Feng shui meistari segir markaði róast á ári uxans 21. janúar 2009 13:34
Fjárfestar um allan heim geta nú tekið gleði sína upp að nýju eftir anno horribiles í fyrra. Feng shui meistari í Hong Kong segir að fjármálamarkaðirnir muni róast á ári uxans sem brátt gengur í garð. "Ár uxans er jarðarár þar sem fólk varpar mæðinni og íhugar hvað það skuli gera eftir erfiðleikanna árið 2008," segir Feng shui meistarinn Raymond Lo í samtali við reuters. Ár uxans hefst nú þann 26. janúar n.k.. Þeir sem aðhyllast Feng shui halda því fram að alheimurinn sé samsettur úr fimm grunneiningum, jörð, vatni, eldi, tré og málmi, sem ráða því hvernig fólki líður í umhverfi sínu. Raymond segir að jörðin sé rólegust þessara eininga og þar að auki sé árið 2009 "yin jörð" sem og ár uxans og því muni kvennlegir eiginleikar setja mark sitt á það. Fram kemur í máli Raymonds að ár uxans sé hreint jarðarár og því sé eldurinn ekki til staðar í því. Þar af leiðandi sé ekki mikill drifkraftur til staðar til að blása út hlutabréfaverð. Raymond segir að menn ættu að taka því rólega í ár og undirbúa sig. Þeir ættu að kaupa hlutabréf og fjárfesta á seinni hluta ársins og undirbúa sig þannig fyrir ár tígursins 2010 þegar allt fer á flug að nýju.
Mest lesið Enginn bragur af verðhækkunum Icelandair Neytendur Omnom gjaldþrota og kröfuhafar uggandi Viðskipti innlent Veitingastaðurinn opinn en lónið opnar síðar Viðskipti innlent Steinhissa á MR og rifjar lúmskt upp sjónvarpsleysið á fimmtudögum Atvinnulíf Innbú Play til sölu: Gæti aflað búinu fjórtán milljóna króna Viðskipti innlent Skáluðu fyrir kraftinum sem knýr samfélagið Viðskipti innlent Rifjar Ímon-málið upp 17 árum seinna: „Hreint og beint ofbeldi af hálfu opinberra starfsmanna“ Viðskipti innlent Eva og Guðrún nýir forstöðumenn hjá Icelandair Viðskipti innlent Norðlensk framleiðsla sem er að slá í gegn á Íslandi Samstarf ORA svarar fyrir fiskbúðinginn: „Stundum þarf bara pung í að gera breytingar“ Neytendur Fleiri fréttir Rúmlega þriðjungs samdráttur í olíuvinnslu í Rússlandi Burger King opnar fyrsta staðinn á Grænlandi Eigandinn hættir sem forstjóri Trump setur tolla á lyf, vörubíla og húsgögn Murdoch-feðgar verði meðal kaupenda TikTok Ben kveður Jerry Nálgast samkomulag um TikTok Breytingar hjá Microsoft koma fyrirtækinu hjá sektum Ellison klórar í hælana á Musk Danski lyfjarisinn að baki Ozempic segir upp þúsundum manna Útvaldi sonurinn tryggir sér stjórn Murdoch-veldisins Vilja að Musk fái allt að 122 billjónir á næsta áratug Vara við „Lafufu“ Framkvæmdastjóri Nestlé látinn fara í kjölfar ástarsambands Sjá meira
Rifjar Ímon-málið upp 17 árum seinna: „Hreint og beint ofbeldi af hálfu opinberra starfsmanna“ Viðskipti innlent
Rifjar Ímon-málið upp 17 árum seinna: „Hreint og beint ofbeldi af hálfu opinberra starfsmanna“ Viðskipti innlent