Hækka stýrivexti Árni Sæberg skrifar 19. ágúst 2026 08:30 Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri og formaður peningastefnunefndar, og Þórarinn G. Pétursson, varaseðlabankastjóri peningastefnu. Vísir/Vilhelm Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka stýrivexti um 0,25 prósentustig. Þeir eru nú 8 prósent. Fjórir nefndarmenn studdu þessa ákvörðun en einn vildi halda vöxtum óbreyttum.
Þetta segir í yfirlýsingu nefndarinnar, sem gefin var út klukkan 08:30. Þar segir að verðbólga hafi verið yfir 5 prósent það sem af er ári og mælst 5,3 prósent í júlí. Samkvæmt nýbirtri spá Seðlabankans sé talið að hún aukist enn frekar á næstu mánuðum en hjaðni tiltölulega hratt þegar kemur fram á næsta ár. Aukning mældrar verðbólgu hafi fyrst og fremst litast af hækkun opinberra gjalda og áhrifum stríðsátaka í Mið-Austurlöndum. Undirliggjandi verðbólga hafi haldist stöðug og sé tekin að hjaðna á suma mælikvarða í takt við vaxandi slaka í þjóðarbúinu. Annarrar umferðar áhrif þessara verðhækkana virðast því enn sem komið er vera minni en upphaflega var óttast. Þá hafi verðbólguálag á markaði einnig lækkað á ný eftir hækkun í vor. Óvissan áfram mikil „Verðbólguvæntingar eru þó enn of háar og undirliggjandi verðbólga of mikil. Þó búist sé við að verðbólga hjaðni hratt á næsta ári er óvissa áfram mikil ekki síst hvað varðar þróun alþjóðlegra efnahagsmála og framvindu á innlendum vinnumarkaði.“ Í ljósi mikillar verðbólgu og hárra verðbólguvæntinga telji peningastefnunefnd rétt að hækka vexti bankans til að tryggja nægjanlegt peningalegt aðhald. Mótun peningastefnunnar muni þó sem fyrr ráðast af þróun efnahagsumsvifa, verðbólgu og verðbólguvæntinga. Greiningaraðilar sannspáir Flestir greiningaraðilar höfðu spáð því að stýrivextir yrðu hækkaðir. Stóru viðskiptabankarnir þrír spáðu allir 0,25 prósenta hækkun. Þau Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri, Þórarinn G. Pétursson, varaseðlabankastjóri peningastefnu og Karen Áslaug Vignisdóttir, aðalhagfræðingur Seðlabankans og framkvæmdastjóri sviðs hagfræði og peningastefnu, kynna ákvörðun peningastefnunefndar og nýútgefin Peningamál á blaðamannafundi klukkan 09:30. Fundinn má sjá í beinni útsendingu í spilaranum hér að neðan:
Seðlabankinn Verðlag Íslenska krónan Efnahagsmál Kjaramál Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki Sjá meira