Í ESB fyrir Samfylkinguna? 11. mars 2009 04:00 Eftir að landsfundi Sjálfstæðisflokksins var frestað um tvo mánuði er eins og öll umræða um Evrópu hafi horfið. Fram að þeim tíma var kröftugt starf í málefnanefndum flokksins og sérstök Evrópunefnd hélt fundi um málið út um allt land. Hugmyndin hafði verið sú að nefndin skilaði áliti fyrir landsfundinn. Síðan hefur nánast ekkert gerst í þessum málum. Samfylking taldi það stjórnarslitamál, ef Sjálfstæðisflokkurinn samþykkti ekki aðildarumsókn á landsfundi. Ingibjörg Sólrún sagðist ekki hafa verið að hóta neinu heldur væri sjálfhætt, ef flokkarnir gengju ekki í takt í málinu. Í kjölfarið myndaði Samfylkingin stjórn með VG og talar um að halda samstarfi áfram eftir kosningar. Evrópa er gleymd. Sjálfstæðisflokkurinn hikaðiFráfarandi formaður Sjálfstæðisflokksins var tregur til að taka af skarið í Evrópumálum. Sagðist telja landinu best borgið utan Evrópusambandsins (ES) en þó mætti ekki útiloka neitt. Sennilegast virtist að flokkurinn hefði valið framsóknarlega stefnu. Samþykkt að hefja mætti umræður með svo miklum skilyrðum að endurskrifa þyrfti stofnskrá ES til þess að þóknast mætti Íslendingum. Geir H. Haarde lýsti því yfir að nauðsynlegt sé að fá botn í umræðuna. Það er auðvitað rétt. Hann og margir fleiri virðast samt óttast að Sjálfstæðisflokkurinn muni klofna, ef tekin er ákveðin afstaða. Þess vegna sé skynsamlegast að beita þeirri aðferð að taka ekki eindregna afstöðu á annan hvorn veginn. Hópur innan flokksins sem nefndur hefur verið Heimastjórnarflokkurinn hefur tekið mjög einarða afstöðu gegn Evrópusambandinu. Ekki aðeins gegn þeirri Evrópu sem blasir við núna heldur líka þeirri Evrópu sem gæti orðið, því að hægt væri að breyta reglum Íslendingum í óhag. Hvers vegna Evrópusambandið?Meginástæðurnar eru tvær. Íslendingar þurfa efnahagslegan stöðugleika og þeir þurfa pólitískan stöðugleika. Þeir sem töluðu háðslega um að þeir sem vildu losna við krónuna væru lýðskrumarar hafa látið minna í sér heyra að undanförnu en áður. Allir vita að hrun krónunnar hefur leitt af sér 10% atvinnuleysi, 20% verðbólgu, 30% eignatap og 40% hækkun skulda. Hlutabréfamarkaðurinn hefur fallið um 95%. Vextir eru enn þeir hæstu á byggðu bóli að frátöldu Zimbave. Samt leyfa menn sér enn að tala um að í Evrópusambandinu sé ekki allt í besta lagi eins og að það sanni að Íslendingum sé betur borgið utan þess. Auðvitað er ekki allt í besta lagi. Í heiminum er dýpsta kreppa eftirstríðsáranna. Hins vegar eru engin dæmi um áföll af því tagi sem Íslendingar hafa lent í. Hér á landi lendir almenningur strax í feninu vegna þess að sjálfur gjaldmiðillinn brást. Um það þarf ekki að deila. Þegar Bandaríkjamenn ákváðu að fara af landi brott með herlið sitt var ljóst að hinu nána sambandi Íslendinga og þeirra var lokið. Sambandi sem hafði verið grundvöllur utanríkisstefnu Íslendinga frá stríðslokum. Að undanförnu hefur komið í ljós að hin grunnstoð samskipta við útlönd, Norðurlandasamvinnan, er líka farin að bresta. Íslendingar verða að ákveða hvar þeir vilja skipa sér í sveit í framtíðinni. Þar kemur ekkert annað til greina en Evrópusambandið. Draumur VG um bandalag við Noreg kveikir í besta falli bros, í versta falli meðaumkun. Og hikar ennSjálfstæðismenn sem hyggjast gefa kost á sér til forystu í framtíðinni hafa að undaförnu beðist afsökunar á því að hafa ekki verið árvökulli, meðan bankakerfið brotlenti á einkaþotu. Það er nauðsynlegt að fara með hreinskiptnum hætti yfir mistök í fortíðinni, fortíð þar sem gagnrýni og opinská umræða voru ekki vel liðin. Aðeins eru tveir kostir í boði. Framtíð með krónunni, þar sem búast má við gengisfellingu með tilheyrandi eignaupptöku á nokkurra ára fresti. Krónu sem útlendingar óttast svo mjög að þeir munu aldrei vilja fjárfesta í íslenskum atvinnurekstri. Krónu sem býður upp á svo háa vexti að íslensk fyrirtæki geta ekki keppt við útlend. Krónu sem einangrar landið og ýtir ungu fólki af atvinnumarkaðinum. Þessari framtíð fylgir pólitísk eyðimerkurganga. Hinn kosturinn er innganga í ES og evrópska myntbandalagið. Vextir og verðbólga verða eins og í nágrannalöndunum. Íslendingar munu taka þátt í pólitískum ákvörðunum sem varða þjóðina um langa framtíð. Sjálfstæðismenn verða annað hvort að velja annan hvorn þessara kosta eða benda á aðrar leiðir. Ekki humma og hía eins og þeir hafa gert heldur koma með annan trúverðugan kost. Þeir sem hika nú ættu strax að búa sig undir næstu afsökunarbeiðni til þjóðarinnar. Samfylkingin stillti Evrópusambandinu upp sem „sínu máli“ gagnvart Sjálfstæðisflokknum. Þá var það stjórnarslitamál. Þegar hún ákvað að fara í langtímasamstarf með Vinstri grænum varð hún ekki lengur trúverðugur kyndilberi Evrópu. Kannski er málið svo stórt að það er stjórnmálamönnum ofviða. Líklega er réttast að kjósa um aðildarumsókn samhliða alþingiskosningum í vor. Samþykki þjóðin að sækja um aðild hafa ráðin þar með verið tekin af stjórnmálaflokkunum. Ef ekki væri það þjóðin sjálf sem hefði ákveðið að hér eigi að vera annars flokks þjóðfélag til frambúðar. Við eigum ekki að sækja um aðild að Evrópusambandinu fyrir Samfylkinguna heldur fyrir framtíðina. Þeir sem vilja ganga til liðs við nágrannaþjóðirnar og ná þannig efnahagslegum og pólitískum stöðugleika eru ekki stuðningsmenn Evrópu heldur stuðningsmenn Íslands. Kjósum um aðildarumsókn og leyfum þjóðinni að tala. Ég treysti þjóðinni miklu betur til þess að taka rétta ákvörðun en stjórnmálamönnunum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Benedikt Jóhannesson Mest lesið Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson Skoðun Að eldast er að lifa Halldór S. Guðmundsson,Sirrý Sif Sigurlaugardóttir Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson Skoðun Skoðun Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson skrifar Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Íslenska Z-kynslóðin hefur hægt um sig Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin kjósa – en hver hefur eftirlit með forsetanum? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson skrifar Sjá meira
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun