Maðurinn er puttabrotinn 15. mars 2008 16:17 Carmelo Anthony og Allen Iverson eru miklir mátar NordcPhotos/GettyImages
Framherjinn Carmelo Anthony hjá Denver fann sig knúinn til að leiðrétta fjölmiðlamann í nótt þegar hann var að tala um meiðsli bakvarðarins Allen Iverson. Iverson átti stórleik með Denver í nótt þegar liðið burstaði Toronto 137-105 á heimavelli sínum. Hann hitti úr 9 af 12 skotum sínum og öllum 10 vítum sínum og skoraði 28 stig. Iverson er stigahæsti leikmaður Denver með 26,6 stig að meðaltali í leik en Anthony kemur þar skammt á eftir með 25,5 stig. Blaðamaður í búningsklefa Denver-liðsins sagði frammistöðu hins smáa en knáa Iverson aðdáunarverða í ljósi þess að Iverson væri að spila "slæmur í fingrinum." "Hann er fingurbrotinn - ekki slæmur í puttanum. Vertu viss um að hafa það rétt," sagði Carmelo Anthony, sem sjálfur skoraði 22 stig í leiknum. "Að maður skuli spila svona puttabrotinn sýnir bara hugarfar hans svart á hvítu, stolt hans og ást hans á leiknum," bætti Anthony við. Denver er í harðri baráttu um áttunda og síðasta sætið inn í úrslitakeppni Vesturdeildarinnar, en hætt er við því að liðið verði að taka sig heldur betur saman í andlitinu ef það ætlar að hirða áttunda sætið af Golden State. Efstu lið í Vesturdeildinni: 1. Lakers 45-20 2. Houston 45-20 3. New Orleans 44-20 4. Utah 44-23 5. San Antonio 44-21 6. Phoenix 43-22 7. Dallas 43-23 8. Golden St. 40-24 --------------------9. Denver 39-26 10. Portland 34-32
NBA Mest lesið Pálmi í ótímabundið leyfi Íslenski boltinn Sá húsið sitt brenna til kaldra kola Körfubolti Erfitt að heyra hvað Orri hefur þjáðst Fótbolti Eigandi Nott.Forest ákærður fyrir tengsl við glæpagengi Sport Stelpurnar okkar fá ekki leiki vegna sparnaðar Fótbolti Donald Trump að fá friðarverðlaun frá FIFA? Fótbolti Fylgist spenntur með Viktori: „Þetta er með ólíkindum“ Fótbolti Endurkoma ársins: Á Norðurlandamót aðeins ellefu mánuðum eftir hálsbrot Sport Hlýnun jarðar á að hafa mikil áhrif á maraþonhlaup í heimnum Sport Greint frá ráðningu á vef nýja þjálfarans Handbolti Fleiri fréttir Sá húsið sitt brenna til kaldra kola „Ha, átti ég metið?“ Rebekka Rut nýliði í fyrsta landsliðshóp Salminen Uppgjörið: KR - Grindavík 68-85 | Gestirnir á toppinn Valskonur niðurlægðu Íslandsmeistarana Tryggvi með flest fráköst í Evrópusigri Sjaldgæf 30-20-10 þrenna í Síkinu í gær Sömu félög að spila í tveimur íþróttum í sama húsinu á sama tíma Kristófer Acox kallar sig glæpamann Uppgjörið: Njarðvík - Hamar/Þór 88-61 | Auðsóttur sigur Njarðvíkinga Keflavíkursigur í kaflaskiptum leik Stjarnan með þægilegan sigur á nýliðunum Hverjir eru bestu ungu strákarnir í Bónus-deildinni? Söguleg byrjun OKC á tímabilinu Íslandsmeistararnir mæta bikarmeisturunum Skagamenn senda Kanann heim Tilþrif 5. umferðar: Jukic stal senunni Ólíkar niðurstöður hjá landsliðsmönnunum Er Tóti Túrbó ofmetinn? „Gott að við gátum verið liðið sem kláraði þetta“ Erfitt kvöld fyrir Ármann og Tindastól Tvöföld tvenna Tryggva í tæpu tapi Góður lokaleikhluti tryggði Njarðvík sigurinn Styrmir með þrettán í öruggum sigri Zamora Uppgjörið: Valur - KR | 93-100 | KR hafði betur í slag Reykjavíkurstórveldanna Diljá stórkostleg í lokin í endurkomu í Hveragerði „Einn af bestu leikmönnunum í sögu íslensks körfubolta“ Hlýtur að vera alvöru krísufundur í Valsheimilinu um helgina Besta byrjun Chicago Bulls síðan Jordan var í liðinu Blikar áfram með fullt hús stiga Sjá meira