldur en allur beini og óbeini kostnaðurinn, ár eftir ár, af því að halda úti smæsta sjálfstæða gjaldmiðili í heimi, með tilheyrandi gengisáhættu, viðskiptakostnaði, vaxtaálagi og samkeppnishindrunum? Höggdeyfisrökin nægja að minnsta kosti ekki til að sannfæra mig um að Ísland eigi að útiloka evruna og dýpra efnahagssamstarf við vinaþjóðir okkar í Evrópu. En tækifæri og áskoranir við inngöngu í myntbandalag verður að vega og meta með hliðsjón af kostum og göllum sem fylgja fullri aðild að Evrópusambandinu. Til þess að slíkt hagsmunamat geti farið fram þurfum við að sjá alla myndina. Hún fæst aðeins með því að ljúka aðildarviðræðum og fá samning á borðið. Höfundur er umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Evrópusambandið Íslenska krónan Verðlag Jóhann Páll Jóhannsson Mest lesið Eineltið byrjar kannski við eldhúsborðið! Birta Róbertsdóttir Skoðun Þegar veikindaleyfi verður að fríi Gunnar Ármannsson Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson Skoðun Hvaða skilaboð erum við að senda framtíðarkennurum? Eyrún Ósk Hjartardóttir Skoðun Við erum rétt að byrja Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson Skoðun Skoðun Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Íslenska Z-kynslóðin hefur hægt um sig Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin kjósa – en hver hefur eftirlit með forsetanum? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason skrifar Skoðun Heimili á hjólum er líka heimili Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Almannaréttur er heilagur réttur Þórarinn Eyfjörð skrifar Skoðun Við erum rétt að byrja Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Að eldast er að lifa Halldór S. Guðmundsson,Sirrý Sif Sigurlaugardóttir skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð á gervigreindinni? Kristján Logason skrifar Skoðun Draumsýn menntamála Álfhildur Leifsdóttir ,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson skrifar Skoðun Skipulögð brotastarfsemi kallar á nýja hugsun Heiðrún Jónsdóttir,Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Tvöfalt álag – frjósemi á vinnustað Sigríður Auðunsdóttir skrifar Sjá meira
Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar
Skoðun Skipulögð brotastarfsemi kallar á nýja hugsun Heiðrún Jónsdóttir,Íris Björk Hreinsdóttir skrifar
Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun