Fjórar ákærðar fyrir slagsmál 19. ágúst 2010 04:00 Héraðsdómur Málið er rekið fyrir Héraðsdómi Norðurlands eystra.
Ríkissaksóknari hefur ákært fjórar rúmlega tvítugar konur fyrir líkamsárás á Akureyri. Samkvæmt ákæru átti atburðurinn sér stað á veitingastaðnum Kaffi Akureyri í ágúst á síðasta ári. Þrjár kvennanna sem ákærðar eru réðust á þá fjórðu. Ein þeirra kýldi hana í andlitið og sparkaði jafnframt með hnénu í andlit hennar. Hinar tvær rifu í hár fórnarlambsins og slógu hana nokkrum sinnum í andlit og líkama. Sú sem ráðist var á hlaut sjáanlega áverka. En hún er einnig kærð fyrir stórfellda líkamsárás þar sem hún sló eina af árásarkonunum þremur með glerglasi í höfuðið með þeim afleiðingum að sú síðarnefnda fékk sár á hvirfil. Konan sem hinar þrjár réðust upphaflega á gerir kröfu um bætur frá þeim að upphæð samtals ríflega 600 þúsund krónur. Þar af eru 300 þúsund í miskabætur. Sú hinna þriggja, sem slegin var með glasinu gerir kröfu um bætur upp á 300 þúsund krónur úr hendi þeirrar sem það gerði. Jafnframt krefst hún greiðslu vegna lögmannsaðstoðar upp á tæplega 200 þúsund krónur.- jss
Fréttir Mest lesið Blóðugt barn eftir tilefnislausa árás í Kringlunni Innlent Leysa brátt frá skjóðunni um leiðtoga Miðflokksins í borginni og nafnaleikurinn hafinn Innlent Segja fátt rétt í fréttinni og heimildamanninn fyrrverandi eiginmann Innlent Þjófarnir lifðu eins og kóngar um stund Innlent Starfsmaður ríkissaksóknara sagður hafa játað refsiverð brot Innlent Barni bjargað frá drukknun í Dalslaug Innlent Tíu ung börn voru orðin verkjuð og hjólbeinótt vegna beinkramar Innlent Loka Breiðholtsbraut alla helgina Innlent Álag réttlæti ekki mistökin sem voru gerð Innlent Jóhanna ætlar ekki aftur fram Innlent Fleiri fréttir Grunaður barnaníðingur komi ekki lengur nálægt BHM Skrifin séu ekki til komin vegna framboðs í borginni Þjófarnir lifðu eins og kóngar um stund Líf og Dóra í nýjum hlutverkum út kjörtímabilið Barni bjargað frá drukknun í Dalslaug „Ætlum ekki að hætta við allt sem er erfitt og gera allt fyrir alla“ Álag réttlæti ekki mistökin sem voru gerð Segja fátt rétt í fréttinni og heimildamanninn fyrrverandi eiginmann Gögnin frá ríkislögreglustjóra komin á borð ráðherra Lögreglustjóri svarar ráðherra og efnahagsmálin rædd á Alþingi Loka Breiðholtsbraut alla helgina Blóðugt barn eftir tilefnislausa árás í Kringlunni Staða sólar hafi mögulega truflað sýn ökumannsins sem lést Meirihluti stjórnmálasamtaka í vanskilum með ársreikning Leysa brátt frá skjóðunni um leiðtoga Miðflokksins í borginni og nafnaleikurinn hafinn Handteknir fyrir að hafa í hótunum við leigubílstjóra Starfsmaður ríkissaksóknara sagður hafa játað refsiverð brot Heiðra minningu Sigurðar Kristófers með Neyðarkallinum í ár Jóhanna ætlar ekki aftur fram Rósa Guðbjarts hætt í bæjarstjórn Fólk hafi varann á þegar PIN-númer eru slegin inn Tíu ung börn voru orðin verkjuð og hjólbeinótt vegna beinkramar „Mér finnst þetta bara klaufaskapur“ Vill að þingið skoði mál Ríkisendurskoðanda Fleiri grunaðir en þeir sem voru handteknir Víðfeðm rannsókn, vasaþjófar og börn með beinkröm Þrír vasaþjófar handteknir á Þingvöllum Játaði hópnauðgun og vildi komast í frí til heimalandsins Innsigluðu sex gististaði vegna skorts á leyfum Vasaþjófar höfðu fúlgur fjár af eldri mönnum og ferðamanni Sjá meira