Pearce: Norðmenn sigurstranglegastir eins og er Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 5. október 2011 15:51 Stuart Pearce, þjálfari U-21 liðs Englands. Nordic Photos / Getty Images
Stuart Pearce, þjálfari enska U-21 landsliðsins, sat fyrir svörum á blaðamannafundi í Laugardalnum í dag en U-21 lið Íslands mætir á morgum jafnöldrum sínum frá Englandi í undankeppni EM 2013. Ísland er einnig í riðli með Noregi, Belgíu og Aserbaídsjan og byrjaði á því að vinna Belga í síðasta mánuði en tapa svo fyrir Noregi. Ísland er því með þrjú stig, rétt eins og England sem vann Asera á heimavelli í byrjun september. „Ég held að þetta sé riðill þar sem liðin geta öll reitt stig hver af öðru,“ sagði Pearce á blaðmannafundi í Laugardalnum í gær. „Það er líka tilfinningin sem ég hef eftir að hafa séð fyrstu leikina.“ „Íslendingar hafa staðið sig mjög vel og þá sérstaklega í þessum aldursflokki. Það var frábært hjá þeim að komast í úrslitakeppnina í Danmörku í sumar og þeir náðu að vinna okkur á okkar heimavelli í mars síðastliðnum.“ „Ég á því von að þetta verði mjög erfiður leikur fyrir bæði lið.“ Hann hefur skoðað íslenska liðið og segir að það sé einkar vel skipulagt og með marga hæfileikaríka leikmenn. „Íslenskir leikmenn eru af náttúrunnar hendi afar vinnusemir og skipa góða liðsheild. Þetta hef ég séð ítrekað aftur og aftur með þeim leikjum sem ég hef skoðað með liðinu.“ Pearce telur að sautján stig muni duga til að komast áfram úr riðlinum og í umspilið um laust sæti í úrslitakeppninni í Ísrael sumarið 2013. „Liðin hafa því ekki mikið svigrúm til að misstíga sig. Þetta er því mikilvægur fyrir bæði lið.“ Honum finnst mikið til norska liðsins koma og segir það líklegast til afreka í riðlinum. „Norðmenn voru mjög öflugir gegn Íslandi og ég á von á því að þeir verði sterkir, sérstaklega á heimavelli. Þetta er því afar athyglisverður riðill.“
Íslenski boltinn Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Sport Börsungar léku sér að Aston Villa Fótbolti PSG setti nýtt met í kvöld Fótbolti Fleiri fréttir Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Sjá meira