Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Peningastefnunefnd Seðlabankans hefur ákveðið að halda stýrivöxtum óbreyttum í 7,25 prósentum. Seðlabankastjóri segir aukna verðbólgu ekki gefa tilefni til hækkunar. Laun hækki þó of hratt sem hefur mikil áhrif á efnahaginn. Viðskipti innlent 4.2.2026 12:21
Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri og formaður peningastefnunefndar, og Þórarinn G. Pétursson, varaseðlabankastjóri og staðgengill formanns peningastefnunefndar, kynna yfirlýsingu nefndarinnar klukkan 09:30. Karen Áslaug Vignisdóttir, framkvæmdastjóri sviðs hagfræði og peningastefnu og aðalhagfræðingur bankans kynnir nýja útgáfu Peningamála. Beina útsendingu af kynningunni má sjá hér að neðan. Viðskipti innlent 4.2.2026 09:00
Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda stýrivöxtunum óbreyttum og verða þeir því áfram 7,25 prósent. Viðskipti innlent 4.2.2026 08:30
Framvirk gjaldeyrisstaða fjárfesta tók stökk þegar gengi krónunnar veiktist Innherji 23.12.2025 09:22
Nefndarmaður hefði kosið að halda stýrivöxtunum óbreyttum Herdís Steingrímsdóttir, nefndarmaður í peningastefnunefnd Seðlabankans, studdi tillögu seðlabankastjóra um að lækka stýrivexti um 25 punkta í síðasta mánuði en hefði þó kosið að halda vöxtum óbreyttum. Viðskipti innlent 4. desember 2025 10:48
Skörp kröfulækkun ríkisbréfa með milljarða innflæði frá erlendum sjóðum Markaðsvextir óverðtryggðra ríkisskuldabréfa lækkuðu skarpt í dag í umtalsverðri veltu sem er meðal annars rakin til milljarða króna fjármagnsinnflæðis frá erlendum skuldabréfasjóðum. Eftir að hafa veikst nokkuð á undanförnum vikum styrktist gengi krónunnar því á nýjan leik. Innherji 25. nóvember 2025 16:34
„Aumingjalegt skref“ í rétta átt Vilhjálmur Birgisson formaður Starfsgreinasambandsins, hefði viljað sjá að lágmarki fimmtíu punkta lækkun hjá peningastefnunefnd Seðlabankans. Honum finnst 25 punkta lækkun ekki nóg. Viðskipti innlent 19. nóvember 2025 10:41
Fullt tilefni enda hafi aðstæður gjörbreyst á skömmum tíma Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, fagnar mjög að peningastefnunefnd Seðlabankans hafi lækkað stýrivexti um 0,25 prósentustig í morgun. Þrálát verðbólga hafi komið í veg fyrir meiri lækkun. Viðskipti innlent 19. nóvember 2025 10:32
Bein útsending: Rökstyðja lækkun stýrivaxta Fulltrúar peningastefnunefndar Seðabankans munu gera grein fyrir ákvörðun nefndarinnar um að lækka stýrivexti um 25 punkta á blaðamannafundi sem hefst klukkan 9:30. Viðskipti innlent 19. nóvember 2025 09:00
Seðlabankinn lækkar óvænt stýrivexti Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að lækka stýrivexti bankans um 25 punkta og fara því þeir úr því að vera 7,5 prósent og í 7,25 prósent. Viðskipti innlent 19. nóvember 2025 08:31
Minnkar gjaldeyriskaupin núna þegar evran er komin í sitt hæsta gildi á árinu Eftir að hafa staðið að reglubundnum gjaldeyriskaupum á markaði undanfarna mánuði fyrir samanlagt nærri fimmtíu milljarða hefur Seðlabankinn ákveðið að draga úr umfangi þeirra um helming. Ákvörðunin kemur í kjölfar nokkurrar gengisveikingar krónunnar síðustu vikur, en hún er núna í sínu lægsta gildi á móti evrunni í eitt ár. Innherjamolar 16. nóvember 2025 12:03
Lækka verðmatið á Icelandair og spá þungri samkeppnisstöðu vegna sterkrar krónu Verðmat á Icelandair er lækkað lítillega eftir uppgjör síðasta fjórðungs, einkum vegna lakari samkeppnishæfni samhliða mikill gengishækkun krónunnar, en virði félagsins er samt talið umtalsvert hærra miðað við núverandi markaðsgengi. Innherjamolar 14. nóvember 2025 14:36
Spá að stýrivextir haldist óbreyttir Greining Íslandsbanka spáir því að stýrivextir Seðlabankans muni haldast óbreyttir í 7,5 prósentum á næsta vaxtaákvörðunardegi, það er á miðvikudaginn í næstu viku. Framsýn leiðsögn verði milduð talsvert í ljósi kólnandi hagkerfis og lakari efnahagshorfa og spáir bankinn að vaxtalækkunarferlið gæti hafist á ný í febrúarbyrjun 2026. Vextir muni þannig lækkað talsvert fram á næsta haust. Viðskipti innlent 12. nóvember 2025 12:50
„Dagur, enga frasapólitík hér“ Þingmaður Samfylkingarinnar segir hagsmunaöfl leggja „þagnarhönd“ yfir umræðu um evruna og ESB. Hann vill að Ísland gangi í ESB og taki upp evruna því að hann telur það tryggja lægri vexti. Varaformaður Framsóknarflokksins telur skynsamlegra að ráðast í kerfisbreytingar hér heima til að bregðast við háu vaxtastigi. Innlent 9. nóvember 2025 14:09
Nálgast „heilbrigðara“ gildi þegar búið er að vinda ofan af vaxtamunarviðskiptum Gengi krónunnar hefur veikst um liðlega fjögur prósent á skömmum tíma, sem má einkum rekja til þess að erlendir skuldafjárfestar eru að vinda ofan af vaxtamunarviðskiptum sínum, og er gildi hennar núna að nálgast „heilbrigðari“ slóðir fyrir útflutningsgreinar, að sögn sérfræðings á gjaldeyrismarkaði. Innherji 5. nóvember 2025 16:18
Krónan úthlutar ekki byggingalóðum Við þekkjum fullyrðingar um það að háir vextir og mikil verðbólga sé óhjákvæmilegur fylgifiskur krónunnar vegna þess að hún sé smár sjálfstæður gjaldmiðill. Hins vegar eru það einungis fullyrðingar. Þeim fylgir sjaldnast einhver röstuðningur og aldrei rök sem standast nánari skoðun. Skoðun 5. nóvember 2025 06:30
Fullyrðingar Sigurðar um minni verðbólgu standist ekki Hagstofan segir að ummæli framkvæmdastjóra Samtaka iðnaðarins, um að vísitala neysluverðs, eða verðbólga, hefði mælst töluvert minni ef ekki hefði verið skipt um reikniaðferð í fyrra, standist ekki. Hann sagði að samkvæmt gömlu reiknireglunni væri verðbólgan prósentustigi lægri. Hagstofan segir fullyrðinguna ekki standast. Viðskipti innlent 4. nóvember 2025 16:22
Evra vs. króna. Áhugaverð viðbrögð við ótrúlegum vaxtamun Ég birti grein í síðustu viku þar sem ég reiknaði einföld dæmi um þann ótrúlega mun sem er á evruvöxtum og krónuvöxtum. Ekkert eitt atriði hækkar íbúðaverð jafnmikið á byggingarstigi og vaxtakostnaður verktaka á byggingartíma. Skoðun 4. nóvember 2025 11:30
Óbærilegur ómöguleiki íslenskrar krónu Talsvert hefur verið rætt um gengi krónunnar að undanförnu og þá aðalega vegna þess að ýmsir telja gengið of hátt skráð. Sterkt gengi hennar ætti til hins vegar að vera til hagsbóta fyrir neytendur þar sem allur innflutningur væri þá á lægra verði og við fengjum meira fyrir krónuna. Skoðun 4. nóvember 2025 07:04
Fagnar komu Dags um borð í evrubátinn Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra fagnar því að þungaviktarfólk í Samfylkingunni sé farið að tala hátt, skýrt og af skynsemi um evruna. Um sé að ræða eitt stærsta hagsmunamál almennings á Íslandi í dag. Innlent 31. október 2025 17:06
Gengishækkun síðustu mánaða þurrkast út eftir sölu erlendra sjóða á ríkisbréfum Erlendir sjóðir hafa brugðist við breyttum efnahagshorfum hér á landi með því að losa um stöður sínar í íslenskum ríkisskuldabréfum fyrir marga milljarða á síðustu dögum, sem hefur drifið áfram snarpa veikingu á gengi krónunnar, en þrátt fyrir þær sölur hefur ávöxtunarkrafa bréfanna lækkað. Innherji 31. október 2025 10:10
Verðbólguþróunin áhyggjuefni Aukin verðbólga milli mánaða er áhyggjuefni að mati hagfræðings hjá Íslandsbanka. Peningastefnunefnd Seðlabankans horfi til nýrrar mælingar og haldi vöxtum líklega óbreyttum í nóvember. Viðskipti innlent 30. október 2025 12:00
Útflutningsfélögin verma botnsætin eftir mikla raungengisstyrkingu krónunnar Það eru krefjandi tímar í atvinnulífinu um þessar mundir með hækkun raungengis og almennt meiri launahækkunum hér á landi síðustu ár en þekkist í öðrum löndum sem er glögglega farið að koma fram í uppgjörum útflutningsfyrirtækja og annarra félaga með tekjur í erlendri mynt. Áberandi er hvað þau fyrirtæki í Kauphöllinni, einkum sem eru sjávarútvegi, hafa skilað hvað lökustu ávöxtuninni á markaði undanfarna tólf mánuði. Innherji 25. október 2025 13:28
Heimilin þurfi að undirbúa sig fyrir að það reyni á svigrúm þeirra Björn Berg fjármálaráðgjafi segir verðlag hafa hækkað töluvert undanfarið og ólíklegt sé að þær hækkanir gangi til baka þótt verðbólga hafi hjaðnað. Hjaðnandi verðbólga þýði aðeins að verðlag hækki ekki eins hratt og áður. Verðbólgan sé nú komin í fjögur prósent og fólki líði mögulega þá eins og verðlag eigi að batna en það þýði í raun aðeins að verðlag hækki ekki eins hratt og áður. Neytendur 22. október 2025 23:02
Peningasendingar til fólks búsett erlendis margfaldast og voru 55 milljarða í fyrra Með mikilli fjölgun einstaklinga á íslenskum vinnumarkaði með erlendan bakgrunn á undanförnum árum hefur á sama tíma umfang peningasendinga til fólks sem er búsett erlendis margfaldast og nam fjárhæð þeirra á árinu 2024 samtals um 55 milljarðar króna. Innherji 20. október 2025 17:44