Slæmur kjötbiti varð Contador að falli Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 30. september 2010 18:15 Alberto Contador sat fyrir svörum á fjölmennum blaðamannafundi í dag. Nordic Photos / AFP
Hjólreiðakappinn Alberto Contador greindi frá því á blaðamannafundi í dag að hann hefði fallið á lyfjaprófi eftir að hann vann Tour de France í síðasta mánuði. Contador er 27 ára Spánverji og þykir færasti hjólreiðakappi heims. Hann hefur þrívegis fagnað sigri á Tour de France og í tvö síðustu skiptin. Hann féll hins vegar á lyfjaprófi í síðasta mánuði og er óvíst hvort að sigurinn verði dæmdur af honum. Hann segist saklaus en óhætt er að segja að þetta sé engu að síður slæmt áfall fyrir hjólreiðaíþróttina sem hefur þurft að glíma við ófá lyfjahneykslin í gegnum tíðina. Contador segir að hann hafi ekki vísvitandi neytt ólöglegra lyfja. „Ég fékk einfaldlega matareitrun," sagði hann á blaðamannafundi og hafði kjöt sem hann hafði fengið frá heimalandinu sérstaklega grunað. „Hvort sem fólk trúir mér eða ekki þá get ég staðið beinn í baki og ég hef ekkert að fela." Bannefnið fannst í mjög litlu magni í sýni Contador. „Það eru aðeins fjórar rannsóknarstofur í heiminum sem hefðu getað fundið þetta. Þetta eru einfaldlega mistök. Ég set stórt spurningamerki við þetta kerfi og því verður einfaldlega að breyta. Ég get engan veginn liðið að verða dæmdur í bann."
Erlendar Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Enski boltinn Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Sport „Ef ég mætti ráða þá væri þetta öðruvísi“ Sport Fleiri fréttir „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ „Hélt stuðningsmönnum Englanna í sjöunda himni allt árið“ Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið „Ef ég mætti ráða þá væri þetta öðruvísi“ Kemur Íslendingnum unga til varnar „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Dagskráin í dag: Meistaradeildarveisla í allt kvöld Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Áfram skorar Andri Lucas PSG setti nýtt met í kvöld Börsungar léku sér að Aston Villa Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United „Þýðir ekkert að vera vera horfa upp á toppinn á Everest“ Uppgjörið: Njarðvík-Grindavík 93-97 | Grindavík á toppnum með fullt hús stiga Sigurganga Hauka heldur áfram Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Hvert sæti skipað í Laugardalshöll Halda áfram að raða inn sigrum í Meistaradeildinni Daníel átti þátt í dramatísku sigurmarki Teitur kallaður inn í landsliðið vegna meiðsla Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Elsti sonur Ronaldo valinn í sautján ára landsliðið Áhugaverð ummæli Teits hafa hrist upp í hlutunum Verður líkamleg og andleg barátta Stelpurnar okkar í riðli með Dönum og Ítölum Tímabilinu lokið hjá Viktori Aðeins nokkrir dagar í nýjan samning Þrettánda mark Bjarka í ellefu leikjum kom beint úr aukaspyrnu Sjá meira