Brjálaðir í nýju myndbandi 6. maí 2010 04:30 Rokkararnir í Endless Dark tóku upp nýtt myndband í Bolton við lagið Cold, Hard December.
Rokksveitin Endless Dark er nýkomin heim eftir frækilega för til London þar sem hún lenti í öðru sæti í alþjóðlegu hljómsveitakeppninni Global Battle Of The Bands. Eftir keppnina tók sveitin upp sitt fyrsta myndband í bænum Bolton við lagið Cold, Hard December. „Það var „kúl" að gera það í Englandi," segir Atli Sigursveinsson, gítarleikari Endless Dark, um fyrsta myndband sveitarinnar sem tekið var upp í Englandi eftir að sveitin hafnaði í öðru sæti í Global Battle of the Bands. Myndbandsgerðin gekk þó ekki áfallalaust fyrir sig: „Við áttum að lifa okkur svo inn í þetta og vera svo brjálaðir í myndbandinu að hinn gítarleikarinn skallaði gítarinn og fékk skurð í andlitið," segir Atli. Útgáfufélag sem er að íhuga að semja við Endless Dark um útgáfu smáskífu eða EP-plötu stóð á bak við gerð myndbandsins. Leikstjórn var í höndum aðila sem kalla sig Sitcom Soldiers og hafa verið duglegir við að taka upp myndbönd fyrir breskar rokksveitir. Einnig tóku þeir upp myndband íslensku sveitarinnar Ourlives við lagið Sandra. Fyrrverandi gítarleikari Ourlives, Egill Kári Helgason, er einmitt umboðsmaður Endless Dark. Atli er að vonum ánægður með annað sætið í hljómsveitakeppninni og segir að þessi góði árangur hafi ekki komið sér mjög á óvart. „Mér fannst ekkert rosalega góð bönd þarna en maður er samt alltaf jafnspenntur og óviss. Þetta var drullugaman en það er skrítið að spila þegar það eru yfir tuttugu bönd á sama kvöldi. Það var mjög gaman að kynnast þessu liði." Vel var tekið á móti þeim í tónleikasalnum, eins og reyndar öllum sveitunum. „Það var klappað vel fyrir öllum böndum en manni heyrðist að fólk væri að fíla okkur. Helmingurinn af salnum var reyndar frá Nepal. Þegar Nepal kom á sviðið varð allt brjálað," segir Atli. Það var engu að síður kínversk sveit sem bar sigur úr býtum, eins og áður hefur komið fram í Fréttablaðinu. Endless Dark spilar svokallað post-harðkjarnarokk, eða screamo. Sveitin er skipuð sex strákum á aldrinum 18 til 22 ára frá Ólafsvík og Grundarfirði og verður forvitnilegt að fylgjast með framgöngu þeirra á næstu árum. Atli er alla vega sannfærður um að framtíðin sé björt, þó svo að enn ríki óvissa um samningamálin. „Við vitum ekkert enn en það eru góðir hlutir að fara að gerast." freyr@frettabladid.is
Mest lesið „Góður vetrardagur hér er 23 gráður“ Lífið Hver mínúta tók heilan mánuð af vinnu Lífið Bríet ældi á miðjum tónleikum Lífið „Litlu aumingjarnir þurftu að fara heim að sofa“ Lífið Þátttökulöndin ekki færri síðan 2003 Lífið Eldsvoðinn í Reykjavík sem líkt var við náttúruhamfarir Lífið Upphitaðir afneitunarafgangar Frosta Gagnrýni Talið að Rob Reiner og eiginkona hans hafi verið myrt Erlent Ískaldir IceGuys jólatónleikar Lífið Prestarnir sem passa þau sem samfélagið afskrifar eða dæmir Lífið Fleiri fréttir Afþakka miðann til Vínar vinni þeir undankeppnina Prikið vekur athygli út fyrir landsteinana Abba skilar 350 milljörðum í kassann Ísraelar fá að vera með í Eurovision Halda aðra tónleika á Íslandi fyrir þá sem misstu af Allt alltaf alls staðar í allra besta lagi Miley Cyrus trúlofuð Þau þykja skara fram úr í íslenskri tónlist Þau hlutu verðlaun Dags íslenskrar tónlistar Bein útsending: Hver hlýtur viðurkenningu á Degi íslenskrar tónlistar? Bjallaði í eitt virtasta tónskáld Kasakstan Patti Smith heldur tónleika í Hörpu og Hofi Reggí-risinn Jimmy Cliff allur Lifandi tónlist beint í æð allan ársins hring Hlýja og nánd heima og uppi á sviði Gæsahúð gekk á milli gesta á Stuðmönnum Lög sem mönnum yrði slaufað fyrir í dag Frumsýning á Vísi: Fögnuðu nýjum lífstíl Lítið mál að trylla lýðinn kasólétt Fagnar fimmtugsafmæli með fyrstu tónleikum Ampop í átján ár Tók málin í eigin hendur og stofnaði nýja metal-hátíð á Selfossi Una Torfa heillaði baðgesti upp úr sundskónum Áhrifamikill óður til Grindvíkinga Sjá meira