Grænir sprotar efnahagsbatans 18. mars 2009 00:01 Nú er komið að því að Íslendingar ákveði hvort þeir ætla að taka höndum saman um að rífa sig upp úr svartnætti vetrarins og horfa fram á veginn með markvissri uppbyggingu samfélagsins eða halda áfram að vorkenna sér. Ég geri ekki lítið úr þeim mikla vanda sem við er að fást vegna atvinnuleysis, erfiðrar skuldastöðu heimila og atvinnulífs, gjaldeyrishafta og þeirra alvarlegu tafa sem orðið hafa á endurreisn bankakerfisins. Mikilli orku hefur verið eytt í að leita svara við því hvað fór útskeiðis og finna þá sem bera ábyrgð. Löggjafinn hefur þegar komið á fót rannsóknarnefnd og embætti sérstaks saksóknara sem hafa það verkefni að leiða sannleikann í ljós og láta þá svara til saka sem kunna að hafa gerst brotlegir. Ég tel mikilvægt að sú vinna fari fram á þeim vettvangi. Við verðum að treysta réttum yfirvöldum fyrir því og láta af þeirri iðju að taka fólk unnvörpum af lífi án dóms og laga. Slík vinnubrögð munu ekki leiða til farsældar. Alþingi götunnar bætir okkur ekki. Í ræðu minna á nýafstöðnu iðnþingi hvatti ég fjölmiðla og aðra áhrifaaðila í þjóðfélaginu til að fara nú að horfa út úr myrkrinu og leggjast á árar með þeim sem vilja taka til við það af krafti að byggja samfélagið upp að nýju. Í efnahagslegu tilliti verður sú uppbygging að fara fram með aukinni verðmætasköpun í atvinnulífinu. Við þurfum öflugan hagvöxt. Við þurfum að skapa störf til að sporna við atvinnuleysi. Við þurfum að efla útflutning og gjaldeyrissparandi framleiðslu í landinu. Við þurfum að nýta orkuauðlindir og allar aðrar auðlindir landsins af fullum þunga en einnig af skynsemi. Við höfum ekki efni á að láta nein tækifæri fram hjá okkur fara. Við höfum ekkert að gera við stjórnvöld eða embættismenn sem hamla gegn uppbyggingu og standa í vegi fyrir verðmætaskapandi atvinnufyrirtækjum. Á iðnþingi var fjallað um þau miklu tækifæri sem Íslendingar eiga þrátt fyrir allt. Þrátt fyrir skugga vandamála og ógnvekjandi atburða á liðnum mánuðum ríkti bjartsýni á iðnþinginu. Við gerum okkur ljóst að það býr mikill kraftur í Íslendingum. Við eigum miklar auðlindir. Við eigum menntað fólk og við eigum fólk sem er vant að takast á við sveiflur og erfiðleika - og sigrast á þeim. Vandinn sem við er að fást er að hluta til huglægur þó hann sé einnig býsna áþreifanlegur. Við verðum að trúa því að Íslendingar geti náð sér á strik með öflugri atvinnuuppbyggingu og aukinni verðmætasköpun. En það verður einnig að gera þá kröfu að stórlega dragi úr niðurrifi og neikvæðni. Það skilar okkur engu nema vonbrigðum. Íslenskur iðnaður gegnir mikilvægu hlutverki í verðmætasköpun Íslendinga. Iðnaðurinn verður að leggja mikið til hagvaxtar næstu ára ef endurreisnin á að takast fljótt og vel. Þar verðum við að treysta á hina miklu breidd iðnaðarins, allt frá sprotafyrirtækjum til stóriðju og allt þar á milli. Nú þarf að ljúka nokkrum forgangsmálum til þess að hjólin fari að snúast í rétta átt: 1. Fyrsta krafan er áfram um lækkun vaxta, afnám gjaldeyrishafta eins fljótt og aðstæður leyfa og endurreisn stóru bankanna þannig að þeir geti af fullu afli sinnt grunnviðfangsefnum sínum, þjónustu við fólk og fyrirtæki. 2. Það þarf að greiða úr óvissu varðandi sparisjóði og smærri fjármálafyrirtæki, m.a. með því að nýta lagaheimildir til að leggja þeim til 20% eiginfjárframlag þar sem líklegt er að það dugi þeim til að komast á beinu brautina. Þessi fyrirtæki eiga að geta gegnt mikilvægu hlutverki í starfsemi á fjármálamarkaði og skapað mótvægi við núverandi ríkisbanka og aukið samkeppni þegar eðlilegt ástand skapast. 