Viðskipti erlent

Reyna að halda sjald­gæfum málmum frá hernum

Samúel Karl Ólason skrifar
Sjaldgæfir málmar eru gífurlega mikilvægir þegar kemur að framleiðslu nútímavopna eins og herrþotna, flugskeyta og sprengja.
Sjaldgæfir málmar eru gífurlega mikilvægir þegar kemur að framleiðslu nútímavopna eins og herrþotna, flugskeyta og sprengja. Getty/Artur Widak, NurPhoto

Ráðamenn í Kína leita leiða til að koma í veg fyrir að sjaldgæfir málmar og afurðir úr þeim rati til bandarískrar hergagnaframleiðslu. Það er eftir að Xi Jinping og Donald Trump, forsetar ríkjanna, gerðu samkomulag í síðasta mánuði um að Kínverjar opnuðu aftur á flæði sjaldgæfra málma til Bandaríkjanna, eftir að hafa stöðvað það nánast alfarið.

Markmið Kínverja er að koma upp kerfi sem gerir þeim kleift að standa við loforð Xi en í senn tryggja að bandarískir vopnaframleiðendur komi ekki höndum yfir mikilvæg aðföng, sem eru nánast eingöngu fáanleg frá Kína.

Samkvæmt heimildum blaðamanna Wall Street Journal myndi kerfi þetta gera bandarískum fyrirtækjum sem framleiða bæði hergögn og vörur fyrir almenning og fyrirtæki, eins og bíla og flugvélar, erfiðara um vik með að verða sér úti um sjaldgæfa málma.

Kerfið, sem byggt er á bandarískum lögum og verkferlum gagnvart Kína, hefur þó ekki enn verið myndað að fullu og gæti tekið breytingum, samkvæmt WSJ.

Einráðir á gífurlega mikilvægum markaði

Sjaldgæfir málmar eru í stuttu máli sagt gífurlega mikilvægir við framleiðslu svo gott sem allra nútímatækja og tóla. Kínverjar eru nánast einráðir á þessum markaði eftir að hafa varið fúlgum fjár og mikilli vinnu yfir áratugi í að ná þessum yfirráðum.

Áætlanir um yfirráð Kínverja á þessum markaði eru á nokkru reiki en fyrr á þessu ári áætluðu sérfræðingar Alþjóðaorkumálastofnunarinnar að Kínverjar grafi um 61 prósent af sjaldgæfum málmum heimsins úr jörðu.

Þegar kemur að vinnslu þeirra eru Kínverjar þó með um 92 prósenta markaðshlutdeild á heimsvísu. Kínverjar eru nánast þeir einu sem vinna nokkra tiltekna málma.

Í síðasta mánuði tilkynntu ráðamenn í Kína að fyrirtæki þyrftu að fá sérstakt leyfi til að kaupa tólf tegundir sjaldgæfra málma, af sautján, eða afurðir úr þeim, frá Kína. Tilkynna þyrfti í hvað ætti að nota málmana og að engin leyfi yrðu veitt fyrir sölu málma til hergagnaframleiðslu.

Þá voru einnig tilkynntar takmarkanir þegar kemur að flutningi vara sem innihalda sjaldgæfa málma frá Kína eða byggja á tækni Kínverja á því sviði yfir landamæri annarra ríkja. Þetta átti að taka gildi fyrsta desember.

Gildistökunni var frestað um eitt ár eftir fund Trumps og Xi.

Sjá einnig: Losa hreðjatakið í eitt ár

Þótt ráðamenn í Kína hafi sagst ætla að fresta gildistöku ströngustu takmarkananna um eitt ár virðast þeir ætla að halda öðrum takmörkunum. Vestræn fyrirtæki munu áfram þurfa að biðja um sérstakt leyfi til að kaupa sjaldgæfa málma og afurðir úr þeim.

Forsvarsmenn fyrirtækja í Bandaríkjunum og í Evrópu hafa á undanförnum mánuðum kvartað undan erfiðu aðgengi að sjaldgæfum málmum. Víða er unnið að því að leita leiða til að nálgast þessa mikilvægu málma. Margir hafa beint sjónum sínum að Ástralíu en Bandaríkjamenn hafa einnig litið til Úkraínu, Austur-Kongó og Pakistan.

Mestöll tæknin og þekking til að vinna sjaldgæfa málma kemur frá Kína og það mun líklega taka þó nokkurn tíma að byggja upp nýjar birgðakeðjur fyrir Vesturlönd.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×