Svar til Sigurðar Arnar Hektorssonar Gunnar Smári Egilsson skrifar 9. júní 2011 06:00 Ástæða þess að ég benti á í grein á vef SÁÁ, saa.is, að greining á ADHD í fullorðnum og rítalínmeðferð byggð á henni væri umdeild meðal lækna var fyrst og fremst málflutningur nokkurra geðlækna – og reyndar landlæknis einnig – um að ekki mætti raska þessari meðferð með því að horfa til þess skaða sem óhófleg ávísun á rítalín hefði á vímuefnasjúklinga. Þessir sjúklingar – það er vímuefnasjúklingarnir – voru kallaðir jaðarhópur. Og mátti skilja að neikvæð áhrif rítalíns á þennan hóp væru jafnvel ásættanlegir annmarkar á vel lukkaðri meðferð annars hóps sjúklinga. Þessi afstaða lýsir mikilli vanþekkingu, bæði á umfangi þess skaða sem óhóflegar ávísanir á rítalín hafa valdið meðal sprautufíkla og eins á umfangi rítalíns á fíkniefnamarkaðinum. Ef ekki er um vanþekkingu að ræða er það eitthvað enn verra sem ræður afstöðu læknanna. Eitt einkenni rítalíns er að sjúklingarnir sprauta sig oftar en ef þeir nota önnur efni. Þegar rítalín flæðir yfir fíkniefnaheiminn eykur það því smithættu og breiðir hratt út lifrarbólgu. Allir þeir tíu sem greinst hafa með HIV á þessu ári höfðu notað rítalín. Áhrif rítalíns á vímuefnasjúklinga eru því hörmuleg fyrir einstaklingana og verða samfélaginu dýrkeypt. Þegar dró úr neyslu á áfengi og öðrum vímuefnum eftir hrun og þar með neikvæðum afleiðingum neyslunnar dró ekki úr notkun sprautufíkla á örvandi efnum. Rítalín, niðurgreitt af skattborgurum, vó upp samdrátt í innflutningi á amfetamíni. Af þeim sprautufíklum sem koma á Vog í dag segja 59 prósent að rítalín sé það efni sem þeir noti mest eða næstmest. 90 prósent þeirra segjast hafa notað rítalín. Aðeins 10 prósent segjast ekki hafa notað það. Engin ástæða er til að ætla að neyslumynstrið sé annað hjá þeim sprautufíklum sem enn hafa ekki komið á Vog. Ekki er vitað hversu margir virkir sprautufíklar eru úti í samfélaginu hverju sinni en miðað við upplýsingar frá Vogi má ætla að þeir séu nálægt 750 manns. Þegar þetta tvennt er lagt saman – vægi rítalíns í neyslumynstrinu og fjöldi sjúklinganna – má ganga út frá því að neysla sprautufíkla sé vel yfir 500 dagsskammtar á dag og líkast til mun meiri. Neyslan nálgast að vera um fjórðungur af öllu rítalíni sem ávísað er á fullorðna. Rítalínfaraldur meðal vímuefnasjúklinga er því stórt mál hvort sem litið er á skaðann eða umfangið – og það er líka stór hluti af heildarnotkuninni í landinu. Og alla þessa notkun má rekja til lækna sem ávísa þessu lyfi. Það er því óskiljanlegt að þeir læknar sem vilja verja ADHD-greiningu á fullorðnum og meðferð við henni skuli ekki vilja ganga til liðs við SÁÁ og aðra sem vilja stöðva ávísun rítalíns á vímuefnasjúklinga. Ekki byggir þessi afstaða á hagsmunum þeirra sem greindir hafa verið með ADHD. Það hljóta að vera hagsmunir þeirra að fyrirbyggja þessa umfangsmiklu misnotkun svo meðferð við vanda þeirra fái að þróast og mótast með eðlilegum hætti. Það er alrangt að úr skrifum mínum megi lesa fordóma gagnvart ADHD. Ég benti einfaldlega á að greining á sjúkdómnum og rítalínmeðferð við honum eru umdeildar. Það sama hafa formaður læknafélagsins, fyrrverandi yfirlæknir fíknideildar Landspítalans og margir, margir fleiri gert. Ástæða fyrir því að ég benti á þessa velþekktu staðreynd var að nokkrir geðlæknar kynntu þessar aðferðir sem gegnheil vísindi og vildu með því