Jafnt hjá Sevilla og Barcelona Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 9. febrúar 2008 23:20 Xavi fagnar jöfnunarmarki Barcelona í kvöld. Nordic Photos / AFP
Eiður Smári Guðjohnsen lék síðasta rúma hálftímann er Sevilla og Barcelona gerðu 1-1 jafntefli í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld. Diego Capel kom heimamönnum í Sevilla yfir á 35. mínútu en markið skoraði hann eftir fyrirgjöf Jesus Navas frá hægri. Þetta var fyrsta mark táningsins Capel með aðalliði Sevilla en hann verður tvítugur í næstu viku. Xavi jafnaði metin á 76. mínútu eftir gott samspil við Lionel Messi sem hafði annars hægt um sig í leiknum. Úrslitin þýða að Real Madrid getur komið sér í átta stiga forystu á toppi spænsku deildarinnar ef liðið vinnur Valladolid á morgun. Sevilla stjórnaði leiknum í fyrri hálfleik en innkoma þeirra Ronaldinho og Marquez í hálfleiknum gerði það að verkum að Börsungar komust betur inn í leikinn. Seydou Keita, leikmaður Sevilla, fékk að líta tvö gul spjöld í síðari hálfleik og þar með rautt. Það var heldur strangur dómur en fyrra gula spjaldið fékk hann eftir heldur sakleysislega baráttu við Eið Smára. Tveir aðrir leikir fóru fram í spænsku úrvalsdeildinni fyrr í kvöld. Deportivo og Getafe gerðu 1-1 jafntefli og Villarreal lagði Real Murcia á útivelli, 1-0. Real Madrid er á toppnum með 53 stig og Barcelona í öðru sæti með 48 stig. Villarreal er í þriðja sætinu með 42 stig, þremur stigum á undan Espanyol sem á leik til góða.
Spænski boltinn Mest lesið Skoða stækkun typpa í skíðastökki Sport Missir af Ólympíuleikunum af því að móður hennar var rænt Sport Arnór fékk allt greitt frá Rússunum og saknar landsliðsins Fótbolti Brunaði niður brekkuna viku eftir að hafa slitið krossband Sport JD Vance með þrjú hundruð öryggisverði á Ólympíuleikunum Sport Búast við yfir tuttugu og sex milljón meldingum um veikindi Sport Fær ekki að keppa á Ólympíuleikunum af því að hún er kona Sport Casemiro í viðtali við Sýn Sport: „Hann veit hvernig stuðningsmenn vilja spila“ Enski boltinn Fyrrum leikmaður Aftureldingar og Fram á forsíðu fræga sundfatablaðsins Fótbolti Útskrifast úr Verzló og heldur út í atvinnumennsku: „Rétt skref fyrir mig“ Handbolti Fleiri fréttir Lengjubikarinn: Fylkir vann Breiðablik og FH skoraði sjö Hjörtun í vörn Íslands mættust ekki í kvöld Arnór fékk allt greitt frá Rússunum og saknar landsliðsins Þvertaka fyrir að þjálfarinn stökkvi frá borði rétt fyrir HM Arteta með lykilmenn meidda og svaraði ásökunum Segir fótboltasérfræðinga bera ábyrgð FH sækir sænskan miðvörð Úlfar í sauðagæru? „Myndi segja að þetta sé framsækin nálgun“ Sakar Arsenal um virðingarleysi „Skrítið að klæðast grænu en það mun venjast hratt“ Leicester missir sex stig og er í mikilli hættu á að falla annað árið í röð Arne Slot: Jérémy Jacquet er gríðarlegt efni Fyrrum leikmaður Aftureldingar og Fram á forsíðu fræga sundfatablaðsins Casemiro í viðtali við Sýn Sport: „Hann veit hvernig stuðningsmenn vilja spila“ Juve hent út úr bikarnum í vel heppnaðri hefndartilraun Alfons lá eftir en fékk svo boltann og skoraði Samþykkti að taka slaginn en sleit strax hásin Vinna hafin en langur vegur að stofnun nýs knattspyrnufélags í Breiðholti Fjölgar í hópi Íslendinga hjá Inter Skilur ekki af hverju Guéhi má ekki spila úrslitaleikinn Heillaður af Hollandi og lætur ekki háan verðmiða trufla sig „Þetta er Sádi-Arabía, ekki Ronaldo-Arabía“ „Kannski ekki með sömu FH-gleraugu og margir aðrir þjálfarar“ Liverpool seinkaði komu Jeremy Jacquet af ásettu ráði „Don Orri Steinn Óskarsson“ Orri hetjan er Sociedad tryggði sæti í undanúrslitum Manchester City mætir Arsenal í úrslitaleik Verkfalli Ronaldo lokið Mikil óvissa uppi varðandi Guardiola Enginn Ásgeir í öflugri einkadeild Seðlabankans Sjá meira