Fjögur skipulögð glæpagengi takast á 10. mars 2011 06:00
Íslensku Vítisenglarnir eru taldir gera út áhangendahópa til glæpaverka. Mótorhjólamenn hafa heimsótt fyrirtæki sem hafa orðið fyrir skemmdarverkum og innbrotum og boðið þeim vernd gegn gjaldi. Lögregla óttast að slái í brýnu á milli fjögurra skipulagðra glæpasamtaka sem hafa hreiðrað um sig á Íslandi. Lögregla hefur sterkar vísbendingar um að vélhjólagengið MC Iceland, sem nú er orðinn sjálfstæður klúbbur í Hells Angels, sé farið að mynda og nota svokallaða undirhópa hér á landi til ofbeldisverka, þjófnaða, fíkniefnasölu og fleiri glæpaverka, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Þessar aðferðir eru þekktar hjá Hells Angels mótorhjólagengjum um allan heim. Vitað er til þess að mótorhjólamenn hafi heimsótt fyrirtæki, sem orðið hafa fyrir skemmdarverkum og boðið vernd til að koma í veg fyrir að slíkt endurtaki sig. Þetta er einnig dæmigerð aðferðafræði hjá Hells Angels og fleiri mótorhjólagengjum. Snúið að hanka höfuðpauranaÞað hefur reynst snúið fyrir lögreglu að rekja starfsemi af þessu tagi til höfuðpauranna vegna þeirra takmörkuðu heimilda sem hún hefur yfir að ráða. Lögregla í nágrannalöndunum hefur víðtækari heimildir og fyrr í vikunni var forsprakki norska Hells Angels-klúbbsins handtekinn í kjölfar rannsóknar þarlendrar lögreglu á glæpastarfsemi hans. Sem dæmi um annmarka heimilda lögreglu á að rekja brotastarfsemi til skipuleggjenda hennar má nefna málið sem upp kom þegar fjórir menn sviku fjörutíu milljónir króna út úr Íbúðalánasjóði. Þeir höfðu allir bein tengsl við vélhjólaklúbbinn Fáfni, forvera Hells Angels, en ekki reyndist unnt að komast að því hvort klúbburinn sem slíkur stóð á bak við verknaðinn. Hells Angels, Outlaws og Bandidos eru hættulegustu mótorhjólaklúbbarnir. Tveir hinna fyrrnefndu hafa komið sér fyrir hér á landi, eins og fram hefur komið, en ekki er vitað til þess að Bandidos hafi komið sér upp stuðningsklúbbi hér enn sem komið er. Með innleiðingu MC Iceland í Hells Angels er íslenski hópurinn orðinn sjálfstætt starfandi klúbbur innan samtakanna. Það þýðir að hann sækir svokölluð heimsþing og Evrópuþing og getur leitað til erlendra klúbba eftir aðstoð við ýmsa brotastarfsemi hér á landi, jafnframt því sem meðlimir hér veita félögum erlendra klúbba aðstoð, sé eftir því kallað. Aðild að Hells Angels styrkir MC Iceland í sessi og til skipulagðrar glæpastarfsemi. Austantjaldsklíkur undir einn hattGlæpagengið sem brotamenn frá Litháen og Póllandi hafa myndað hér á landi hefur einnig myndað eins konar undirhópa, sem gerðir eru út í ýmsa brotastarfsemi. Má þar nefna þjófagengi, sem hefur um hundrað innbrot á samviskunni og hefur bein tengsl við aðalhópinn. Þá er vitað að höfuðpaurarnir standa að framleiðslu og dreifingu á amfetamíni hér og leikur grunur á að þeir flytji efnin einnig úr landi. Þessir menn eru vopnaðir og beita ofbeldi bæði utan hóps og innan. Öðrum glæpagengjum stendur ógn af þessum hóp. Minnst er vitað um MC Black Pistons, sem er stuðningshópur Outlaws og hefur nýlega fest rætur hér að undirlagi Jóns Trausta Lútherssonar, sem stýrir systursamtökunum í Noregi. Ekki er vitað með vissu um fjölda félagsmanna í íslenska klúbbnum en meðal þeirra eru einstaklingar með dóma fyrir ofbeldisverk á bakinu og munu tilbúnir til að beita ofbeldi. MC Black Pistons eru talin stofnuð til höfuðs MC Iceland, en „móðursamtökunum“, það er Hells Angels og Outlaws, hefur lent saman í blóðugum átökum erlendis. Jón stóri skipuleggur Semper FiFjórði glæpahópurinn, Semper Fi (Alltaf trúr), sem Jón Hilmar Hallgrímsson, „Jón stóri“, er talinn fara fyrir, er eingöngu skipaður Íslendingum, sem eru þekktir í undirheimum fyrir þjófnaðarmál og fíkniefnasölu, auk hótana og ofbeldis. Þeir eru taldir feta í fótspor mótorhjólaklúbba hvað varðar uppbyggingu með tilheyrandi metorðum innan hópsins og félagsgjöldum til að tryggja vernd og stuðning innan gengisins. Talið er að Semper Fi sé stofnaður til að bregðast við starfsemi pólsk-litháíska hópsins, sem íslenskir undirheimamenn líta á sem ógn við sig. Greiningardeild ríkislögreglustjóra hefur lýst áhyggjum sínum af yfirvofandi átökum milli ofangreindra hópa, jafnvel á næstu vikum eða mánuðum. Menn óttast nú aukna hörku sem hóparnir kunni að beita til að tryggja stöðu sína í undirheimunum. Það er þekkt að þetta gerist þar sem Hells Angels-klúbbar festa sig í sessi, því að markmið þeira er yfirráð og völd. ritstjorn@frettabladid.is
Lögreglumál Mál Jóns stóra Mest lesið Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum Innlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Innlent Fleiri fréttir Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Sjá meira