3. Það þarf að taka af skarið varðandi úrlausnir í bankakerfinu vegna framvirkra samninga sem atvinnulífið og lífeyrissjóðir gerðu í góðri trú áður en bankarnir hrundu. Þessi mál hafa verið til umfjöllunar í allan vetur án niðurstöðu. Það er farið að skaða starfsemi aðila mjög alvarlega. Ekki verður lengur undan því vikist að höggva á hnútinn. 4. Það þarf hið fyrsta að taka afstöðu til niðurfellinga og leiðréttinga á uppsöfnuðum skuldum fólks og fyrirtækja vegna ofurvaxta síðari ára, gengistapakostnaðar sem er að sliga allt of marga. Ýmsar hugmyndir hafa verið uppi, m.a. frá framsóknarmönnum um 20% niðurfærslu. Þær hafa ekki fengið næga athygli fyrr en allra síðustu daga. Hugmyndum þeirra, sem fleiri hafa nú tekið undir, er ekki hægt að henda óræddum út af borðinu nema stjórnvöld og önnur ráðandi öfl komi með betri lausnir. 5. Þá vil ég vara við hugmyndum um stofnun sérstaks eignaumsýslufélags ríkisins sem hefði það hlutverk að taka til sín „þjóðhagslega mikilvæg" fyrirtæki með það að markmiði að endurskipuleggja þau fjárhagslega og ráðstafa þeim síðan eftir einhver ár í ríkiseigu og ríkisrekstri. Þetta er afleit hugmynd og brýnt er að leiða Alþingi það fyrir sjónir að stofnun þessa félags væri afleikur. Íslendingar hafa næga reynslu af fyrirbærum eins og Framkvæmdastofnun ríkisins sem sett var á stofn í byrjun áttunda áratugarins, Hlutabréfasjóðnum sem stofnaður var í lok níunda áratugarins og öðru slíku. Sporin hræða og starfsemi slíkra stofnana var kölluð „sjóðasukk" af sumum og það tók langan tíma að greiða úr þeim vandamálum sem urðu til með starfsemi þeirra. Það verður að leysa vanda stærri fyrirtækja með öðrum hætti en stofnun eignarhaldsfélags ríkisins að sænskri fyrirmynd. Við skulum nú varast að sækja allar lausnir og sannleikann til útlanda! Nýtum okkur eigin reynslu - m.a. af því sem gert var rangt fyrir áratugum með vanhugsuðum stofnunum. Nú er mikilvægt að ríkisstjórn og Alþingi afgreiði brýnustu mál áður en kosningabaráttan tekur við af löggjafarstörfum. Það er ekki hægt að bíða fram í mai eða júní eftir að ný ríkisstjórn geti farið að beita sér af krafti. Ef Íslendingar taka nú réttar ákvarðanir og fara að horfa fram á veginn til að vinna úr því sem er jákvætt og mögulegt þá mun rofa fyrr til á Íslandi en ætlað hefur verið. Jákvæð teikn eru aðeins farin að sjást úti í hinum stóra heimi. Ástand mála á heimsmarkaði varða okkur miklu. Ben Bernanke, seðlabankastjóri Bandaríkjanna, sagði í samtali við CBS-sjónvarpsstöðina í byrjun þessarar viku að hann væri þegar farinn að sjá „græna sprota" efnahagsbatans. Það eru góðar fréttir. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Markaðir Viðskipti Mest lesið Af hverju endurbætt Suðurlandsbraut? Atli Björn Levy Skoðun Ég veit hvern ég styð Elliði Vignisson Skoðun Það er gott að... í Kópavogi Halldór Benjamín Þorbergsson Skoðun Báknið minnkað, Miðflokkur á móti Sverrir Páll Einarsson Skoðun Opið bréf til stjórnar Háskólans á Bifröst Hrafnhildur Theodórsdóttir Skoðun Toyotan, sviðasultan & kötturinn Árni Stefán Árnason Skoðun Offita er ekki tilviljun – hún er kerfisvandi Elísabet Reynisdóttir Skoðun Er Borgarlínan metnaðarfull framtíðarsýn eða tálsýn? Kristín Thoroddsen Skoðun