Heiðar að mestu skilinn við Novator 18. mars 2009 00:01 Heiðar Már Guðjónsson
Heiðar Már Guðjónsson, framkvæmdastjóri Novator, á tíðum nefndur hægri hönd Björgólfs Thors Björgólfssonar, stjórnarformanns Straums og meirihlutaeiganda Novator, hefur að mestu sagt skilið við fyrirtækið. Eftir því sem næst verður komist hefur mjög dregið úr verkefnum Heiðars þótt hann sinni einstaka stórverkum, svo sem í tengslum við finnska íþróttavörurisann Amer Sports. Heiðar, sem hefur verið ötull talsmaður fyrir einhliða upptöku evru eftir bankahrunið í október í félagi við Ársæl Valfells, lektor við viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands, starfar nú hjá vogunarsjóðnum Clarium. Bandaríski frumkvöðullinn Peter Thiel setti Clarium á laggirnar fyrir sjö árum í kjölfar sölu á netgreiðsluþjónustunni PayPal, sem hann stofnaði ásamt öðrum, en seldi uppboðsvefnum eBay. Thiel hefur komið að fjárfestingum í fjölda sprotafyrirtækja síðan þá sem orðið hafa risar, svo sem í LinkedIn og Facebook. Thiel flytur senn búferlum til Sviss og mun Heiðar starfa þar, samkvæmt heimildum Markaðarins.
Markaðir Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Sjá meira