Ronaldo búinn að jafna markametið á Spáni Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 15. maí 2011 21:28 Nordic Photos / AFP
Cristiano Ronaldo skoraði tvö mörk er Real Madrid vann 3-1 sigur á Villarreal í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld. Hann er því búinn að skora 38 mörk í deildinni í vetur sem er metjöfnun. Bæði mörk Ronaldo komu úr aukaspyrnum, það síðara í uppbótartíma. Hann hefur þar með jafnað markametið sem var sett fyrir 60 árum síðan. Telmo Zarra, leikmaður Athletic Bilbao, skoraði þá 38 mörk í deildinni en Hugo Sanchez jafnaði metið svo fyrir 21 ári síðan. Mexíkóinn Sanchez er einn frægasti leikmaður Real Madrid frá upphafi en Ronaldo getur bætt metið þegar Real Madrid mætir Almeria í lokaumferðinni um næstu helgi. Marcelo skoraði fyrsta mark Real í leiknum en Cani minnkaði muninn fyrir Villarreal í stöðunni 2-0. Ronaldo hefur skorað sjö mörkum meira en Argentínumaðurinn Lionel Messi í deildinni en báðir hafa skorað meira en 50 mörk í öllum keppnum á tímabilinu. Ronaldo 51 og Messi 52 sem er met. Messi spilaði þó ekki með Barcelona í kvöld þar sem Pep Guardiola stilltu upp hálfgerðu varaliði er Börsungar gerðu markalaust jafntefli við Deportivo á heimavelli. Barcelona tryggði sér á dögunum Spánarmeistartitilinn og mætir Malaga á útivelli í lokaumferðinni. Börsungar halda svo til Lundúna þar sem liðið mætir Manchester United í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu þann 28. maí.
Spænski boltinn Mest lesið Endurkomusigur í stórskemmtilegum opnunarleik Enski boltinn „Eiginlega alveg viss“ um að Rashford megi spila á morgun Fótbolti „Ég hélt að við værum komin lengra“ Enski boltinn „Betra er seint en aldrei“ Enski boltinn Tryggvi lét mest til sín taka í tapi gegn Portúgal Körfubolti Opnunarleikurinn var stöðvaður vegna kynþáttaníðs Enski boltinn Villareal vann í endurkomu Cazorla og frumraun Partey Fótbolti ÍBV segir tvær hliðar á málinu og óskar Kára velfarnaðar Handbolti Kristall farinn að skora aftur eftir meiðslin Fótbolti Stórkostleg tölfræði Salah í fyrsta leik Enski boltinn Fleiri fréttir „Eiginlega alveg viss“ um að Rashford megi spila á morgun „Ég hélt að við værum komin lengra“ „Betra er seint en aldrei“ Villareal vann í endurkomu Cazorla og frumraun Partey Endurkomusigur í stórskemmtilegum opnunarleik Opnunarleikurinn var stöðvaður vegna kynþáttaníðs Kristall farinn að skora aftur eftir meiðslin Aston Villa sektað og bannað að nota marga bolta „Allt er þegar þrennt er“ Liverpool kaupir ungan ítalskan miðvörð Brentford að slá félagaskiptametið Allar tilfinningarnar í gangi Enska augnablikið: Hamingjureiturinn Stórkostleg tölfræði Salah í fyrsta leik „Tölfræðin er eins og bikiní“ Fjölskylda Jota á Anfield í kvöld Táningi hótað lífláti þrátt fyrir sigurinn á Víkingum „Maður er búinn að vera á nálum“ Hentu ferðatöskum inn á völlinn í miðjum leik Danirnir hjá Norwich fögnuðu óförum Víkinga berir að ofan Spurningar um Isak tóku yfir fundinn Sjáðu þáttinn um fyrsta N1-mót kvenna: Smá stress, snitsel og Sandra María skrifaði á skó Gummi Ben og Hjörvar Hafliða fóru að rífast Sjáðu dramtíkina á Króknum í gær: Aftur fengu Þróttarakonur rautt spjald Karólína Lea valin best í fyrsta leik Enska augnablikið: Eftirminnilegasta lýsing Íslandssögunnar Nýr framherji Man. United treður með miklum tilþrifum í körfuna „Gefa áhorfendum innsýn í það sem sérfræðingarnir gera“ Dagskráin: Fyrsti leikur í enska boltanum „Galið og fáránlegt“ Sjá meira