Hvergi meiri ánægja með þjónustu við börn og barnafólk Grétar Ingi Erlendsson Skoðun Banaslys á sjúkrahúsum: reynsla sem þarf að læra af Gunnar Salvarsson Skoðun Skoðun Skoðun Að stíga eitt skref til baka Ingibjörg Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Eyðimerkurganga Félags fósturforeldra Guðlaugur Kristmundsson skrifar Skoðun Birtan af Myrkum músíkdögum Ásmundur Jónsson,Björg Brjánsdóttir,Gunnhildur Einarsdóttir,Þráinn Hjálmarsson skrifar Skoðun Hvergi meiri ánægja með þjónustu við börn og barnafólk Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Oddviti í úrvalsdeild Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Umhverfisráðherra gleymir lýðheilsu Pétur Halldórsson skrifar Skoðun Verðbólgan kemur aftur og aftur eins og illskeytt krabbamein – stjórnvöld ráðþrota Vilhelm Jónsson skrifar Skoðun Það er gott að... í Kópavogi Halldór Benjamín Þorbergsson skrifar Skoðun Hvað verður um hugmyndafræði leikskólans? Sara Margrét Ólafsdóttir,Bryndís Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Báknið minnkað, Miðflokkur á móti Sverrir Páll Einarsson skrifar Skoðun Opið bréf til stjórnar Háskólans á Bifröst Hrafnhildur Theodórsdóttir skrifar Skoðun Barnavernd á Íslandi fyrr og nú Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar Skoðun Banaslys á sjúkrahúsum: reynsla sem þarf að læra af Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Heilbrigðisþjónusta fyrir sum Telma Sigtryggsdóttir,Alma Ýr Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Offita er ekki tilviljun – hún er kerfisvandi Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Er Borgarlínan metnaðarfull framtíðarsýn eða tálsýn? Kristín Thoroddsen skrifar Skoðun Toyotan, sviðasultan & kötturinn Árni Stefán Árnason skrifar Skoðun Ég veit hvern ég styð Elliði Vignisson skrifar Skoðun Hvað getur frístundaheimili gert fyrir barnið þitt? Gísli Ólafsson skrifar Skoðun Aðgerðarleysi er ákvörðun, hún bitnar á börnunum Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar Skoðun Af hverju endurbætt Suðurlandsbraut? Atli Björn Levy skrifar Skoðun Frelsið til að skipta um skoðun Ásgeir Jónsson skrifar Skoðun Að byggja upp samfélag Pétur Björgvin Sveinsson skrifar Skoðun Samstaða um varnarmál Pawel Bartoszek,Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir skrifar Skoðun Frítt í Strætó fyrir börn og ungmenni - ólíkt hafast menn að Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Fordæmdu börnin Þráinn Farestveit skrifar Skoðun Íslensk lög sniðin að þörfum norsku laxeldisrisanna Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Fossvogur án íþrótta – afleiðingar Fossvogsbrúar Baldvin Björgvinsson skrifar Skoðun X - Orri Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Viltu nýja brú eða nýtt hné? Ódýrt lýðskrum gegn loftslagsaðgerðum Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Birtan af Myrkum músíkdögum Ásmundur Jónsson,Björg Brjánsdóttir,Gunnhildur Einarsdóttir,Þráinn Hjálmarsson skrifar
Skoðun Verðbólgan kemur aftur og aftur eins og illskeytt krabbamein – stjórnvöld ráðþrota Vilhelm Jónsson skrifar
Skoðun Hvað verður um hugmyndafræði leikskólans? Sara Margrét Ólafsdóttir,Bryndís Gunnarsdóttir skrifar
Skoðun Aðgerðarleysi er ákvörðun, hún bitnar á börnunum Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar
Skoðun Viltu nýja brú eða nýtt hné? Ódýrt lýðskrum gegn loftslagsaðgerðum Sveinn Atli Gunnarsson skrifar