Kaupmáttur á enn eftir að rýrna 24. júní 2009 02:00
Kaupmáttur launa dróst saman um eitt prósent milli apríl og maí, samkvæmt nýbirtum tölum Hagstofu Íslands. Kaupmátturinn hefur þá lækkað um 10,6 prósent frá því að hann náði sögulegu hámarki í síðustu uppsveiflu í upphafi síðastliðins árs, að því er Greining Íslandsbanka bendir á í umfjöllun sinni í gær. „Hefur kaupmáttur launa nú ekki verið jafn lítill síðan í lok árs 2003. Reikna má með því að kaupmáttur eigi enn eftir að rýrna á komandi mánuðum," segir þar. Launavísitala í maí er 356 stig og hækkaði um 0,2 prósent frá fyrri mánuði. Engu að síður má gera ráð fyrir því að launavísitalan hækki nokkuð á næstunni, að því er fram kemur í Hagsjá hagfræðideildar Landsbankans, en þar er vísað til samkomulags þess sem náðst hefur á vinnumarkaði um að almennir launataxtar muni að líkindum hækka um tæpar 6.750 krónur í næsta mánuði og aftur um sömu upphæð í nóvember. „Í kjarasamningi sem stærstu aðildarfélög ASÍ og Samtök atvinnulífsins gerðu með sér í febrúar 2008 var kveðið á um 18.000 króna launahækkun frá 1. febrúar 2008. Í mars 2008 hækkaði launavísitalan um 1,2 prósent á milli mánaða og í apríl nam hækkunin 0,9 prósentum en samningarnir komu ekki að fullu til framkvæmda fyrr en í apríl. Hækkunin var að stærstum hluta til komin vegna kjarasamnings ASÍ og SA og má því gróflega áætla að hækkunin nú skili sér í um 0,7 prósenta hækkun launavísitölunnar í júlí," segir í Hagsjánni. - óká
Markaðir Mest lesið Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent Fleiri fréttir Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Sjá meira