Semjum aldrei aftur við Íslendinga Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 29. júlí 2011 14:30 Sandra í búningi Stjörnunnar.
Forráðamenn sænska knattspyrnufélagsins Jitex eru allt annað en sáttir við markvörðinn Söndru Sigurðardóttur. Varaformaður félagsins hefur lokað dyrunum á íslenskt knattspyrnufólk og segir að brennt barn forðist eldinn og á þar við sænska félagið. Þetta kemur fram í viðtali sænska fjölmiðilsins Expressen við Lennart Lindorsson varaformann Jitex. Sandra hefur haldið því fram að sænska félagið hafi ekki staðið við skuldbindingar sínar. Þessu hafna forráðamenn Jitex og segja Söndru hafa fengið ríflega greitt á tíma sínum hjá félaginu. „Við höfum uppfyllt skuldbindingar okkar og rúmlega það. Hún hefur í raun fengið meiri pening en samningurinn segir til um," segir Lindorsson. Meðal þess sem Lindorsson nefnir er að félagið hafi aðstoðað Söndru með húsaleigu, greiðslu fyrir breiðband og farsímakostnað. Hann telur að Sandra hafi sagt upp samningnum vegna fjölskylduaðstæðna. Lindorsson fer hörðum orðum um framkomu Söndru sem hann segir hafa brotið samning sinn. „Við ætlum að fá tilbaka þá peninga sem við höfum lagt út. Við erum handvissir að við vinnum málið," segir Lindorsson sem er tilbúinn að fara alla leið með það. „Það er ekki hægt að rifta samningi á þennan hátt í Svíþjóð. Kannski er það hægt á Íslandi," sagði Lindorsson. Lindorsson segir að Jitex muni ekki brenna sig aftur á því að semja við íslenska leikmenn. „Brennt barn forðast eldinn," sagði Lindorsson. Expressen hafði ekki tekist að ná samandi við Söndru. Þeir höfðu reynt að ná í hana í íslenskt farsímanúmer og Lindorsson hafði sýna skoðun á því. „Jitex greiðir farsímakostnaðinn á sænska símanúmerið hennar þannig að ekki hringja í það," sagði Lindorsson í samtali við Expressen. Sandra Sigurðardóttir sagði í samtali við blaðamann Vísis að hún teldi best að tjá sig ekki frekar um þetta mál.
Íslenski boltinn Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Sport Börsungar léku sér að Aston Villa Fótbolti PSG setti nýtt met í kvöld Fótbolti Fleiri fréttir Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Sjá meira