ýta út úr umræðunni þjáningum vímuefnasjúklinga og þeim stórkostlega skaða sem rítalínnotkun þeirra veldur samfélaginu. Það er mikið mein í almennri umræðu á Íslandi að í hvert sinn sem einhver bendir á félagslegt mein skuli fólk reyna að gera það tortryggilegt með því að draga fram ímyndaða hagsmuni einstaklinga. Þegar menn benda á þann skaða sem pólitískar klíkuráðningar hafa valdið íslensku samfélagi stígur vanalega einhver fram og túlkar það sem árásir á Jón frænda. Og spyr: Ertu að halda því fram að Nonni frændi sé ekki traustsins verður? Útúrsnúningur Sigurðar Arnar Hektorssonar á orðum mínum er þessarar ættar og byggir hvorki á læknisfræðinni sem hann lærði né nokkru sem hann kann eða getur – þetta er ósiður sem hann heldur að sé boðlegur vegna þess hversu útbreiddur hann er. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Gunnar Smári Egilsson Tengdar fréttir Það vantar ekki stefnu - það vantar vilja Af opinberri umræðu í kjölfar umfjöllunar Kastljóss um unga rítalínfíkla og læknadóp mætti ætla að algjört stefnuleysi ríkti á Íslandi í málum ungra fíkniefnaneytenda. Sú er ekki raunin. Þvert á móti er hér rekin skýr og skilvirk stefna í meðferðarmálum ungra fíkla á vegum SÁÁ og þessi stefna hefur skilað árangri sem er bæði sýnilegur og góður. 4. júní 2011 06:00 Opið bréf til Gunnars Smára Egilssonar, formanns SÁÁ Sæll, Gunnar Smári. Þú ferð mikinn í grein þinni í helgarblaði Fréttablaðsins og vefsíðu SÁÁ, þar sem þú kýst að sneiða að íslenskum geðlæknum, er þú jafnar þeim við brottrekna starfsmenn Byrgisins og Götusmiðjunnar. Þá er æði grunnt á fordómum þínum gagnvart ADHD-sjúklingum. Þarna hættir þú þér allnokkuð á hálan ís, því skrif þín bera ekki vitni um teljandi þekkingu á málefninu. 8. júní 2011 06:00 Mest lesið Eineltið byrjar kannski við eldhúsborðið! Birta Róbertsdóttir Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson Skoðun Þegar veikindaleyfi verður að fríi Gunnar Ármannsson Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson Skoðun Hvaða skilaboð erum við að senda framtíðarkennurum? Eyrún Ósk Hjartardóttir Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Draumsýn menntamála Álfhildur Leifsdóttir ,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Íslenska Z-kynslóðin hefur hægt um sig Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin kjósa – en hver hefur eftirlit með forsetanum? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason skrifar Sjá meira
Það vantar ekki stefnu - það vantar vilja Af opinberri umræðu í kjölfar umfjöllunar Kastljóss um unga rítalínfíkla og læknadóp mætti ætla að algjört stefnuleysi ríkti á Íslandi í málum ungra fíkniefnaneytenda. Sú er ekki raunin. Þvert á móti er hér rekin skýr og skilvirk stefna í meðferðarmálum ungra fíkla á vegum SÁÁ og þessi stefna hefur skilað árangri sem er bæði sýnilegur og góður. 4. júní 2011 06:00
Opið bréf til Gunnars Smára Egilssonar, formanns SÁÁ Sæll, Gunnar Smári. Þú ferð mikinn í grein þinni í helgarblaði Fréttablaðsins og vefsíðu SÁÁ, þar sem þú kýst að sneiða að íslenskum geðlæknum, er þú jafnar þeim við brottrekna starfsmenn Byrgisins og Götusmiðjunnar. Þá er æði grunnt á fordómum þínum gagnvart ADHD-sjúklingum. Þarna hættir þú þér allnokkuð á hálan ís, því skrif þín bera ekki vitni um teljandi þekkingu á málefninu. 8. júní 2011 06:00
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar